Fréttablaðið - 16.04.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 16.04.2004, Blaðsíða 14
17FÖSTUDAGUR 16. apríl 2004 í hendur heimamönnum 30. júní næstkomandi. Bandaríkjamenn hyggjast senda 10 þúsund her- menn til viðbótar til Írak og freista þess að ná tökum á ástandinu. Trú manna á að það takist fer þverrandi. ■ Verðbólga eykst í Bandaríkjunum: Búist við vaxtahækkun VIÐSKIPTI Verðbólga í Bandaríkj- unum jókst um hálft prósent í mars og er það fjórði mánuðurinn í röð sem verðbólga hækkar. Al- mennt var búist við hækkun, en hækkunin var töluvert meiri en markaðurinn bjóst við. Ef orka og matvæli eru undanskilin er verð- bólgan milli mánaða sú mesta í tvö ár. Sérfræðingar búast við að senn líði að því að Seðlabanki Banda- ríkjanna hækki vexti. Viðbrögð markaðarins voru þau að verð hlutabréfa lækkaði vegna vænt- inga um vaxtahækkunina. ■ HEIMSÓTTI LANDA SÍNA Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, fór í óvænta heimsókn til Nasiriyah í suð- urhluta Íraks á laugardag og hitti ítalska hermenn. Um það bil 3.000 ítalskir her- menn eru nú í Írak. Myndin af Berlusconi var tekin þegar útför 19 Ítala, sem féllu í árás uppreisnarmanna í Nasiriyah, fór fram í nóvember síðastliðnum. VEIÐI Margir veiðimenn hafa síð- ustu daga rennt fyrir fisk, veiðin var misjöfn en menn reyndu. Fyrir neðan brúna á Andakílsá, á silunga- svæðinu, var reynt mikið reynt um páskana en veiðin var ekki mikil. Útiveran var hins vegar góð og það var fyrir mestu. „Veiðimenn sem voru að veiða fyrir fáum dögum settu í 8 til 10 punda fiska í skurðinum þar sem rennur úr vatninu,“ sagði Jakob Hrafnsson um veiði í Steinsmýrar- vötnum, en veiðin hefur verið ágæt þar um slóðir eins og víða í vor- veiðinni. „Veiðitölur núna eru um 100 fiskar en flestum hefur verið sleppt aftur. Flestir fiskarnir eru fallegir geldfiskar á bilinu 2 til 3 pund, en stærstu fiskarnir eru 5 til 6 punda,“ sagði Jakob. Fyrir nokkrum dögum veiddi Stefán Sigurðsson rígvænan fisk í Ytri-Rangá og hann sleppti honum aftur. „Þetta var fiskur vel yfir 10 pundin, 85 sentimetrar og ég sleppti honum aftur,“ sagði Stefán. Í Varmá hefur verið fín veiði og voru veiðimenn að fá 14 punda bleikjur í Húshyl. Ein líklega stærri en þessi 14 punda slapp í Húshylnum eftir mikla baráttu. Einn veiðimaður fékk fallegan 4 punda sjóbirting á miðsvæðinu og 8 punda bleikja kom líka á land um páskana. Það var fjör við lækinn og veiðimenn náðu óvenjulega vænni bleikju. Í Soginu á flestum svæðum var reynt, en bleikjan gaf sig lítið, enda áin ennþá köld, aðeins um tvær gráður þegar hún var mæld af veiðimönnum. ■ Húshylur í Varmá: 14 punda bleikja á land STEINSMÝRARVÖTN GEFA VEL Þröstur Hjartarson með góða veiði úr Steinsmýrarvötnum, fyrir fáum dögum. M YN D /J AK O B H R AF N SS O N ÖRKUMLAÐUR Bakre Kamal, sjö ára drengur, særðist illa þegar sprengja féll á heimili hans í Sam- arra, 90 kílómetra norður af Bagdad, höf- uðborg Íraks. Kamal er örkumlaður eftir sprengjuna. TIL HINSTU HVÍLU Írakar bera hér fallinn félaga til hinstu hvílu á fótboltavelli í Fallujah sem breytt hefur verið í grafreit. Talið er að rúmlega 600 írakar hafi fallið í borginni undan- farna viku, einkum konur og börn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.