Fréttablaðið - 16.04.2004, Blaðsíða 35
26 16. apríl 2004 FÖSTUDAGUR
CURSIVE
„How did I end up here to begin
with? I don’t know.
Why do I start what I can’t fin-
ish?
Oh, please, don’t arouse me with
the questions, of all those ugly
answers.
My ego is like my stomach, it
keeps shitting what I feed it.“
- Söngvari Cursive lýsir þeim trega fullkomlega að vera
fastur í eigin sjálfsvorkunn í laginu The Recluse af
plötunni frábæru The Ugly Organ frá því í fyrra.
Popptextinn
TÓNLIST Breska rokksveitin Black
Rebel Motorcycle Club hefur sagt
skilið við útgáfurisann Virgin.
Ákvörðunin var víst sameiginleg frá
báðum endum borðsins. Sveitin er
frelsinu fegin og leitar nú að nýjum
og hagstæðari útgáfusamning.
„Við erum búnir að vera berj-
ast fyrir því að losna í sex mánuði
en höfum ekki getað sagt neinum
frá því af ótta við að hlutir færu í
vont,“ segir Robert Turner, liðs-
maður sveitarinnar. „Við ætlum
að fara aftur ofan í grundvallar-
atriðin eins og þegar við byrjuð-
um. Þá gerðum við meira sjálfir
og vorum þess vegna sáttari við
allar ákvarðanir. Þetta er besti
dagur í stuttri sögu sveitarinnar.
Við erum með mörg áform um
hvað við viljum gera næst og hjá
hverjum við munum gefa út plöt-
ur í framtíðinni.“ ■
BLACK REBEL MOTORCYCLE CLUB
Voru ekki sáttir hjá einu stærsta útgáfu-
fyrirtæki heims og kepptust við að
ná sig lausa í sex mánuði.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar verður
haldinn kl: 20.00. þriðjudaginn 20. apríl 2004 í
Skútunni, Hólshrauni 3. Hafnarfirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning í kjörstjórn.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Verkalýðsfélagið Hlíf
Reykjavíkurvegi 64 - 220 - Hafnarfjörður
Sími 5550944 - Fax 5654055 - Netfang: hlif@hlif.rl.is
Árlega fer stór hópur Íslendingatil Danmmerkur um mánaða-
mótin júní/júlí í þeim eina tilgangi
að baða sig í bjór, tónlist, lífrænum
mat og hugsanlega leðju.
Dagskrá Hróarskeldu í ár er enn
í mótun en stærstu nöfnin hingað til
eru David Bowie, Korn, Morrissey,
N.E.R.D., Pixies, Santana og Wu-
Tang Clan. Það verður þó að hafa
fyrirvara á röppurunum í Wu sem
eru þekktir fyrir að draga fyrirhug-
aðar framkomur sínar á tónleikahá-
tíðum í Evrópu til baka. Síðast áttu
þeir að leika á hátíðinni árið 1997
en mættu einfaldlega ekki.
Ekki má búast við að fleiri risa-
nöfn bætist í hópinn, þó það gæti
auðvitað gerst en án efa munu fleiri
athyglisverðar en lítt þekktari
sveitir bætast við á næstu vikum.
Af stórum „litlum“ sveitum sem
þegar hafa boðað komu sína má
nefna bresku rafsveitina Basement
Jaxx, Blackalicious, spútnik
rokksveitina Franz Ferdinand, The
Hives, Meshuggah, dönsku
rokksveitina Saybia sem átti
nokkra slagara hér, þýsku rafsveit-
ina Lali Puna og brautryðjendurna í
gítaróhljóðasveitinni Wire.
Unnendur hiphops fá svo eitt-
hvað fyrir sinn snúð þar sem út-
gáfufyrirtækið Lex Records stend-
ur fyrir tónleikum þar sem Sage
Francis og Danger Mouse koma
fram, ásamt fleirum.
Enn á það eftir að skýrast hvort
einhverjar íslenskar sveitir koma
fram á hátíðinni í ár en hefð hefur
verið fyrir því síðustu árin. Síðast
léku Ske, Sigur Rós, Björk og
Gusgus. Vitað er að frá Færeyjum
mun frændi okkar Teitur spila en
hann er á góðri leið með að verða
fyrsta stórstjarna eyjanna á heims-
vísu.
Miðað við þá tónleikadagskrá
sem Íslendingum er boðið upp hér
í sumar velta kannski einhverjir
fyrir sér hvort hin raunverulega
tónleikahátíð sé hér. Sérstaklega í
ljósi þess að tvær af stærstu
sveitunum á Hróarskeldu eru með
sértónleika hér, mánuði fyrr. ■
HEIDI
Stúlkurnar í Sugababes blésu á þá orð-
róma að þær væru eitthvað annað en
bestu vinkonur og virtust kátar á sviði. Að
minnsta kosti brosti Heidi út að eyrum.
Segja Virgin upp
DAVID BOWIE
Einhverjir höfðu bundið vonir við það að goðið myndi heimsækja Ísland á núverandi tón-
leikaför hans en áhugasamir verða að fara á Hróarskeldu til þess að sjá Bowie á tónleik-
um í sumar.
Hvað verður á
Hróarskeldu 2004?
Tónlist
HRÓARSKELDA
■ Nú styttist í sumarið og allar tónlistar-
hátíðarnar en hugsanlega gæti besta tón-
listarhátíðinni verið Reykjavík í sumar.