Fréttablaðið - 25.05.2004, Qupperneq 8
25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Landvernd ályktar um umhverfismál:
Vilja ákvæði
í stjórnarskrá
UMHVERFISMÁL Landgræðslu- og um-
hverfisverndarsamtök Íslands,
Landvernd, vill að komið verði inn
ákvæðum í stjórnarskrána um rétt
til heilnæms umhverfis og aðgengi
að náttúru landsins. Þetta kom fram
á aðalfundi samtakanna síðastliðinn
laugardag.
Tryggvi Felixson, framkvæmda-
stjóri Landverndar, segir rétt
Íslendinga til heilnæms umhverfis
og aðgangs að náttúru mikilvægan.
Myndi ákvæðið tryggja alla um-
fjöllun um umhverfismál og styrkja
stöðu umhverfisverndar.
„Við erum ekki með endanlega
mótaðar tillögur eða orðalag um
þetta, við viljum aðeins fá viðbrögð
við því hvort ekki sé full þörf fyrir
ákvæði af þessu tagi í stjórnar-
skránni. Margar þjóðir hafa séð
ástæðu til að festa þetta í grunnlög
landsins til dæmis Norðmenn“, seg-
ir Tryggvi.
Hann vill ekki meina að hugsun-
in á bak við þetta tengist virkjana-
framkvæmdunum á Austurlandi.
„Okkar hugsun er fyrst og
fremst sú að hægt sé að treysta á
umhverfisvernd með því að hún
eigi sér skírskotun í stjórnar-
skrána.“ segir hann.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra, segir ráðuneytið ekki hafa
skoðað þetta mál sérstaklega en
segir eðlilegt að allar góðar hug-
myndir séu skoðaðar. ■
Um 20% fyrsta
árs nema falla
Sautján til tuttugu prósent fyrsta árs nema falla á prófum í framhalds-
skólum. Nauðsynlegt er að koma í auknum mæli til móts við nemendur
með sértæka námsörðugleika.
BROTTFALL FRAMHALDSSKÓLA Sam-
kvæmt svörum frá tuttugu og
tveimur framhaldsskólum á land-
inu féllu um 17-20 prósent fyrsta
árs nema á prófum skólaárin 2002-
2003 og 2001-2002. Þetta kemur
fram í svari menntamálaráðherra
við fyrirspurn frá Guðrúnu Ög-
mundsdóttur, þingmanni Samfylk-
ingarinnar, á Alþingi um brottfall
nema úr framhaldsskólum.
Aðeins þrettán framhaldsskól-
ar veittu einhverjar tölulegar upp-
lýsingar um sértæka námsörðug-
leika nemenda skólaárið 2001-
2002 og fjórtán skólaárið 2002 til
2003. Þær upplýsingar sýna að um
fimmtíu til sjötíu fyrsta árs nemar
sem höfðu fallið á prófum áttu við
sértæka námsörðugleika að stríða.
Brottfall fyrsta árs framhalds-
skólanema hefur farið úr 16,5 pró-
sentum í 11,5 prósent frá árunum
1999-2003. Í svari ráðherra kemur
fram að upplýsingar vantar frá
allmörgum skólum.
Guðrún segir nauðsynlegt að
skoða þessar tölur og gera ráð-
stafanir.
„Brottfall hefur minnkað og
það er gott,“ segir Guðrún. „Hlut-
fallið er samt enn of hátt og of
margir eru að falla. Ég hef áhyggj-
ur af að þetta séu krakkar með
einhvers konar raskanir og flosni
úr námi. Það er mikilvægt að við
setjum af stað rannsóknarvinnu í
það að kortleggja þetta og ætla ég
mér að benda ráðherra á það.“
Guðrún segir að mikilvægt sé
að koma til móts við þarfir allra
nemenda.
„Þetta er spurning um marg-
breytileika náms og að koma til
móts við þarfir allra. Það er til
dæmis hægt að gera með því að búa
til styttri námsbrautir. Eins tel ég
mikla möguleika felast í því að gera
samning við lýðháskólana á Norð-
urlöndum sem við höfum ekki verið
partur af. Þannig að það eru mjög
margar áhugaverðar leiðir sem
hægt er að fara. Það þarf bara að
setjast niður og skoða vel alla þá
möguleika sem eru fyrir hendi því
þeir eru ótal margir,“ segir Guðrún.
halldora@frettabladid.is
Hafnaði lagasetningu:
Deilt um
skjöl KBG
LETTLAND, AP Vaira Vike-Freiberga,
forseti Lettlands, hefur neitað að
skrifa undir lög sem opna á aðgang
að leyniskjölum KGB um hvaða
Lettar unnu fyrir leyniþjónustuna þá
fimm áratugi sem landið var undir
stjórn Sovétríkjanna. Lögin banna
einnig að þeir sem störfuðu með
KGB gegni opinberu embætti næsta
áratuginn. Forsetinn óskaði eftir því
við þingið að það færi aftur yfir lög-
in sem það samþykkti og athugaði
sérstaklega hverjir ættu að fá að-
gang að skjölunum. ■
©
D
IS
N
EY
Taktu
galdr
apróf
.... á h
eimasíð
unni
www
.klubb
ar.is
og fin
ndu út
hvort
þú er
t
norn e
ða dís
eða h
vaða
stjör
nu þú
tilheyr
ir.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Hringdu strax í síma 522 2020
eða skráðu þig á www.klubbar.is.
Óvæntur fylgihlutur
fylgir með hverri mánaðarsendingu
Galdraskraut að gjöf
með annarri sendingu ef þú svarar
innan 10 daga
Fyrstu tvö blöðin á verði eins
690 kr.
fyrir tvö blöð
Göldrótt áskriftartilboð
að myndasögublaði sem slegið
hefur í gegn um allan heim:
Gítarnámskeið hefst 7. júní
EINKATÍMAR
Fyrir byrjendur og lengra komna
Sími 581 1281 • www.gitarskoli.com
GUÐRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR, ÞINGMAÐUR SAMFYLKINGAR
„Þetta er spurning um margbreytileika náms og nauðsyn þess að koma til móts við þarfir allra.“
NEMENDUR VIÐ MENNTASKÓLANN
Í REYKJAVÍK
Fall nemenda á fyrsta ári er mikið. Brottfall
framhaldsskólanema hefur minnkað frá
árinu 1999.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
N
AR
V
. A
N
D
RÉ
SS
O
N
FRÁ AÐALFUNDI LANDVERNDAR
Ólöf Guðný, formaður Landverndar, Sigríð-
ur Anna Þórðardóttir formaður umhverfis-
nefndar Alþingis og Rannveig Guðmunds-
dóttir alþingismaður.