Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.06.2004, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 13.06.2004, Qupperneq 2
2 13. júní 2004 SUNNUDAGUR Konan sem flutti inn 5.005 e-töflur nýtur Schengenréttinda: Leitað að samverkamönnum FÍKNIEFNI Ekki er hægt að greina frá framvindu rannsóknar í máli ófrískrar konu á þrítugsaldri, sem handtekin var á föstudag með 5.005 E-töflur í bakpoka, þar sem hún er í einangrun, segir Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. Hann segir rannsóknina beinast að því að upplýsa hverjir samverkamenn konunnar séu. Hún situr í gæslu- varðhaldi á Litla-Hrauni. Konan nýtur fullra réttinda sem íbúi Schengensvæðisins, seg- ir Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofnunarinnar. Hann segir að ófætt barn hennar fái sömu meðferð og börn annarra er- lendra ríkisborgara sem fæðast hér á landi. Georg segir að barnið yrði í umsjá barnaverndaryfir- valda óskaði móðirin þess. „Það er öruggt mál að barnið yrði ekki sent frá móðurinni ef hún afplán- ar hér á landi,“ segir Georg. Hann segir það háð mati barnaverndar- yfirvalda hvort fjögurra ára barn konunnar fái að koma til landsins óski móðirin þess. Guðrún Frímannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segir að kannaðar séu aðstæður í hverju og einu til- felli. Ekki sé hægt að svara á þessu stigi hverjir málavextir ófrísku konunnar hugsanlega yrðu í meðferð barnaverndaryfir- valda. ■ Konur geta haft unga- börn með sér í fangelsi Ófrísk kona var tekin með 5.005 e-töflur við komu til landsins á föstudag. Hún verður í tveggja vikna gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. Verði hún dæmd þarf hún aðeins að sitja inni helming refsivistarinnar segir sérfræðingur í afbrotamálum. FÍKNIEFNI Heimilt er að konur hafi börn að eins og hálfs árs aldri inn- an fangelsisveggja, segir Erlend- ur S. Baldursson, afbrotafræðing- ur og starfsmaður Fangelsis- stofnunar. Ófrísk kona var hand- tekin í Leifsstöð með 5.005 e-töfl- ur í bakpoka á föstudag. Hún verður í einangrun á Litla-Hrauni til tveggja vikna og á fjögurra til sex ára dóm yfir höfði sér verði hún sakfelld. Konan er frá Sierra Leone en með hollenskt vegabréf samkvæmt sýslumanni á Kefla- víkurflugvelli. Erlendur segir að algengt sé að erlendir ríkisborgarar sem af- pláni refsivist hér á landi sitji að- eins helming dómsins í stað þess að afplána tvo þriðju hluta hans eins og dæmdir landsmenn. „Það hefur verið reglan því tekið er tillit til þess að menn afpláni við miklu erfiðari aðstæður. Ættingj- ar eigi erfitt með að heimsækja viðkomandi og tungumálið sé erfitt,“ segir Erlendur. Erlendur segir að aðstæður til vistunar í eingangrun á Litla- Hrauni séu ágætar og að starfs- fólk sé þjálfað til að sjá um fang- ana en aldrei sé gott fyrir van- færar konur eða fólk í erfiðleik- um að vera í einangrun.“ Það er náttúrulega ekki við sem ákveð- um það heldur dómarinn sem úr- skurðar í gæsluvarðhald.“ Erlendur segir að þegar ein- angruninni ljúki fari konan væntanlega í kvennafangelsið í Kópavogi. Þar njóti hún umönn- unar hjúkrunarstarfsfólks, fari í mæðraskoðanir og fæði á sjúkrahúsi. Hún komi síðan aft- ur í fangelsið þegar læknir met- ur að það sé í lagi.“ Fangelsi eru ekki byggð fyrir börn en þau mál verða bara leyst. Það eru eins manns herbergi í Kópavogs- fangelsinu og það er hægt að hafa þar kornabarn. Það verður gert ef til þess kemur,“ segir Er- lendur. Ekki er útilokað að konan af- pláni í Hollandi en það þyrftu hollensk yfirvöld að samþykkja sem getur tekið langan tíma, segir Erlendur. Hann bendir á að málið sé á frumstigi og enn sé allt óljóst. „Einhverra hluta vegna valdi hún að gera þetta og slapp ekki með það. Þá tekur hún afleiðingunum af því eins og aðrir verði hún dæmd,“ segir Erlendur. gag@frettabladid.is SLÖKKVILIÐIÐ AÐ STÖRFUM Við útkallið lögðu tveir sjúkrabílar og tveir dælubílar slökkviliðsins af stað. Öðrum slökkvibílnum var snúið og tók útkallið að- eins tuttugu mínútur. Kveikti í rúmi: Lítill drengur með eldspýtur ELDUR Lítill drengur kveikti í rúm- inu sínu í kjallaraíbúð í fjölbýli við Flókagötu. Slökkviliðinu var tilkynnt um brunann fimm mínútur yfir átta í gærkvöldi og hafði lokið störfum tuttugu mínútum síðar. Reykkaf- arar slökktu eldinn og reykræsta þurfti íbúðina. Töluvert miklar skemmdir urðu á herbergi drengsins. ■ ■ AMERÍKA ■ LÖGREGLUMÁL Jú, þetta er alveg fráleit hugmynd enda eru það knattspyrnuáhuga- menn sem helst sækja svona sýning- ar. Núna þurfa því aðrir að sýna lit. Myndlistarsýning Þorvalds Þorsteinssonar var opnuð í fyrrakvöld en í gær hófst Evrópumótið í knattspyrnu. SPURNING DAGSINS Þorvaldur, er það ekki vitleysa að frumsýna á sama tíma og EM byrjar? BERJAST ÁFRAM Mahmoud Zahar, einn af leiðtogum Hamas segir árásir munu halda áfram. Hamas: Ætla að halda áfram árásum GAZABORG, AP Háttsettur leiðtogi palestínsku Hamas-samtakanna, Mahmoud Zahar, sagði í gær að samtökin myndu halda áfram árásum sínum á Ísrael hvort sem Ísraelar drægju herlið sitt frá Gazaströndinni eða ekki. Forsæt- isráðherra Palestínu, Ahmed Qureia heimsótti Gaza í gær til samráðsfundar við háttsetta heimamenn um framtíð svæðsins. Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í síðustu viku áætlun Ariels Shar- ons forsætisráðherra um brott- flutning ísraelskra landnema og herliðs frá Gazaströndinni. ■ Brautskráning Kennaraháskólans: Kennaranámið lengt SKÓLAMÁL Rektor Kennarahá- skóla Íslands telur að huga beri að lengingu kennaranáms á Íslandi og færa það til jafns við það sem tíðkast í nágrannalönd- unum. Í ávarpi sínu við brautskrán- ingu skólans í gær sagði Ólafur Proppé, rektor KHÍ, að það gæti orðið markmið að bjóða nýtt lengra og betra kennaranám við aldarafmæli skólans árið 2007, „...sem tæki mið af breyttum og sívaxandi kröfum samfélagsins og því besta sem læra má, m.a. af öðrum þjóðum á þessu sviði. Slík tímasetning væri í takt við spá Ríkisendurskoðunar um að eftir 2008 hafi tekist að manna grunn- skóla landsins með réttindakenn- urum og því enn minni ástæða til að viðhalda styttra kennaranámi þess venga, eins og stundum hef- ur verið haldið fram“. 478 kandítatar brauðskráðust frá KHÍ í gær og hafa aldrei fleiri kandídatar verið brautskráðir í einu frá skólanum. ■ BAKPOKINN Konan sem handtekin var í Leifsstöð á föstudag er 26 ára gömul og ættuð frá Sierra Leone í Afríku. Hún er með hollenskt flóttamannavegabréf. Georg Lárusson segir að því verði málin betur skoðuð en hún njóti fullra réttinda eins og aðrir Schengen- íbúar. Konan er komin fimm mánuði á leið og á einnig fjögurra ára gamalt barn úti. ÚTSKRIFAÐIST MEÐ AFASYSTUR SINNI Frænkurnar Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Ásdís Hallgrímsdóttir útskrifuðust saman úr Kennaraháskóla Íslands í gær. Ásdís er afasystir Hugrúnar og höfðu frænkurnar ríka ástæðu til að gleðjast í gær. ERLENDUR BALDURSSON Afbrotafræðingur segir að fordæmi séu fyrir því að konur fæði börn í refsiafplánun og einnig að konur hafi haft hjá sér ungabörn. „Það er ekki gott fyrir barn sem er farið að skynja umhverfi sitt að vera í fangelsi.“ Konan á fyrir fjögurra ára barn í Hollandi. Erlendur segir að engar líkur séu á að það komi hingað til lands. KITLAR FÆREYSKA BRAGÐLAUKA Neysla á pitsum hefur tífaldast í Færeyjum undanfarin ár. Færeyingar: Elska pitsur og sódavatn FÆREYJAR Færeyingar hafa tekið miklu ástfóstri við pitsur og sóda- vatn og hefur færeyski landlæknir- inn af þessu miklar áhyggjur enda hefur neysla á þessum vörum tí- faldast á síðustu átta árum. Hann telur þýðingarmikið að koma á framfæri skilaboðum um skaðsemi þessarar neyslu og hefja fyrir- byggjandi aðgerðir sem fyrst. Fær- eyska ríkisútvarpið skýrði frá þessu en ársskýrsla landlæknis landsins er nýkomin út. ■ MIKILL HAGVÖXTUR Eftir algjört hrun argentínsks efnahagslífs í árslok 2001 hefur hagvöxtur numið tíu prósentum tvö ár í röð. Búist er við átta prósenta hag- vexti í ár en tæpra fjögurra pró- senta hagvexti á næsta ári. Þrátt fyrir þetta er atvinnuleysi enn mikið, um fimmtán prósent. KVEIKT Í BÍL Lögreglunni í Kópa- vogi barst tilkynning klukkan hálf- ellefu í fyrrakvöld um eldsvoða í bíl við Bláfjallaveg. Þegar slökkvilið mætti á staðinn var bifreiðin alelda en vel gekk að ráða niðurlögum elds- ins. Talið er að um íkveikju hafi ver- ið að ræða en enginn var í grennd við bílinn. Málið er í rannsókn. AMFETAMÍN Í BÍL Þá hafði lögreglan í Kópavogi afskipti af þremur mönnum í bíl sem voru grunaðir um fíkniefnamisferli. Eitthvað magn af amfetamíni fannst við leit í bílnum og mennirnir voru færðir til yfir- heyrslu en sleppt að þeim loknum. Málið er í rannsókn. ÖLVUN OG BÍLÞJÓFNAÐUR Lögregl- an á Selfossi stöðvaði alls fjóra öku- menn grunaða um ölvunarakstur í fyrrinótt. Sýni voru tekin úr þeim og málin eru í rannsókn. Rauðum Mitsubishi Pajero, árgerð 1990, var stolið í gær á Selfossi. Bíllinn var ekki kominn í leitirnar þegar blaðið fór í prentun. Þá var fellihýsi stolið við sumarbústað við Nesjar, en óvíst er hvenær því var stolið því það stendur yfirleitt við bústaðinn og eigandinn er búsettur erlendis. Fellihýsið er hvítt og hefðbundið í útliti en er með gula númeraplötu með númerinu MT 296. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Friðarverðlaunahafi: Styður fram- boð Ástþórs FORSETAKOSNINGAR Oscar Arias Sanches, fyrrverandi forseti Kosta Ríka og handhafi friðarverðlauna Nóbels, hefur lýst yfir stuðningi sínum við Ástþór Magnússon for- setaframbjóðanda. Sanches telur að vægi smáþjóða til að stuðla að friði sé heilmikið. Máli sínu til stuðnings nefnir hann að í sinni forsetatíð hafi Kosta Ríka átt stóran þátt í að miðla málum og koma á stöðugleika í Mið- Ameríku á níunda áratugnum. Þá segir Sanches Ástþór vera hug- sjónamann og líkir honum við Don Kíkóta í baráttu sinni fyrir friði. Sanches studdi Ástþór einnig í for- setakosningunum 1996. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.