Fréttablaðið - 13.06.2004, Qupperneq 4
4 13. júní 2004 SUNNUDAGUR
Banatilræði í Írak:
Ráðherra myrtur
ÍRAK, AP Bassam Salih Kubba,
varautanríkisráðherra hinnar
nýju Íraksstjórnar, var skotinn til
bana á leið sinni til vinnu í gær.
Talið er að stuðningsmenn Sadd-
ams Hussein hafi myrt hann.
Kubba er annar háttsettur
embættismaður í Írak sem er ráð-
inn af dögum á síðastliðnum mán-
uði, en 17. maí var Izzadine
Saleem, yfirmaður framkvæmda-
ráðs Íraks, myrtur í sjálfs-
morðsárás. Íraskur borgari lést
einnig í gær og fjórir slösuðust í
skothríð milli bandarískra her-
sveita og andspyrnumanna. Verð-
andi ríkisstjórn hefur þó borist
stuðningur úr óvæntri átt; hinn
róttæki Sjíta-klerkur, Muqtada
al-Sadr, hefur lýst því yfir að hann
sé reiðubúinn til að setjast að
samningaborðum með stjórninni,
verði það til þess að Bandaríkja-
menn hverfi af landi brott.
Bandarísk yfirvöld segjast
fagna sáttaumleitan al-Sadr en
taka henni með fyrirvara. Þau
hafa ennfremur varað við skær-
um þegar nýja ríkisstjórnin tekur
við völdum þann 30. júní næst-
komandi. Þá lýkur hernáminu
undir forystu Bandaríkjanna
formlega séð, en bandarískar her-
sveitir eru þó síður en svo á för-
um. Samkvæmt ályktun sem
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti síðastliðinn þriðjudag,
hefur hernámsliðið frest til ársins
2006 til að yfirgefa landið. ■
Hringbraut í opinn stokk
Átakshópur um betri byggð hefur lagt til að Hringbraut verði grafin í opinn stokk til að bjarga land-
rými. Lítil röskun á framkvæmdum segir forsvarsmaður. Borgarfulltrúa hugnast ekki tillagan.
SAMGÖNGUR Tillagan felst í því að
yfirborð Hringbrautar verði
lækkað um þrjá til fjóra metra á
um 600 metra löngum kafla sunn-
an Landspítala og
U m f e r ð a r m i ð -
stöðvar að áætl-
uðum gatnamót-
um við Bústað-
aveg og Njarðar-
götu. Þannig lægi
umferðin í gegn-
um opinn stokk
sem mætti loka
og byggja yfir ef
byggingarrétti yrði úthlutað við
Hringbraut.
Samtökin segja tillöguna falla
hnökralaust að þeim framkvæmd-
um sem þegar eru hafnar og kosti
ekki meira en núverandi fram-
kvæmd. Hún bjargi hins vegar ell-
efu hekturum af landi að verðmæti
ellefu milljarða króna, þegar allt
er talið til. Nauðsynlegar breyting-
ar á hönnun brautarinnar yrðu í
lágmarki og myndu ekki hafa áhrif
á meginframgang verksins.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
formaður skipulags- og bygging-
arnefndar Reykjavíkurborgar,
segir að sér hugnist ekki tillagan.
„Annað hvort er gatan í lokuðum
stokk eða ofanjarðar eins og nú er.
Það yrði mikið lýti á umhverfinu
að hafa opinn stokk í götunni auk
þess sem því fylgir slysahætta.“
Steinunn segir ennfremur að opn-
ir stokkar þekkist ekki erlendis og
telur hún að áætlun samtakanna
um verðmæti landsins sé ofmat.
Örn Sigurðsson, forsvarsmað-
ur átakshóps Höfuðborgarsam-
takanna segir að fullyrðingar
Steinunnar séu ekki réttar. Opnir
stokkar séu alþekktir og sem
dæmi má nefna gjána í Kópa-
vogi. Þá gefur hann lítið fyrir
umhverfislýti og slysahættu af
stokknum. „Það er minni sjón-
mengun af götunni ef hún er
grafin niður, hraðbrautir þykja
ekki mikil prýði.“ Þá bendir hann
á að það sé ekki minni slysa-
hætta af hraðbrautum en opnum
stokk. Örn segir ennfremur að
áætlað verðmætamat sé síður en
svo ofmat. „Þetta er samkvæmt
stöðlum sem hægt er að reikna.
Þá finnst mér undarlegt að ekki
er hægt að fá borgaryfirvöld til
að leggja mat á verðmæti bygg-
ingarlands. Allur röksemdaflutn-
ingur yfirvalda er byggður á
öfugmælum og útúrsnúningum.“
bergsteinn@frettabladid.is
Bush áttræður:
Fer í fall-
hlífarstökk
BANDARÍKIN, AP George H.W. Bush,
fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætl-
ar sér að halda upp á 80 ára afmæli
sitt með því að fara í fallhlífarstökk
um helgina.
Bush og eiginkona hans, Bar-
bara, verða við útför Ronalds
Reagan, fyrrverandi Bandaríkja-
forseta, á föstudag en halda að því
loknu heim til Houston þar sem þau
halda upp á afmæli forsetans fyrr-
verandi á laugardag. Á sunnudegin-
um ætlar Bush svo að stökkva út úr
flugvél í fallhlíf. Það gerði hann líka
á 75 ára afmæli sínu og ennfremur í
seinni heimsstyrjöld þegar hann
var flugmaður í flotanum. ■
■ EVRÓPA
,,Það er
minni sjón-
mengun af
götunni ef
hún er graf-
in niður.
Styður þú fyrirhugað verkfall
kennara?
Spurning dagsins í dag:
Ferðu í laxveiði í sumar?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
62%
38%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Ódæðið í Oklahoma:
Dauðarefs-
ing út úr
myndinni
OKLAHOMA, CNN Annar tveggja sak-
borninga vegna sprengutilræðis-
ins í Oklahoma árið 1995 mun ekki
verða tekinn af
lífi þrátt fyrir að
hafa verið sak-
felldur fyrir
morð. Kviðdóm-
ur í málinu
komst ekki að
niðurstöðu um
refsingu Terrys
Nichols og því
mun dómarinn
ekki eiga kost á
því að úrskurða
um dauðarefs-
ingu.
Næstkomandi föstudag, 18.
júni, verða nákvæmlega þrjú ár
liðin frá því að samverkamaður
Nichols, Timothy McVeigh, var
tekinn af lífi fyrir þátt sinn í
sprengingunni í ráðhúsi Oklahoma
sem varð 168 manns að bana. ■
Umferðarslys í Kópavogi:
Sex ára
barn
slasaðist
UMFERÐARSLYS Sex ára gamalt
barn slasaðist lítillega þegar
tveir bílar rákust hvor á annan á
Arnarnesvegi, rétt fyrir klukk-
an þrjú í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu voru bílarnir að koma
úr gagnstæðri átt og var annar
að beygja af Reykjanesbraut
inn á Arnarnesveg þegar slysið
varð. Tvö börn voru farþegar í
öðrum bílnum en ökumaður var
einn í hinum. Glerbrotum rigndi
yfir barnið sem slasaðist og
hlaut litla skurði en lögreglan
segir að ekki hafi mátt miklu
muna að verr hafi farið. Kona
sem ók bílnum með börnunum í
kvartaði yfir eymslum og var
hún og annað barnið flutt á
slysadeild til aðhlynningar. Báð-
ir bílarnir voru mikið skemmdir
og voru dregnir af slysstað. ■
GAMLI TÍMINN?
Bretar prófuðu póstkosningar og hér hafa
sumir mælt með því að kjósa megi gegn-
um tölvu.
Póstkosningar:
Kjörsókn
tvöfaldast
BRETLAND Tilraunir með póst-
atkvæðagreiðslu í bresku sveitar-
stjórnarkosningunum virðast hafa
borið góðan árangur. Í það minnsta
tvöfaldaðist kjörsókn á mörgum
þeim svæðum þar sem hægt var að
greiða atkvæði í pósti. Í norðvestur-
hluta landsins fór kjörsókn úr tæp-
um tuttugu prósentum í nær 40 pró-
sent.
Efasemdarmenn um ágæti póst-
kosninga hafa lýst áhyggjum af því
að auðveldara sé að svindla í póst-
kosningum en hefðbundnum kosn-
ingum. Þeir sem sáu um fram-
kvæmdina vísa því á bug en ætla að
láta meta hvort almenningur beri
sama traust til póstkosninga og
hefðbundinna kosninga. ■
MÁLI PAPONS LOKIÐ Æðsti dóm-
stóll Frakklands hefur hafnað
beiðni Maurice Papon um að mál
hans verði tekið upp á nýjan leik.
Papon var dæmdur fyrir glæpi
gegn mannkyninu árið 1998, fyrir
samstarf við nasista í síðari
heimsstyrjöld. Hann hefur alla
tíð haldið fram sakleysi sínu.
Financial Times fjallar um Ísland:
Segir alvarlega stjórnskipunarkreppu ríkja
FJÖLMIÐLAR Breska blaðið Financi-
al Times gerði stóra fjölmiðla-
lagamálið á Íslandi að umfjöllun-
arefni í gær og sagði alvarlega
stjórnskipunarkreppu ríkja í
landinu. Raunar þá verstu á lýð-
veldistímanum, eftir að Ólafur
Ragnar Grímsson forseti Íslands
synjaði lögum um eignarhald á
fjölmiðlum staðfestingar.
Blaðið segir frá erjum forset-
ans, Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra, og Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar forstjóra Baugs og rekur
ýmislegt sem þeim hefur farið á
milli, t.d. ásakanir um mútuboð.
Þá er greint frá meintri óvild for-
sætisráðherra í garð KB banka og
rifjað upp þegar hann tók út inn-
eign sína í bankanum vegna
kjarasamninga æðstu starfs-
manna hans.
Financial Times segir fjöl-
miðlalögin fela í sér strangari tak-
markanir á eignarhaldi fjölmiðla
en tíðkast annars staðar í Evrópu
en í samtali við blaðið líkir Illugi
Gunnarsson, aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, ástandinu á
Íslandi við ef breska verslunar-
keðjan Tesco ætti helming sjón-
varpsstöðva á Bretlandi og tvö af
hverjum þremur dagblöðum. ■
VANDLEGA GÆTT
Sakborningurinn
Terry Nichols mætir
til réttarhaldanna í
fylgd lögreglu-
manna.
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON DAVÍÐ ODDSSON ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
HUGMYNDIR ÁTAKSHÓPSINS
Svona líta hugmyndir átakshópsins út miðað við áætlun Reykjavíkurborgar.
ÖRN SIGURÐSSON
Málflutningur borgaryfirvalda byggist
á öfugmælum.
BIFREIÐ KUBBA
Varautaríkisráðherrann var skotinn til bana
í bifreið sinni.
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
Opinn stokkur væri umhverfislýti og slysa-
gildra.