Fréttablaðið - 23.06.2004, Page 28

Fréttablaðið - 23.06.2004, Page 28
20 23. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR Þjálfari Spánverja keikur þrátt fyrir hrakfarirnar á EM Saez ekki að hætta EM Í FÓTBOLTA Þjálfari spænska landsliðsins í knattspyrnu, Inaki Saez sem er 61 árs, ætlar ekki að hætta með liðið þrátt fyrir slælegt gengi – nánast hrakfarir – á EM í Portúgal. Hann gerði tveggja ára samn- ing við spænska knattspyrnusam- bandið rétt fyrir EM og hefur í hyggju að virða þann samning. Einhverra hluta vegna virðist spænska knattspyrnusambandið vera á sama máli. Inaki Saez tók við stjórn spænska landsliðsins í júlí 2002 og hefur á þeim tíma stjórnað liðinu í 23 leikjum. Af þeim hafa reyndar aðeins tapast tveir en það gefur þó varla rétta mynd af stöðu liðs- ins. Vissulega er enginn hörgull á góðum spænskum knattspyrnu- mönnum en þegar komið er á stór- mót eru þeir með allt lóðrétt niður um sig. Vandséð er að Inaki Saez geti gert eitthvað í því. ■ Tek einn dag í einu Guðmundur Benediktsson, sem átt við mikil meiðsli að stríða. kom inn á sem varamaður hjá KR, skoraði tvívegis og tryggði sigur gegn Fram FÓTBOLTI KR bar sigurorð af Fram á í Vesturbænum á mánudags- kvöldið í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. 3-0 varð lokastaðan í daufum og allt að því leiðinlegum leik. Engin spurning er þó um að KR-liðið er að þéttast með hverjum leik, og þá sér í lagi vörnin, sem er orðin virkilega sterk og þá er miðjan að hressast. Það sem vantar helst er sprækari framlína en innkoman hjá Guð- mundi Benediktssyni gefur KR- liðinu einhverjar vonir. Framarar voru bitlausir og hugmyndasnauðir lungann úr leiknum og allan neista vantaði í liðið. Aðstæður voru ekkert sérlega góðar fyrir knattspyrnuiðkun, vindur og sterk sól. KR-liðið var sterkari aðilinn mestallan leiktímann en þó var sóknarpressa afar lítil. Framarar náðu þokkalegum kafla í byrjun síðari hálfleiks sem varði í rétt rúmt korter – eftir það gerðist lítið hjá þeim. KR gulltryggði þó ekki sigur- inn fyrr en undir blálokin með tveimur mörkum frá Guðmundi Benediktssyni, sem komið hafði inn á sem varamaður í stað Arn- ars Gunnlaugssonar á 67. mínútu. Guðmundur vildi gera sem minnst úr sínum þætti í sigrinum þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. „Það er alltaf gaman að skora og óneitanlega var þetta skemmti- leg innkoma. Sigurinn er þó fyrir mestu og það að við erum á réttri leið. Vörnin er orðin þéttari og það fleytir okkur hálfa leið að sigri og gerir miðjumönnunum og sóknarmönnunum lífið léttara. Nú er að halda áfram að bygg- ja ofan á þetta sem komið er og skerpa á sóknarleiknum.“ Hvað hann sjálfan varðar sagði Guðmundur: „Það er einn dagur í einu – það hefur reynslan kennt mér – ef ég er heill heilsu á morgun, er ég sáttur.“ „Það var ekki svo mikið sem skildi liðin að fyrr en við færðum þeim seinna markið á silfurfati undir lokin,“ sagði Ríkharður Daðason eftir leik. Rýr uppskera „Allt fram að seinna markinu vorum við inni í leiknum og vor- um á kafla í seinni hálfleik meira ógnandi. Staðan hjá okkur er afar einföld núna; Við verðum að gjöra svo vel og taka okkur saman í and- litinu – annars fer illa. Hins vegar er eitt stig í síðustu þremur leikj- um heldur rýr uppskera miðað við hvernig liðið er búið að spila. Jafnvægið er ekki nógu gott og við virðumst ekki alveg hitta á góðan leik allir saman en það verður að fara að gerast,“ sagði framherjinn Ríkharður Daðason, sem mátti sín lítils í framlínu Framara í leiknum. sms@frettabladid.is INAKI SAEZ Ekki hættur! GARÐAR GUNNLAUGSSON Genginn til liðs við Val frá ÍA Félagaskipti í boltanum: Garðar til Valsmanna FÓTBOLTI Garðar Gunnlaugsson gekk í gær í raðir Valsmanna frá ÍA og skrifaði hann undir þriggja ára samning við Hlíðarenda- félagið. Garðar, sem hefur fengið fá tækifæri það sem af er sumri með Skagaliðinu, sagði í samtali við Fréttablaðið að nokkur lið hefðu verið að bera víurnar í sig undan- farnar vikur. „Ég fer til Vals því að þetta er stórt lið, með góða leikmenn og stjórn, og ætlar sér stóra hluti á næstu árum,“ sagði Garðar og bætti við að það væri lítil eftirsjá af Skaganum. ■ LANDSBANKADEILD KARLA Fylkir 6 4 2 0 9–3 14 KR 7 3 2 2 9–7 11 Keflavík 6 3 1 2 7–9 10 ÍBV 6 2 3 1 10–6 9 ÍA 6 2 3 1 7–5 9 FH 6 2 3 1 7–6 9 Grindavík 6 1 4 1 5–6 7 KA 6 2 1 3 5–6 7 Fram 6 1 2 3 7–8 5 Víkingur 6 0 1 5 3–10 1 MARKAHÆSTIR Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV 5 Arnar Gunnlaugsson, KR 4 Atli Sveinn Þórarinsson 4 Grétar Hjartarson, Grindavík 4 Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV 3 Sævar Þór Gíslason, Fylki 3 ■ STAÐA MÁLA 1–0 Arnar Gunnlaugsson, víti 41. 2–0 Guðmundur Benediktsson 87. 3–0 Guðmundur Benediktsson 90. DÓMARINN Egill Már Markússon góður BESTUR Á VELLINUM Guðmundur Benediktsson KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 16–6 (9–3) Horn 7–1 Aukaspyrnur fengnar 21–15 Rangstöður 0–7 GÓÐIR Guðmundur Benediktsson KR Arnar Jón Sigurgeirsson KR Kristinn Hafliðason KR Gunnar Einarsson KR Kristján Örn Sigurðsson KR Gunnar Sigurðsson Fram Heiðar Geir Júlíusson Fram ■ FRAM – KR 3-0 ARNAR GUNNLAUGSSON Skoraði fyrsta mark KR-inga í gær og sitt fjórða mark í deildinni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.