Fréttablaðið - 25.06.2004, Qupperneq 26
Sokkabuxur verða alltaf að passa við skóna sem þú ert í.
Ef þú ert í tvílitum skóm þá er hægt að vera í sokkabuxum
í hlutlausum lit. Einnig er hægt að klæðast sokkabuxum
í sama lit og daufari liturinn í skónum. Vandamálið leyst!
„Mér finnst bara langbest að vera
í mjög þægilegum fötum sem
passa,“ segir Þórey Edda Elísdótt-
ir stangarstökkvari. „Ég á einar
þröngar, léttar og venjulegar æf-
ingabuxur sem ég er mjög oft í og
eru svona í uppáhaldi. Svo á ég
flottar Diesel-gallabuxur sem
mér finnst gott að vera í. Ég á líka
flísbuxur frá 66 gráðum norður
sem ég nota mikið,“ segir Þórey,
sem er mikið fyrir föt sem hún
getur bæði æft í og notað hvers-
dagslega.
„Mér finnst voða þægilegt að
skella mér bara í gallabuxur ef ég
er að fara eitthvað. Svo ef ég er að
fara að skemmta mér þá get ég
alltaf keypt mér einhvern sætan bol
við,“ segir Þórey. Henni finnst þó
alls ekkert leiðinlegt að punta sig.
„Þegar ég fer eitthvert fínt klæði ég
mig aðeins upp og mér finnst gam-
an að hafa mig til. Þegar ég var í
skóla fannst mér til dæmis mjög
gaman að hafa mig til og klæða mig
aðeins fínna en vanalega,“ segir
Þórey. Hún er nú búsett í Þýska-
landi og mun taka tvo áfanga í skóla
í fjarnámi. „Ég get þá verið í
íþróttabuxunum í skólanum – heima
í stofu,“ segir Þórey og hlær.
„Vinnan mín núna býður ekki
upp á mikil fatakaup. Ef ég kaupi
einhver föt þá þarf ég ekki mikið
að nota þau,“ segir Þórey. „Ég æfi
ellefu sinnum í viku og er því í
íþróttagallanum frá því ég vakna
og þangað til ég fer að sofa,“ seg-
ir Þórey, en hún setti eins og
kunnugt er nýtt Íslandsmet og
Norðurlandamet á dögunum. Þar
bætti hún sinn eigin árangur um
níu sentímetra.
lilja@frettabladid.is
Þægileg föt sem passa:
Getur bæði æft í þeim
og notað hversdagslega
Þóreyju Eddu Elísdóttur stangarstökkvara finnst best að vera í
þægilegum fötum sem passa vel og hefur dálæti á gallabuxum.
Nýja sumarlínan frá MAC-snyrtivörunum
er fersk, litrík og nýstárleg eins og venjan
er með vörurnar frá MAC.
Línan, sem er væntanleg í næstu viku, er
þrískipt; Gilt fyrir húðina, Tantress fyrir
andlit og augu og Lusterglass fyrir varirnar.
Gullin húð er eftirsóknarverð yfir sumar-
mánuðina og þessi gyllta og glansandi
lína uppfyllir óskir þeirra sem vilja frísklegt
útlit án mikilla sólbaða.
Gilt-línan er bæði ætluð konum og körl-
um og kemur í mismunandi litatónum.
Augnskuggarnir, gljáinn og glossin eru
fáanleg í mörgum fallegum litum sem fara
vel við glæsilega gyllta húðina.
Það er líka margt annað í boði hjá MAC
því þetta er mjög fjölbreytt snyrtivörufyrir-
tæki og býður upp á ólíkar línur fyrir ólík
tækifæri.
Allt er fáanlegt hjá MAC; dagfarðinn fyrir
fóstruna, fína púðrið fyrir brúðina og
glamúrinn fyrir næturdrottninguna.
www.maccosmetics.com
MAC-snyrtivörur:
Litríkar
og nýstárlegar
Augnskuggar „Tantress“
Augnglans „Tantress“
Gyllt krem fyrir and-
lit og líkama „Gilt“
Varalitur „Tantress“
Varagloss „Lusterglass“
Stöðugt verður algengara að kon-
ur skarti ásettum nöglum. Þróun-
in í naglaásetningum hefur verið
mjög hröð að undanförnu og mik-
ið um nýjungar.
Íris ívarsdóttir, eigandi Nagla-
fegurðar og Icelandic Beauty-
skólans, segir litagleði og glimm-
er það nýjasta í akrýlnöglunum.
„Það eru ýmis glær tips og svo
hvaða litur sem er. Nöglin sjálf
getur verið í lit og hvíta röndin í
öðrum lit. Þetta er mjög sniðugt
til dæmis þegar konur eru að
klæða sig upp í samkvæmiskjóla,
þá geta þær verið með tvílitar
neglur, til dæmis bláar og gylltar
eða rauðar og gylltar.“
Íris segir glimmerið mjög vin-
sælt og hafa verið í tísku um hríð
en litirnir í sumar eru gult, appel-
sínugult, bleikt og turkísblátt.
Margar konur eru hræddar um
að þeirra eigin neglur eyðileggist
við naglaásetninguna en Íris segir
það óþarfa áhyggjur. „Neglurnar
geta orðið ljótar ef konur rífa
ásettu neglurnar sjálfar af. Það
þarf að pússa neglurnar af og nota
sérstakt efni sem hægt er að
kaupa á stofum. En það er mikil
vinna að pússa neglurnar niður og
best að láta gera það á stofu.“
Hvers vegna fá konur sér ásett-
ar neglur?
„Neglurnar vilja klofna á veturna
og það getur verið erfitt að ná þeim
góðum. Svo vilja konur hafa beina
lagið á nöglunum og ná ekki sínum
eigin þannig. Þetta er líka fallegt og
snyrtilegt og þarf ekkert að hugsa
um þær nema láta laga neglurnar við
naglaböndin á mánaðar fresti. Lakk-
ið dugir í þrjár vikur og það er hægt
að hafa neglurnar í hvaða lengd sem
er. Svo er þetta sniðug lausn fyrir
þær sem naga neglurnar.“
Venjuleg neglaásetning kostar
5.000 krónur, en með litum, skrauti
eða glimmer kostar hún 6.000
krónur. ■
Flottar neglur fyrir allar konur:
Með glimmeri og blómum og lakki sem endist
Íris Ívarsdóttir segir mikið að gerast í ásettum nöglum og alltaf einhverjar nýjungar,