Fréttablaðið - 06.08.2004, Side 6

Fréttablaðið - 06.08.2004, Side 6
6 6. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR Skipta þurfti um flugvél á Spáni: Haglél seinkar Sumarferðum SAMGÖNGUR Seinkun varð á flugi ferðaskrifstofunnar Sumarferða til og frá Alicante á Spáni vegna hagléls á Spáni. Flugvélin sem átti að flytja farþega á milli Spánar og Íslands fékk á sig haglél í fyrradag þannig að lakk á nefi flugvélarinn- ar flagnaði af. 212 farþegar áttu að fara með sömu vél til Spánar í há- deginu í gær. Að sögn Helga Péturssonar, framkvæmdastjóra Sumarferða, er viðkvæmasti búnaður flugvéla í nef- inu og því hafi ekki annað verið hægt en að skoða vélina vandlega. Því hafi þurft að bíða þess að önnur vél og áhöfn kæmu til Spánar til að flytja farþegana heim til Íslands. „Við vissum fyrst að þetta yrði raun- in klukkan rúmlega níu í gærmorg- un og hófum þá strax að hringja í farþega sem voru á leið frá Íslandi til Spánar til að láta þau vita að flug- inu seinkaði töluvert,“ segir Helgi. Helgi segir að náðst hafi í flesta farþegana og þeir látnir vita að fluginu seinkaði þar til um kvöld- matarleytið í gær. Einhverjir hefðu þó verið komnir til Keflavíkur og var þeim boðið upp á tvær máltíðir í flugstöðinni. ■ Gætu grætt milljarð Burðarás jók hlut sinn í Singer and Friedlander. Ef KB banki yfirtekur breska bankann geti skammtímahagnaður Burðaráss slagað í milljarð króna. Hugsanlegt er að kaupin seinki yfirtöku KB banka. VIÐSKIPTI Burðarás keypti í gær tæp fimm prósent í breska bankanum Singer and Friedlander. Þar með á Burðarás rúm átta prósent í bank- anum eða sem nemur hátt á fimm- ta milljarð króna. Fyrir á KB banki 19,5 prósenta hlut í bankanum, and- virði rúmra tíu milljarða. S a m k v æ m t heimildum hefur fjárfesting Burða- ráss verið í undir- búningi um nokk- urt skeið. Mark- miðið með henni er skammtíma- hagnaður vegna mats á því að KB banki taki bank- ann yfir. Burðarás hefur flutt úr landi um tíu milljarða króna til erlendra fjárfestinga. Sérfræðingar á mark- aði telja að Björgólfur Thor Björg- ólfsson, stjórnarformaður Burðar- áss, sé maðurinn á bak við þessa fjárfestingu. Innan KB banka gætir ákveð- ings pirrings yfir því sem menn kalla hugmyndaleysi; að verpa í hreiður annarra. Landsbankinn ræður för í Burðarási og núningur vegna baráttu um danska FIH bankann situr enn í mönnum. KB bankamenn telja að aðkoma Lands- bankans hafi kostað KB banka sjö milljarða króna. KB banki getur auðveldlega komið í veg fyrir yfir- töku Burðaráss og hugsanlegt að ef Burðarás þvælist fyrir yfirtök- unni, þá muni KB banki einfaldlega bíða með að hefja yfirtökuferlið. Slík störukeppni verði þó sennilega hvorugum til hagsbóta. Algengt er að greitt sé 15 til 20 prósenta álag frá markaðsgengi við yfirtöku. Hins vegar er þá horft framhjá hækkunum sem verða vegna væntinga um yfirtöku. Lík- legt er að Burðarás vilji skjótan hagnað, fremur en að liggja lengi með svo stóra fjárfestingu upp á óvissa von um frekari ávinning. Burðarás gæti ef væntingar ganga eftir hagnast um milli hálfan og einn milljarð á fjárfestingunni. Fulltrúar Burðaráss hafa ekki tjáð sig um stefnuna með fjárfest- ingu sinni öðruvísi en með vísun í fjárfestingarstefnu sína. Á breska markaðnum kannar yfirtökunefnd slíkar fjárfestingar, þar til eignar- hlutur er kominn yfir fimmtán pró- sent. Þá tekur strangara eftirlit við í umsjón breska fjármálaeftirlits- ins. Þeir sem gerst þekkja til á breska markaðnum telja að Burðarás muni fá símtal frá yfir- tökunefndinni vegna kaupanna. Það fyrsta sem nefndin hafi áhuga á séu tengsl við KB banka eða þátt- töku í yfirtökuferli. Í öðru lagi munu þeir þurfa að svara því hvort þeir hyggi sjálfir á yfirtöku. Svari þeir játandi verða þeir að hefja ferlið en neiti þeir mega þeir ekki reyna slíkt næsta hálfa árið. haflidi@frettabladid.is ■ LÖGREGLUFRÉTTIR BÍLVELTA Á HÓLSSANDI Útlending- ur var fluttur á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri vegna eymsla í baki eftir bílveltu á Hólssandi í Norður-Þingeyjasýslu. Sá sem var með honum í bílnum slapp án meiðsla. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum á malarvegi. VELTA Á LÁGHEIÐI Útlendingur slapp ómeiddur eftir að hafa velt bílaleigubíl sem hann var á á Lág- heiði rétt sunnan við bæinn Brekku. Bíllinn er talinn ónýtur. INNBROT Í HEIMAHÚS Brotist var inn í heimahús í Ólafsfirði um miðjan dag í byrjun vikunnar. Það- an var stolið sjónvarpi, DVD-spil- urum og fleiru. Þjófarnir eru ófundnir en nokkrir menn liggja undir grun. Snæfellsnes: Vörubíll varð alelda LÖGREGLA Vörubíll varð alelda á Snæfellsnesvegi vestan við Stykk- ishólm um miðjan dag í gær. Tveir menn voru í bílnum. Þeir drápu á vél bílsins og forðuðu sér út þegar þeir urðu varir við reyk í húsi bíls- ins. Þar biðu þeir eftir hjálp. Slökkviliðið í Stykkishólmi kom fljótt á staðinn en þá var bíllinn al- elda. Þá komst einnig mikill eldur í gröfu sem verið var að flytja á palli bílsins. Mennina tvo sakaði ekki en bíllinn er talinn ónýtur og grafan mikið skemmd. ■ ,,Innan KB banka gætir ákveðings pirrings yfir því sem menn kalla hugmynda- leysi. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71,77 0,24% Sterlingspund 130,55 0,47% Dönsk króna 11,62 0,10% Evra 86,27 -0,03% Gengisvísitala krónu 121,35 0,41% KAUPHÖLL ÍSLANDS - HLUTABRÉF Fjöldi viðskipta 229 Velta 2.672 milljónir ICEX-15 3.076,24 -1,11% Mestu viðskiptin Kaupþing Búnaðarbanki hf. 390.674 Vátryggingafélag Íslands 240.172 Straumur Fjárfestingarbanki hf 125.884 Mesta hækkun Nýherji hf. 2,70% Hlutabréfsj. Búnaðarbankans 1,98% Hampiðjan hf. 1,75% Mesta lækkun Kaupþing Búnaðarbanki hf. -2,38% Íslandsbanki hf. -2,17% Jarðboranir hf. -1,03% Erlendar vísitölur DJ* 10.041,3 -0,8% Nasdaq* 1.835,1 -1,1% FTSE 4.413,4 0,1% DAX 3.829,0 0,1% NIKKEI 11.060,9 0.46% S&P* 1.087,3 -1,0% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 VEISTU SVARIÐ? 1Hvað heitir ungur íslenskur leikarisem er að gera það gott í Noregi? 2Hvaða bæjarfélag hefur haft umsjámeð umsækjendum um pólitískt hæli frá áramótum? 3Hvaða bráðaofnæmi er talið að A- ogD-vítamíndropar sem kallaðir hafa verið af markað hafa valdið? Svörin eru á bls. 38 www.icelandair.is/kaupmannahofn Í Kaupmannahöfn sameinast glæsileiki og lífsgleði. Heimsþekkt söfn, sögufrægar byggingar og listviðburðir eru meðal þess sem nærir anda ferðamannsins en ekki er síður vinsælt að slaka á með Tuborg og ekta dönsku smurbrauði. VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina *Hotel Selandia á mann í tvíbýli 23.-25. okt., 12.-14. nóv., 14.-16. jan., 4.-6. feb., 4.-6. mars. Innifalið: Flug, gisting í 2 nætur m. morgunverði, flugvallarskattar, þjónustugjald og eldsneytisgjald. 5000 Ferðapunktar upp í pakkaferð Fyrir handhafa Vildarkorts VISA og Icelandair. Jafnvirði 5000 kr. Gildir til 1. september. Verð frá 29.540 kr.* Lífsgleði og glæsileiki ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 25 37 0 0 7/ 20 03 SEINKUN Á FLUGI Seinkun varð á flugi til og frá Spáni vegna hagléls. HÚKKAR SÉR FAR Björgólfur Thor Björgólfsson ræður för í Burðarási. Fjárfesting Burðaráss fyrir á fimmta milljarð króna í Singer and Friedlander gæti fært félaginu góðan gengishagnað á skömm- um tíma gangi væntingar um yfirtöku KB banka eftir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N K AR LS SO N Í grein í Fréttablaðinu í gær um veðurfar á Íslandi var rangt farið með nafn veðurfræðings sem vitnað var í. Hún heitir Elín Björk Jónasdóttir en ekki Elva eins og sagt var. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. Danskur kapteinn: Sætir ákæru KAUPMANNAHÖFN, AP Saksóknarar danska hersins lögðu í gær fram ákæru á hendur kapteini sem sak- aður er um að misþyrma föngum í Írak. Kapteinninn, Annemette Hommel, er ákærður fyrir að hafa fjórum sinnum sýnt af sér gáleysi með því að niðurlægja fangana og neita þeim um mat og vatn. Hún neitar hins vegar öllum ásökunum og segir þær á misskilningi byggðar. Ásakanirnar hafa valdið Dön- um nokkrum áhyggjum um afleið- ingar þátttöku þeirra í her- námsliðinu í Írak. Varnarmálaráð- herra landsins segist þó engar áætlanir hafa um að herinn yfir- gefi landið. ■ AP M YN D ANNEMETTE HOMMEL Ákærð fyrir að misþyrma föngum meðan hún starfaði á vegum danska hersins í Írak. ■ LEIÐRÉTTING

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.