Fréttablaðið - 15.05.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
LAUGARDAGUR
BOLTINN BYRJAR Landsbankadeild
karla í fótbolta hefst í dag. Fyrsti leikur
mótsins er viðureign Íslandsmeistara KR
og FH sem varð í öðru sæti mótsins í
fyrra. Leikurinn verður á KR-vellinum og
hefst klukkan 17.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ENN EITT ÚRKOMUSVÆÐIÐ er nú
að ganga yfir landið. Rigning sunnan og
suðvestan til í fyrstu en vaxandi úrkoma
annars staðar síðdegis. Víða skúrir í kvöld.
Sjá síðu 6.
15. maí 2004 – 132. tölublað – 4. árgangur
SEGIR FORSETANN VANHÆFAN
Það er augljóst að Ólafur Ragnar Grímsson er
forseti allrar þjóðarinnar og getur ekki gengið
erinda eins auðhrings. Þetta sagði Davíð
Oddsson í fréttum Sjónvarps í gær. Sjá síðu 2
HART BARIST Í NAJAF Harðir bar-
dagar geysuðu í írösku borginni Najaf þeg-
ar Bandaríkjaher réðist gegn vígjum and-
spyrnumanna í borginni. Bardagarnir stóðu
yfir klukkustundum saman. Sjá síðu 2
KONUNGLEGT BRÚÐKAUP Friðrik
krónprins gekk að eiga Mary Donaldson í
gær. Tugir þúsunda hylltu brúðhjónin eftir at-
höfnina. Krónprinsinn táraðist þegar unnusta
hans gekk inn í kirkjuna. Sjá síðu 4
GUNGA OG DRUSLA Steingrímur J.
Sigfússon sagði Davíð Oddsson vera gungu
og druslu á Alþingi í gær þegar forsætisráð-
herrann varð ekki við ósk hans um að vera
viðstaddur umræður um fjölmiðlafrumvarpið.
Sjá síðu 6
FJÖLMIÐLALÖG Þingmeirihluti hangir
á bláþræði í fjölmiðlamálinu. Heim-
ildum Fréttablaðsins ber ekki sam-
an um hvort þingmeirihluti sé þegar
fallinn eða hvort enn sé óljóst um
afstöðu fáeinna stjórnarþingmanna.
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa
þrjátíu og fjóra þingmenn á bak við
sig en stjórnarandstaðan tuttugu og
níu. Stjórnarandstaðan hefur þegar
lýst yfir andstöðu sinni við frum-
varpið og mun öll greiða atkvæði á
móti því. Einungis þurfa því þrír
stjórnarþingmenn að greiða at-
kvæði gegn frumvarpinu að lokinni
þriðju umræðu til þess að það verði
fellt.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, hefur
ítrekað látið hafa eftir sér opinber-
lega að hann muni ekki styðja frum-
varpið. Því þarf einungis tvo til við-
bótar til að frumvarpið verði fellt.
Heimildarmenn Fréttablaðsins inn-
an Framsóknarflokksins segja að
það sé alls ekki útséð um samþykki
laganna. Andinn í þingflokknum
hafi breyst verulega undanfarna
daga og séu farnar að heyrast sí-
fellt fleiri efasemdarraddir innan
þingflokksins.
Heimildir blaðsins herma einnig
að óróa sé farið að gæta innan ríkis-
stjórnarinnnar. Forsætisráðherra
vill fresta þriðju umræðu um fjöl-
miðlafrumvarpið í tvær vikur. Önn-
ur mál verða tekin fyrir á Alþingi á
meðan. Heimildarmenn blaðsins
innan stjórnarflokkanna segja að
ástæðan fyrir frestuninni sé sú að
þingmeirihluti sé ekki lengur
tryggður fyrir málinu.
Heimildarmenn innan þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins segja að
ástæðan fyrir ákvörðun Davíðs sé
sú að það muni líta betur út fyrir af-
greiðslu frumvarpsins út á við að
málið verði sett í nefnd í ákveðinn
tíma. Þá sé ekki hægt að væna
meirihluta þingsins um að ætla að
keyra frumvarpið í gegnum þingið á
ofsahraða. sda@frettabladid.is
Þingmeirihlutinn
hangir á bláþræði
Forsætisráðherra ætlar að fresta þriðju umræðu um fjölmiðlafrumvarpið í tvær vikur.
Heimildarmenn Fréttablaðsins innan stjórnarflokkanna segja að það sé vegna þess að ekki sé
lengur meirihlutavilji á Alþingi fyrir frumvarpinu.
Kvikmyndir 54
Tónlist 50
Leikhús 50
Myndlist 50
Íþróttir 44
Sjónvarp 56
Hvar er Johnny Logan?
Hefur það eitthvað upp á sig að sigra í
Júróvisjón? Sigurvegarar eins og Johnny
Logan vöktu eftirtekt á sínum tíma, en
hvar eru þessir sigurvegarar nú?
Eurovisionstjörnur: Hönnunarsýning:
Ný sýning opnar í dag í hönnunarsafn-
inu í Garðabæ. Þar gefur að líta hús-
gögn sem íslenskir myndlistarmenn
hafa hannað í gegnum tíðina. Einn
stóllinn lítur út eins og dömubindi.
Stóll sem er eins og dömubindi
SÍÐA 38
▲
Hálfdán Steinþórsson:
● vikan sem var
Eignaðist
sterkan strák
SÍÐA 18
▲
● bílar
Mikill
bílaáhugamaður
Tímon Davíð Steinarsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
SÍÐA 22
▲
Forsætisnefnd kemur saman eftir helgi:
Neitar að trúa þessu
ALÞINGI „Ég kannast ekki við að
kvörtun hafi borist frá umboðs-
manni Alþingis. Ég neitaði að trúa
þessu en það þyrfti að taka af öll tví-
mæli og ég vænti þess að forsætis-
ráðherra gerði það sjálfur,“ segir
Guðmundur Árni Stefánsson, fyrsti
varaforseti Alþingis, en í DV birtist
frétt þess efnis að forsætisráðherra
hefði hringt í umboðsmann Alþingis
og hótað honum vegna álits umboðs-
mannsins á skipun Ólafs Barkar
Þorvaldssonar í embætti hæstarétt-
ardómara.
Guðmundur Árni segir að nær-
veru Davíðs hafi verið óskað þegar
rætt var um þetta á þingi en hann
hafi ekki verið viðstaddur. Þá segir
hann að eftir helgi muni forsætis-
nefndin inna eftir hvort heyrst hefði
frá umboðsmanni Alþingis. Hann
segir menn geta haft ýmsar skoðan-
ir á störfum umboðsmanns og rætt
það málefnalega en hann hafi full-
komið sjálfstæði. „Hafi þetta símtal
átt sér stað vænti ég þess að um-
boðsmaður geri vart við sig. Ég vil
þó ítreka að ég neita að trúa að þetta
samtal hafi átt sér stað,“ segir Guð-
mundur Árni. ■
SHAFIQ RASUL
Segist hafa verið pyntaður á Kúbu.
Guantanamo-fangar:
Við vorum
pyntaðir
LONDON, AP Tveir Bretar, sem var
haldið í Guantanamo, hafa ritað
opið bréf til George W. Bush Banda-
ríkjaforseta þar sem þeir segjast
hafa verið pyntaðir meðan þeir
voru í haldi Bandaríkjahers. Shafiq
Rasul og Asif Iqbal segja að með-
ferð þeirra hafi verið svipuð þeim
lýsingum sem berast nú úr fangels-
um Bandaríkjahers í Írak.
„Það sem þeir eru að reyna er að
gera heiminum það ljóst að það sem
kom fyrir þá er ekki eitthvað sem
gerðist í tómarúmi heldur er þetta
hluti af stefnu Bandaríkjahers um
hvernig skuli takast á við stöðu
mála,“ sagði Barbara Olshansky,
lögmaður þeirra. ■
Hryðjuverkamenn:
Fimm teknir
MADRÍD, AP Spænska lögreglan hef-
ur handtekið fimm menn sem eru
grunaðir um að reyna að fá menn
til liðs við íslömsk öfgasamtök og
hjálpa þeim við að komast í þjálf-
unarbúðir al-Kaída.
Tveir mannanna voru hand-
teknir í Barcelóna, en hinir þrír í
Bilbao, Cantabria og Madríd.
Fjórir eru frá Alsír en sá fimmti
er spænskur. Stefnt er að því að
draga þá fyrir dómara á mánudag.
Ekki er talið að mennirnir
tengist hryðjuverkaárásunum í
Madríd en þeir eru taldir hafa
sent menn til að berjast í Írak. ■
GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON
Guðmundur Árni segir að ef að forsætis-
ráðherra hafi hringt með hótanir í um-
boðsmann Alþingis vænti hann þess að
umboðsmaður geri vart við sig.
LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK HAFIN Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setti Listahátíð í Reykavík í Listasafni Íslands í
gær. Hátíðin er sú stærsta sem haldin hefur verið og stendur til 31. maí. Við setninguna sýndi Íslenski dansflokkurinn nýtt verk eftir
Katrínu Hall.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
01 14.5.2004 22:35 Page 1