Fréttablaðið - 15.05.2004, Síða 8
Lj
ós
m
yn
d
K
U
O
N
I
Velkomin í hópferðir
Leyndardómar Tælands
16.-30. október
Ein af vinsælustu hópferðum Kuoni: Hringferð um fjölbreytilegar
slóðir, frá Bangkok í suðri til Chiang Mai í norðri. Mögulegt að
framlengja um viku í Hua Hin.
Verð á mann í tvíbýli, ef bókað fyrir 1. júní: 141.550 kr.*
Hið gullna norður Tælands
24. okt. – 11. nóv.
Ferð um hinn stórbrotna Gullna þríhyrning þar sem við kynnumst
heillandi ósnortinni náttúru og komumst í tæri við ósvikið og
töfrandi mannlíf og menningararf. Mögulegt að framlengja um
viku í Hua Hin.
Verð á mann í tvíbýli, ef bókað fyrir 1. júní: 151.350 kr.*
Á söguslóðum Víetnam
1.-15. október
Heillandi ferð um söguslóðir Víetnam ásamt dvöl á einu rómaðasta
hóteli Asíu í Tælandi. Mögulegt að framlengja um viku í Hua Hin.
Verð á mann í tvíbýli, ef bókað fyrir 1. júní: 173.100 kr.*
Bandaríkin: Ameríski draumurinn
9.-22. sept.
Stórskemmtileg og fróðleg ferð um helstu kennileiti vesturstrandar
Bandaríkjanna: San Francisco, Los Angeles, Las Vegas, Grand
Canyon, Villta vestrið o.s.frv.
Verð á mann í tvíbýli: 213.770 kr.*
Ástralía: Stóra Ástralíuferðin
21. okt.-11. nóv.
Í haust býðst íslenskum ferðalöngum að sækja Ástralíu heim og
skoða helstu undur þessarar fjarlægu heimsálfu.
Verð á mann í tvíbýli: 402.600 kr.*
Kína: Á keisaraslóðum í Kína
22. okt. – 6. nóv.
Ólíkar ásjónur og undur Kínverska alþýðulýðveldisins í öllu sínu
veldi á ótrúlega hagstæðu verði.
Verð á mann í tvíbýli: 207.600 kr.*
Egyptaland: Í fótspor faraóanna
28. okt.-11. nóv.
Egyptaland í öllu sínu veldi: Sigling á Níl, arfleifð faraóanna,
höfuðborgin Kairó, píramídarnir og Rauða hafið.
Verð á mann í tvíbýli: 169.100 kr.*
Tæland - Víetnam - Bandaríkin - Kína
- Ástralía - Egyptaland
Við bjóðum nú íslenskum ferðalöngum brot af því besta úr
hópferðaáætlun Kuoni í fylgd íslenskra fararstjóra.
*Vinsamlegast athugið að allar ferðirnar hefjast í Kaupmannahöfn og flug milli Íslands
og Danmerkur er ekki innifalið í uppgefnu verði. Þátttakendur hafa þannig sína hentisemi
um flugið til Danmerkur og benda má á að netfargjöld til Kaupmannahafnar kosta oft
á milli 15.000-20.000 kr. Starfsfólk Langferða aðstoðar í hvívetna. Öll verðdæmi miðast
við gengisskráningu 1. apríl 2004.
Nánari upplýsingar og ferðalýsingar er að finna á heimasíðu
okkar og á söluskrifstofu Langferða.
Ve
ru
leg
ur
af
slá
ttu
r
í f
er
ði
rn
ar
ti
l T
æl
an
ds
og
V
íet
na
m
ef
b
ók
un
er
st
að
fe
st
fy
rir
1.
jú
ní
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.kuoni.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
- með íslenskum fararstjóra!
15. maí 2004 LAUGARDAGUR
Breytingar á félagaskrám flokkanna:
Fjórtán úr Framsókn
STJÓRNMÁL „Það eru fjórtán úr-
sagnir úr flokknum síðan 20. apríl
síðastliðinn og er það heldur
meira en venjulegt er,“ segir
Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokks-
ins. Á sama tíma hefur ein inn-
tökubeiðni borist flokknum.
Gunnlaugur Jónsson, formaður
Frjálshyggjufélagsins, segir að á
síðustu vikum hafi jafn margir
gengið í félagið og síðustu fimm
mánuðina þar á undan.
Margrét Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Frjálslynda flokks-
ins, segir að bæst hafi við félaga-
skrá flokksins á síðustu vikum.
„Ég held ég geti sagt að tíu til
fimmtán manns hafi gengið til liðs
við okkur vegna fjölmiðlafrum-
varpsins,“ segir Margrét. „Við
vonumst til að þessi aukning haldi
áfram, það eru allir velkomnir.“
Hjá Sjálfstæðisflokknum feng-
ust þær upplýsingar að breyting-
ar á félagaskrá væru svipaðar og
vanalega. Engar óeðlilegar breyt-
ingar. Eins fengust þau svör hjá
Samfylkingunni að breytingar á
félagskrá síðustu vikur væru eins
svipaðar og áður.
„Frá því á landsfundinum í
nóvember hefur orðið töluverð
fjölgun í flokknum, jafn og þétt.
Ég myndi ekki segja að fjölmiðla-
frumvarpið væri beint að skila
okkur inn einhverjum fjölda. Hins
vegar hefur orðið talsverð aukn-
ing í flokknum síðustu vikur og þá
kannski sérstaklega ungt fólk,“
segir Huginn Þorsteinsson, skrif-
stofustjóri Vinstri hreyfingarinn-
ar - græns framboðs. ■
STJÓRNMÁL „Fylgið kemur til með
að hrynja af Framsóknarflokkn-
um, ef þetta frumvarp verður
keyrt áfram með sama offorsi,“
sagði Guðmundur Kristinn Jóns-
son, formaður Framsóknarfélags
Árborgar, spurður álits á meðferð
fjölmiðlafrumvarpsins í sölum Al-
þingis.
Félög innan flokksins hafa að
undanförnu sent frá sér ályktanir,
þar sem málsmeð-
ferð frumvarpsins
er hörmuð, þeim
tilmælum beint til
alþingismanna, að
afgreiðslu verði
frestað til hausts-
ins og að frum-
varpið fái þá vand-
aða umfjöllun.
Framsóknarfélög
Garðabæjar og
Bessastaðahrepps og Bolunga-
víkur hafa sent frá sér ályktanir
þessa efnis.
Ungliðahreyfingar flokksins
ganga lengra. Stjórn Félags ungra
framsóknarmanna í Reykjavík
suður „mótmælir frumvarpi Dav-
íðs Oddssonar um eignarhald á
fjölmiðlum eins og það liggur fyr-
ir“. Stjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna „hafnar framkomn-
um áformum um takmörkun eign-
araðildar að fjölmiðlum.“
Formenn Framsóknarfélaga
sem Fréttablaðið ræddi við í gær
lýstu áhyggjum af meðferð frum-
varpsins á Alþingi og framtíð
Framsóknarflokksins ef hann
stæði að „slíkum vinnubrögðum“.
„Þingmenn deyja í augum for-
mannsins ef þeir skrifa ekki und-
ir, en þeir deyja í augum okkar
kjósenda ef þeir skrifa undir,“
sagði Guðmundur Kristinn. „Það
er allt í lagi að leggja fram frum-
varp um fjölmiðla, en það ætti að
fresta því á vorþingi og taka það
til meðferðar aftur næsta vetur,
og hafa þá samstarf og samráð við
fólk.“
„Þingmenn Framsóknarfloks-
ins sjá um þessi mál fyrir okkur,“
sagði Pétur Snæbjörnsson, for-
maður Framsóknarfélags Mý-
vatnssveitar. „Ef við vantreystum
þessum mönnum þá myndum við
reka þá. Ég sé ekki ástæðu til
þess, við kusum þetta yfir okkur.“
Framsóknarfélags Mýrarsýslu
ályktaði um málið, en hélt álykt-
uninni innan raða þingmanna
Framsóknarflokksins. Þorvaldur
Tómas Jónsson, formaður félags-
ins, sagði að menn hefðu verið að
lýsa áhyggjum sínum á „þessu
uppnámi, en vildu kæla umræð-
una og fresta afgreiðslu málsins
til hausts“.
Sveinn Bernódusson, formaður
Framsóknarfélagsins á Bolungar-
vík, kvaðst hafa fengið símtöl frá
Framsóknarmönnum víðs vegar
um landið í kjölfar umræddrar
ályktunar félagsins. „Ég hef heyrt
í mönnum sem hafa verið nálægt
flokknum og heldur lagt honum
gott orð heldur en slæmt. Þeir eru
mjög óhressir með þessi vinnu-
brögð. Það er sama hljóðið í öllum,
menn óttast að Framsóknarflokk-
urinn tapi á þessu.“
jss@frettabladid.is
■
Þingmenn
deyja í augum
formannsins ef
þeir skrifa ekki
undir, en þeir
deyja í augum
okkar kjósenda
ef þeir skrifa
undir.
RÓM, AP Þeir sem ætla sér að
stinga ítölsku lögregluna af ættu
að hugsa sig tvisvar um. Lögregl-
an hefur tekið nýjan sportbíl af
gerðinni Lamborghini Gallardo í
notkun til að nota á hraðbrautinni
milli Salerno og Reggio Calabria í
suðurhluta landsins.
Bíllinn nær mest 309 kílómetra
hraða og það tekur hann aðeins
fjórar sekúndur að komast á
hundrað kílómetra hraða úr kyrr-
stöðu.
Nýi bíllinn verður fyrst og
fremst notaður í neyðartilfellum
og til þess að flytja líffæri sem
nota á við líffæraígræðslur. ■
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Heldur fleiri hafa sagt sig úr Framsóknar-
flokknum á síðustu vikum en venjulegt er.
Hjá öðrum flokkum fékkst ekki uppgefið í
tölum hversu margar hefðu sagt sig úr
flokkunum eða gengið til liðs við þá.
Viðbót við bílaflotann:
Löggurnar á Lamborghini
NÝI BÍLLINN KYNNTUR
Lamborghini lögreglunnar var
aðalaðdráttaraflið á afmælis-
sýningu lögreglunnar.
Andstaða í röðum
framsóknarmanna
Andstaða er meðal framsóknarmanna við afgreiðslu fjölmiðlafrumvarpsins á vorþingi.
Óánægja ríkir vegna meðferðar þess í þingsölum. Flokksmenn óttast að fylgið muni
hrynja af Framsóknarflokknum ef hann stendur að afgreiðslu frumvarpsins nú.
ÞINGFLOKKUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Óánægja er í röðum Framsóknarmanna víðs vegar um landið vegna meðferðar fjölmiðla-
frumvarps á Alþingi og framgöngu framsóknarþingmanna í því máli. Margir vilja fresta
afgreiðslu til hausts og vanda þá málsmeðferð. Þeir óttast að fylgið hrynji af flokknum, ef
fram heldur sem horfir.
08-09 14.5.2004 19:27 Page 2