Tíminn - 11.02.1973, Qupperneq 5
Sunnudagur 11. febrúar. 1973
TÍMINN
5
A fimmtudaginn byrjuðu nýir
skemmtikraftar að skemmta
gestum á Hótel Loftleiðum.
Þetta er franska parið Henrico
og Baby Caraibeans, sem eru
eyjabúar eins og við, þótt lofts-
lagið sé ef til vill eitthvað annað,
þvi þau koma frá frönsku
eyjunni Martinique i Karabiska
hafinu.
Hér munu þau skemmta þennan
mánuð með suðrænum dönsum,
akrobatik o.fl. Þykir vel til fallið
að fá suðræna skemmtikrafta til
þess að stytta okkur stundir i
svartasta skammdeginu.
og unnið sér mn um 200 milljónir
króna.
Enginn veit enn, hvernig kvik-
myndahUsagestum á eftir að
falla við Roger Moore i hlut-
verki James Bond. Hingað til
hefur fólki fyrst dottið i hug
Sean Connery sem Bond, en
næst kemur svo George
Lazenby, en báðir hafa þessir
menn gefizt upp á þvi að leika
þennan mikla mann. Ekki er
vist, að Moore verði nóg mikið
hörkutól til þess að vinna sig i
álit i þessu hlutverki, en það veit
þó enginn fyrr en myndin hefur
verið sýnd. Hér eru tvær myndir
af Moore, önnur er tekin fyrir
einum tuttugu árum, þegar
hann var að sýna karlmanna-
fatnað. Á þeirri mynd er hann
ósköp unglingslegur, og varla
kominn með Dýrlingssvipinn.
Svo er hin af honum og þriðju
konunni hans, henni Luisu, sem
fylgir honum eftir hvert sem
hann fer.
Skemmtikraftar frá
Karabíska hafinuf
á Loftleiðum
ar fra
Finu[^
Nú verður
hann 220 \ I
milljón kr. ríkari
Hann á aldrei eftir að leika
Dýrlinginn aftur, og heldur ekki
annan fóstbræðranna Brett og
Daniels, nU er röðin komin að
James Bond, og hann er orðinn
James Bond III. Hver er það
svo, sem við erum að tala um.
Það er enginn annar en Roger
Moore, sem allir íslenzkir sjón-
varpsáhorfendur þekkja ósköp
vel. Ævintýrin, sem Roger
lendir i i hlutverki Bond eru svo
óttaleg, að Dýrlingurinn myndi
verða skelfingu lostinn og
hlaupa i felur, og þó kallaði
hann ekki allt ömmu sina.
Roger Moore hefur veriö á
fartinni undanfarin 20 ár. Strax
eftir að hann lauk námi i leik-
listarskóla árið 1951 fór hann aö
starfa sem fatasýningarmaður.
1 þau tuttugu ár, sem siöan eru
liöin hefur hann verið þrigiftur,
James Bond-myndin, sem
Moore leikur nU i, er kvik-
mynduð i New Orleans i
Bandarikjunum. Þessi mynd
verður dýrari en nokkur önnur
Bond-mynd sem hingað til hefur
verið gerð, og sagt er, að hUn
muni kosta um eða yfir 1400
milljónir króna, sem er næsta
ótrUleg upphæð. Af henni rennur
beint i vasa Moores sjálfs
rUmar 200 milljónir, svo ekki
ætti hann að verða á flæðiskeri
staddur eftir það. Það er alltaf
nóg af fallegu kvenfólki i kring-
um Bond, en þegar Moore er
ekki að vinna við kvikmynda-
tökuna heldur hann sig að einni
konu Luisu, sem er móðir
barnanna hans tveggja. HUn
hefur nU eins og alltaf áður
fylgt manni sinum i kvik-
myndaverið og kemur á
hverjum degi og borðar meö
honum hádegismatinn á milli
þess sem kvikmyndað er.
ALLA DAGA MANUDAGA MANUDAGA ÞRIÐJUDAGA FIMMTUDAGA ALLA DAGA UUGARDAGA UUGARDAGA
FÖSTUDAGA FOSTUDAGA SUNNUDAGA