Tíminn - 11.02.1973, Side 8

Tíminn - 11.02.1973, Side 8
stafi einkum af áhugaleysi og þekkingarskorti ráðamanna á þvi, hvernig þessum málum er farið i þeim löndum, þar sem tækniþróun er mest og verk- menning á háu stigi. — Ilvað álitur þú að skorti á, til þess að þcssi mál komizt i viðun- andi horf hér á landi? — Það skortir fyrst og fremst reynslu hjá þeim mönnum, sem ákveða útboð, verksamninga og yfirumsjón með framkvæmd verksamninga á vegum hins opinbera. Fyrir mitt leyti vil ég segja, að hjá Reykjavikurborg séu þessi mál komin i horf sem vel er viðunandi, og hjá Lands- virkjun og vegagerðinni lika. En viðast hvar annars staðar hjá opinberum aðilum, tel ég að yfir- umsjón og útboð verksamninga (Contract Administration) sé mjög ábótavant. Verkkaupinn gerir þá kröfu til verktakans, að hann skili sinu verki á ákveðnum tima, fyrir ákveðið verð og af ákveðnum gæðaflokki oft án fullnægjandi uppdrátta, lýsinga og forrann- sókna t.d. jarðvegskánnana. En sjálfur tekur verkkaupinn á sig vissar greiðslu-skuldbindingar, þ.e.a.s. að greiða verkið jafnóð- um og það er unnið, samkvæmt hálfsmánaðarlegum eöa mánaðarlegum uppgjörum. Og þarna er einmitt komið að einum kvilla i verktakastarfseminni. Það vill nefnilega oft brenna við, ekki siður hjá opinberum aðilum en einkaaðilum, að þegar að þess- um hlutagreiðslum kemur stend- ur verkkaupinn upp og segist enga peninga hafa og ekkert geta borgað. Það er mikil raun fyrir verktakana, þegar slikt á sér stað, þar sem verktakarnir eiga ekki aðgang að föstum lánasjóð- um eins og landbúnaður og sjávarútvegur, og i nokkrum stil einnig iðnaðurinn, Verktakarnir, sem velta milljörðum árlega, verða aö treysta á skyndilán i bönkum, sem oftast eru með hæstu vöxtum, og oft ófáanleg. Verktakar geta þvi oft ekki treyst þvi, að þeir fái borgun frá verkkaupanum á réttum gjald- daga. En ég vil taka fram, að þeir þrir stærstu aðilar, sem við höf- um átt skipti við, þ.e. Reykja- vikurborg, Landsvirkjun og Vegagerðin, hafa allir staðið mjög vel i skilum, og hafa við- skiptin við þá yfirleitt verið góð i alla staði. Margir verktakar fara á hausinn vegna erfiðleika er skapast vegna vanskila verk- kaupans. Erfiðleikar verktaka — Þú hcfur hér drepiö á marga punkta á verktakastarfscmi hér á landi og oröiö þar tiðrætt um hina ýmsu erfiöleika verktaka. Eins og þú segir fara margir þcirra á hausinn, og Iangar mig nú aö biðja þig aö nefna aöalástæöurn- ar, aö þinu mati, til þess. — Það eru ýmsar ástæður til þess, að verktakar verða að hætta störfum. Algengasta orsökin er sú, eins og áður er komiö fram, að verktakann skortir reynslu fjár- magn og þekkingu. Hann reiknar tilböð sitt of lágt og getur ekki framkvæmt verkið fyrir þá upp- hæð, sem hann býður. Og hann hefur ekkert til að hlaupa upp á og verður þvi gjaldþrota. 1 öðru lagi er það hin stöðuga veröbólga hér, sem jafnvel riður reyndum verktökum að fullu. Þótt verk- samningar séu bættir að hluta, t.d. beinn launakostnaður,þá eru ákaflega margir kostnaðarliðir, sem ekki eru bættir, enda þótt þeir hækki 'á verktimabilinu. Verktakar, sem verða fyrir miklu tapi vegna skyndilegrar gengis- lækkunar, visitöluhækkunar eða hækkunar á kaupi, fá sina kostnaðaraukningu ekki bætta nema að takmörkuðu leyti, — og það verður mörgum of þungur baggi. t þriðja lagi kemur það til, að verktakar hafa ekki upp á neina lánasjóði að hlaupa, en verða að treysta á dýr skyndilán. Siðast en ekki sizt má nefna, að verktakar hér eru skattlagðir mjög, og sum- irskattarnirstrangarien nokkurs staðar þekkist erlendis eins og hið furðulega aðstöðugjald. Veðráttan og ójöfn verkefni spila einnig verulega inn i, og get- ur þetta valdið verktökum mjög miklum erfiðleikum og tjóni. — Svona i leiðinni, — hvað eru starfandi niargir verktakar á is- landi i dag? — Eiginlegir jarðvinnuverktak- ar eru innan við 10, en auk þess koma að sjálfsögðu til ýmsir skyndiverktakar, sem erfitt er að hafa tölu á. — Þegar hér er koinið sögu væri ef til vill ekki úr vegi, að þú lýstir i nokkrum orðum þvi helzta, sem samfara cr verkútboðum, þar sem gera má ráð fyrir, að al- inenningur sé næsta ófróður um þá hluti. — Það er alveg sjálfsagt. Þetta gengur þannig fyrir sig i stórum dráttum, að þegar aðili, opinber eða einkaaðili, ákveður að láta framkvæma fyrir sig ákveðið verk, jarðvinnuverk, húsbygg- ingaverk eða hvort tveggja, þá ræður hann til sin arkitekta og eða verkfræðinga til að hanna þetta verk, og tilkynnir jafn- framt, að verkið eigi að bjóða út. Þessir sérfræðingar verkkaupans gera siöan allar fullnaðar bygg- ingateikningar að verkinu og semja jafnframt svokallaða út- boðslýsingu, þar sem greint er frá öllum skilyrðum fyrir verksamn- ingi, hvernig og hvenær eigi að framkvæma verkið og tæknileg lýsing á þvi. Akaflega algengur siður er er lendis, að verktakinn hafi siðan samband við þrjá fjóra verktaka og bjóði þeim að gera tilboð i verkið. Slikt er einnig til hér, en algengast er að verkið sé auglýst á almennum markaði, þannig að hver sem er geti boðið i það. Þetta fer þannig fram, að gefin er út til- kynning, þar sem sagt er, að út- boðsgögn, þ.e. teikningarnar og útboðslýsingin, verði afhent á ákveðnum degi gegn ákveðinni skilatryggingu, venjulega 3-10 þúsund. Einnig er tilkynnt um, að á ákveönum degi og tima verði til- boðin opnuð. Þeir verktakar og aðrir, sem áhuga hafa á þvi að gera tilboð i verkið, ná sér i út- boðsgögnin og setjast siðan niður og reikna út, hvað muni kosta að gera þetta ákveðna verk. Hinn „mikli dagur” rennur upp, og menn koma og leggja fram sin til- boð, sem siðan eru lesin upp i heyranda hljóði (það má hver vera viðstaddur, sem vill). Þegar þvi er lokið, taka sérfræðingar verkkaupans öll gögnin og fara I gegnum þau, prófa hvort þau eru rétt reiknuð og hvort á þeim sé einhver formgalli eða annað. Þeir bera tilboðin saman og koma sér saman um, hvert þeirra sé hag- kvæmast fyrir verkkaupann, og mæla siðan með þvi við hann. Næst taka við samningarnir, sem venjulega eru mjög fljót- gerðir. Skrifaður er upp samning- ur, sem er eins og hver annar við- skiptasamningur, en til þess að fá hann, veröur verktakinn að af- henda verkkaupanum banka- tryggingu, sem jafnaðarlega er 10% af heildar samningsupphæð- inni. Þessi trygging felur það i sér, að ef verktakinn getur ekki staðið við skuldbindingar sinar samkvæmt samningnum, þá greiðir viðkomandi banki verk- kaupanum áðurnefnd 10% i skaðabætur vegna þess tjóns, sem hann kann að verða fyrir með einum eða öðrum hætti. Þegar undirskriftum er lokið, getur verktakinn hafizt handa. 1 samningnum er venjulega ákvæði um siðasta skiladag á verkinu, og þess vegna riður á fyrir verktak- ann að hamast, eftir þvi sem efni og aðstæður leyfa. Verkkaupinn hefur og ábyrgan eftirlitsmann, sem fylgist með daglegum fram- kvæmdum verktakans, eins kon- ar millimann, er fylgist með dag- legri umsýslan, úrskýrir vafa- atriði og fylgist með þvi að verk- takinn hlýði reglum. Hann yfirfer og reikninga verktakans, en verkið er yfirleitt gert upp hálfs- mánaðar- eða mánaðarlega og þá á verktakinn að fá greiðslu fyrir það, sem hann hefur unnið undan- farinn mánuð eða hálfan mánuð. — Það eru vist allir sammála um, að hér á Fróni sé óhætt að tala bæði um óstöðugt veðurfar og verðlag, sem ekki hvað sizt bitnar á verktökum. Sem reyndur verk- taki, hvað myndirðu telja mikil- vægast fyrir verktaka að hafa i huga, ef þeir vilja halda velli? — Þaðsem hver verktaki hugs- ar um er: hvernig slepp ég við að fara á hausinn? Tvö atriði þarf einkum að passa upp á. 1 fyrsta lagi að sýna eins mikla hagsýni og skipulagningu framkvæmd- anna og unnt er á hverjum tima, og i öðru lagi að bjóða ekki of lágt 1 verkin, — taka heldur „sjens- inn” á þvi að missa verkið fyrir hærra tilboð. A þessum hála is fara margir flatt. 2 milljónir á dag — Nú riður auðvitað á miklu fyrir ykkur verktaka að ljúka við verk á sem ailra skemmstum tima, ekki satt? — Jú, það er ljóst mál. Eftir þvi sem verktaki getur lokið verki sinu fyrr, verður útkoma hans betri að öllum jafnaði, þó að sjálf- sögðu með sinum takmörkunum. Daglegur reksturskostnaður er svo mikill, að hver dagur, sem verktakinn getur sparað i raun- verulegum framkvæmdum, er af- ar dýrmætur. I verksamningum er lika yfirleitt ákvæði, þar að auki, um dagsektir til verkkaup- ans, ef verkið dregst fram yfir umsaminn tima. T.d. við Þóris- vatn kr. 50.000 á dag. — Hver var reksturskostnaður Þórisóss h.f. á dag árin 1971 og 1972? — Síðastliðið sumar mátti segja, að reksturskostnaðurinn væri mest um 2 milljónir á dag. Sumarið 1971 var reksturs- kostnaður Þórisóss s.f. kringum 2,5 milljónir á dag þegar mest var. Þegar um slikar upphæðir er að ræða, er ljóst að stöðugt eftirlit og áætlanir eru mjög nauðsynleg- ar, til þess að maöur fari ekki „yfir um”. Við urðum fyrir ýmis- legum töfum, bæði ófyrirséðum og eins vegna mannlegra yfir- sjóna eins og gengur. En I heild má segja, að við höfum verið ánægðir með útkomuna. — Þú hefur nú skýrt frá mörg- um erfiðleikum verktaka, eru ekki ýmsar skemmtilegar hliðar á þvi lika? — Jú, mikil ósköp. Verktaka- starfsemin er mjög fjölbreyttur og spennandi atvinnurekstur. Það er gaman að sjá hin ýmsu mann- virki risa i höndum kunnáttu-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.