Tíminn - 11.02.1973, Page 9

Tíminn - 11.02.1973, Page 9
Sunnudagur 11. febrúar. 1973 PÍAIINN 9 manna á afkastamiklar vélar, og fjárhagsóvissan eykur á spenn- inginn. Enginn skyldi þó álita, a6 verktakastarfsemi sé bezta og auðveldasta leiðin til fljótfengins ogauðvelds gróða. Menn þurfa að hafa fyrir lifinu i þeirri atvinnu- grein. — Eru ekki verkefnin, sem þið fáizt við, misjafnlega vandasöm og skemmtileg? — Jú, ég tel t.d., að stiflugerðin við Þórisvatn hafi verið það lang- vandasamasta. Þar voru unnin verk, sem mér er ekki kunnugt um, að hafi verið gerð hliðstæð áður, og við eins erfiðar aðstæð- ur. Og skemmtilegar eru allar framkvæmdir, ef maður telur, að þær séu einhverjum til gagns. Það skemmtilegasta var senni- lega, frá minum sjónarhóli, hrað- brautin gegnum Kópavog. Þar var hafizt handa um að leysa mikið umferðarvandamál til frambúðar, með nýjustu aðferð- um. Hins vegar var framkvæmd- in mjög umdeild, og enn mun vera barizt á móti henni af mönn- um, sem ég kalla að hafi músar- holusjónarmið, — mönnum, sem hvorki sjá heiðan himininn yfir höfði sér, né nokkuð fram á veg- inn. Hrein endurtekning á þvi, þegar barizt var með hnúum og hnefum gegn simalagningu um ísland og fleiri framfaramálum. — Þetta er nú orðið allnokkuð spjall hjá okkur. En svona í lokin, Páll, ein klassísk: Hver eru helztu framtiðaráform Þórisóss hf.? — Það er ekkert minna. Ekki er það ofsögum sagt að þið séuð for- vitnir, blaðamennirnir! Nú jæja, en ég vildi fremur tala um fram- tiðarvonir og auðvitað get ég ekki upplýst keppinautana opinber- lega um áformin. 1 mjög stuttu máli þetta: Þegar er komið fram, að Þórisós hefur yfir að ráða miklum vélakosti og auk þess um hundrað föstum starfsmönnum. Til þess að halda fyrirtækinu gangandi og útvega þessum mönnum og öðrum atvinnu, verð- ur að útvega verkefni. Við höfum ekki enn lokið framkvæmdum okkar við Olfus-veg og Vestur- landsveg, þ.e.a.s. vegirnir eru fullgerðir, en eftir á að jafna og græða upp svæðið meðfram þeim. Um verkefnin á næstu árum og i framtiðinni yfirleitt, er það að segja, að einhver smærri verkefni eru yfirleitt fyrir hendi, en aðal- vonir okkar eru bundnar við áframhaldandi gerð vega með varanlegu slitlagi um landið. t öðru lagi eru vonir okkar eink- um bundnar við áframhaldandi virkjun islenzkra fallvatna, en persónulega er ég þeirrar skoðunar, að megnið af nýtan- legri vatnsorku á tslandi verði virkjað i framtiðinni burtséð frá öllu tali um kjarnorku. I þessu sambandi er fyrst að nefna Sig- ölduvirkjun, sem væntanlega verður boðin út innan skarnms. Hér er um geysistórt verkefni að ræða, sem áætlað er að ljúki árið 1976, og höfum við fullan hug á þvi að bjóða i einhvern hluta þess — Ég þakka þér fyrir spjallið Páli og óska fyrirtækinu, sem þú crt framkvæmdastjóri fyrir, verktakafyrirtækinu Þórisós h.f., alls. hius bezta i framtiöinni. Guðlaugur 70 í DAG, SUNNUDAGINN, 11. febrúar er Guðlaugur Rósin- kranz, fyrrverandi þjóðleikhús- stjóri sjötugur. Hann hefur i vetur dvalið i Sviþjóð og cr heimilisfang hans þar: Falkungagatan 78 Stokkhólmi. Guðlaugur Rósinkranz er fædd- ur að Tröð i önundarfirði, Vestur- tsafjarðarsýslu sonur hjónanna Rósinkrans A. Rósinkranssonar bónda og Guðrúnar Guðmunds- dóttur. Guðlaugur stundaði nám i Alþýðuskólanum að Núpi i Dýra- firði, en fór siðan i Kennaraskól- ann og tók þaðan kennarapróf 1925. Næsta vetur stundaði hann nám við Tarna Folkhögskóla i Sviþjóð og siðan var hann i þrjá vetur við nám i Socialpolitiska Institutet i Stokkhólmi, og tók þar próf i hagfræði og félagsfræði árið 1929. Framhaldsnám stundaði hann svo við Stockholm Högskola og við Samvinnuskólann i Manchester i Englandi. Guðlaugur var kennari við Samvinnuskólann á árunum 1930- 1949, að hann gerðist þjóðleikhús- stjóri, en þvi starfi gegndi hann þar til á siðasta ári. Guðlaugur kom mjög við sögu byggingasam- vinnufélaga hér fyrr á árum og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir þau. Hann var um tima for- maður Sænsk-isl. félagsins og formaður Norræna félagsins i tvö ár. Þá tók hann virkan þátt i störfum Vestfirðingafélagsins og var formaður þess á árunum 1940- ’53. Eftir að hann varð þjóðleikhús- stjóri tók hann þátt i alþjóðlegu Rósinkranz ára Guðlaugur Rósinkranz. og norrænu samstarfi leikhús- fólks. Guðlaugur var fram- kvæmdastjóri tveggja mikilla hátfða, eða Lýðveldishátiðarinn- ar 1944 og Snorrahátiðar 1947. Eftir Guðlaug liggja mörg rit, m.a. um Sviþjóð, nokkrar kennslubækur, bók um Þjóð- leikhúsið 5 ára og hann samdi handritið að kvikmyndinni ,,79 af stöðinni”. Fyrri kona Guðlaugs var Lára Stefánsdóttir frá Seyðisfirði, en hún lézt árið 1959. Siðari kona hans er Sigurlaug Guðmundsdótt- ir. Timinn sendir Guðlaugi og fjöl- skyldu hans beztu kveðjur i tilefni af sjötugsafmælinu. OHNS-MANVILLE glerullareinangrun er nú sem fyrr vinsælasta og örugglega ódýrasta glerullar- ••••" einangrun' á markaðnum í •••••• dag. Auk þess fáið þér frían álpappír með. Hagkvæmasta einangrunarefnið í flutningi. i:H:j Jafnvel flugfragt borgar sig. M\ MUNIP :::::: í alla einangrun ••«••• _ ÍlÍÍÍ: Hagkvæmlr grelðsluskilmálar. ♦♦*♦•• Sendum hvert á land^ iHHj sem er. JÓN LOFTSSON HF. ---- Hringbraut 121 10 600 '•••♦•♦••••••••••••••• ••••••••••••••••••••• •••••»«•••••••••••••• >•••••••• >•••••••• >•••••••• >*••••••••••••• Auglýs endur Aöstoö viö gerö auglýsinga. — Handrit að auglýsingum, sem Áuglýsingastofu Tímans er ætlað að vinna, þurfa að berast tveim ^ dögum fyrir birtingu. E]ElElE|ElElE|B1E1E|l3|b|ElElElE|EH3|b|b|Í3lE|la)b|E]E|b|l3|b|l3|ElE] ig ig ia 13 13 13 13 13 13 13 13 3 ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú ú n ú ú ú ú 1 9 9 31 er treyst á TD-8B JARÐÝTUNA Lipur — en afkastamikil Auöveld i flutningi milli staöa Hægt að taka hana á flestar vörubifreiðir Góð varahlutaþjónusta Vegna fjölda vélanna hér á landi er unnt að hafa góðan varahlutalager Verö mjög hagstætt — kr. 1.940.000,00 Samband íslenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD Ármúla 3 Reykjavik simi 38900 INTERNATIONAL HARVESTER 31 31 31 31 31 31313131313] 3131313131313131313131313131313131313131313131313131

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.