Tíminn - 11.02.1973, Page 12
12 TÍMINN Sunnudagur 11. febrúar. 1973
Hestar heilla suma —svo geta hreindýr heillaö aöra. Konan á myndinni er dönsk, en hreindýraeigandi eigi aö siöur.
HVERT HREINDÝR HEF-
UR SÍNA RÖDD — ÞAÐ
ER LÍFTAUG STOFNSINS
YNGVE ESPMARK heitir dósent i Stokk-
hólmsháskóla. Hann hefur lagt stund á rann-
sóknir á lifi og háttum hreindýra. Það vakti
fyrst furðu hans, hvernig litlir kálfar fundu
móður sina i stórri hreindýrahjörð. Rann-
sóknir hans leiddu til þeirrar niðurstöðu, að
hreindýr hafa mál, og málið veldur þvi, að
móðir og afkvæmi týna ekki hvert öðru, þótt
fjögur til fimm þúsund hreindýr séu saman
komin i einni hjörð.
HREINDÝRARÆKT er mikill
atvinnuvegur i sumum noröur-
héruöum Sviþjóöar og Noregs. Og
nú hefur veriö gerö uppgötvun,
sem getur skipt þá verulegu máli,
er stunda hreindýrarækt. Upp-
götvunin er fólgin i nýrri vit-
neskju um þaö, hvernig sambúö
hreindýra er háttaö. Nýjar rann-
sóknir hafa leitt i Ijós, aö rödd
hvers hreindýrs hefur sérkenni,
og eina rödd læra hreinkálfarnir
aö þekkja, jafnskjótt og þeir eru i
heiminn bornir — rödd móöur
sinnar.
>*■ m *»*
Hreindýrasleöi á flugvellinum I Rovaniemi, rétt sunnan heimsskauts baugar i Finnlandi.
Þessi uppgötvun skýrir,
hvernig móöir finnur kálf sinn og
kálfur móður sina, þótt þau veröi
viðskila í fjögur til fimm þúsund
dýra hjörð.
Allir tslendingar, sem einhvern
tima hafa i sveit komið að haust-
lagi, þegar afréttir eru smalaöir
eða fjöllótt heimalönd, minnast
þess, hvernig féð rennur niður
hliðar og höll I stórum breiðum.
Aörir hafa að minnsta kosti séö
þetta á myndum — til dæmis
frægri ljósmynd úr mynni Þjórs-
árdals. A sama hátt er algeng
sjón að sjá mörg þúsund hreindýr
streyma eins og óstöðvandi fljót
niður fjallshliðar i Norður--
Sviþjóð, þar sem mikil hrein-
dýrarækt er stunduð. A undan
fara forystudýr — hreindýr, sem
hafa i sér eðli foringjans, likt og
forystuféð islenzka, sem áður var
mikils metið, en kannski deyr þó
að mestu leyti út með nýjum bú-
skaparháttum — lifir þó áfram,
til dæmis i sögu Gunnars
Gunnarssonar af Fjaka-Bensa og
forystusauði hans. Hvað heldur
hópnum saman? Hvers vegna
týnir kálfurinn ekki móður sinni,
og hvers vegna halda jafnvel
margar mæðgur hópinn?
Kálfurinn á lif sitt að öllu leyti
undir móður sinni komið. Hann
veslaðist upp, ef hann missti
hennar. En svo er hamingjunni
fyrir að þakka, að hann finnur
hana aftur, þótt hann verði við-