Tíminn - 11.02.1973, Síða 13
Sunnudagur 11. febrúar. 1973
TÍMINN
13
n
BB
SOXXAK
RXFOEYHK
þjónusta - sala - hleðsla - viðgerðir
Alhliða rafgeymaviðgerðir og hleðsla
Notum eingöngu og seijum járninnihaldslaust
kemiskt hreinsað rafgeymavatn
Næg bílastæði — Fljót og örugg þjónusta
RÆSIÐ
BÍLINN MEÐI
JÖNNfljfj
Tæhniver
AFREIÐSLA
Laugavegi 168 — Simi 33-1-55
VIÐ
SMÍDUM
HRINGANA
SÍMI 24910
skila við hana i þrengslum og
troðningi ipikils fjölda hreindýra.
Norskur Sami með hreindýr sitt. Þetta er uppáhaldsgripur, með bjöllu
um hálsinn.
Það var þetta, sem Ynge
Espmark hóf að rannsaka fyrir
nokkrum árum. Hann er dósent i
dýrafræði, og hann hefur rann-
sakað hætti hreindýra i réttu um-
hverfi þeirra. Sérgrein hans er
atferlisfræði — varpa á það ljósi,
hvernig dýr hegða sér eins og þau
gera. Nú þegar telur hann sig
hafa svör við sumum þeir spurn-
ingum, sem honum voru efstar i
huga.
Móðir og kálfur geta þekkt
hvort annaö á útliti eða lykt —
mennirnir þekkja til dæmis hvern
annan fyrst og fremst af útliti.
En niöurstaða Espmarks er sú,
að það sé fyrst og fremst röddin,
sem hreindýrin þekkja. Það er
aldrei nákvæmlega sami blær á
rödd tveggja hreindýra, fremur
en fingraför tveggja manna eru
eins. Hvert hreindýr hefur með
öðrum orðum sitt sérstaka ,,mál-
far”.
Yngve Espmark getur lagt
fram rök, sem styðja þetta.
Þegar hann fór fyrst að gruna,
hvaða þýðingu raddblærinn heföi,
fór hann á vettvang með segul-
bönd sin. Hann kannaði alla
hegðun og hætti sömu dýranna
langa-lengi — dýr, sem hann
þekkti oröið eins og hver sá
þekkir dýr, sem hann hefur lengi
umgengizt, hvor sem það er
hestur, sauðkind eða nautkind
eða einhver önnur skepna. Hann
fór lika upp i fjöll og tók upp
raddir margra hreinkúa. Á sama
hátt tók hann upp raddir kálfa.
Þegar hann hafði aflað sér
þannig efniviðar til rannsókna
sinna, tók hann kálfa og setti þá
inn i hús, þar sem mæðurnar
voru ekki og höfðu aldrei verið,
svo að sjón eða þefjan villti ekki
um. Tilraunakálfarnir voru tiu,
og hann hafði raddir allra mæðr-
anna á segulböndum. Hann setti
segulböndin af stað, og þá leyndu
viðbrögð kálfanna sérekki: Hver
kálfur hélt sig að þvi segulbandi,
þar sem hann heyrði rödd móður
sinnar. Aftur á móti létu kálf-
arnir sig engu skipta, þótt leikin
væru segulbönd, sem á voru
raddir annarra hreinkúa.
— Ég þóttist nokkru hafa
áorkað, segir Yngve Espmark,
þegar þessari tilraun var lokið.
Viðbrögð allra kálfanna fóru á
sama hátt. Þeir voru aö reisa
eyrun og hlusta, þeir svöruðu og
þeir ókyrrðust mjög, þegar þeir
fundu ekki móður sina á þeim
stað, þar sem þeir heyrðu rödd
hennar. Það duldist ekki, hvaö
þeim varð kynlega við, þegar þeir
fóru að spigspora i kringum
segulbandið, en gátu hvorki séð
móður né fundið þef hennar.
Seinna gerði, Espmark svipaöa
tilraun með hreinkýr. Þær til-
raunir staðfestu það, sem hann
Yngve Espmark.
Danska konan með hreindýrin sin.
hafði áður komizt að. Það bar
aldrei viö, að hreinkýr villtist á
rödd kálfs sins og einhvers
annars kálfs. Hegðun þeirra var
hin sama og kálfanna. Þær litu
við, hlustuðu, gengu rakleitt að
segulböndunum og vissu ekki,
hvaðan á sig stóð veörið, er þar
var enginn kálfur.
Kálfurinn lærir að þekkja rödd
móður sinnar þegar fyrstu sóla-
hringana. Fyrstu dægrin eru kýr
og kálfur hvort hjá öðru allar
stundir. Kýr slepptir kálfi aldrei
langt frá sér, helzt ekki lengra en
en svo, að henni nægi að snúa sér
við eða teygja hálsinn til þess að
geta sleikt hann. I kálfinum býr
ekki heldur nein hneigð til þess að
vikja frá móður sinni fyrstu
dægrin — og veldur því meðal
annars, að hann svengir fljótt,
svo að hann þarf oft að sjúga.
Hreinkýr, sem komin er að
buröi, leitar að auðum bletti, ef
land er mestu leyti undir snjó.
Hún vill vera ein. Og þarna
heldur hún sig fyrstu dægrin,
nógu lengi til þess, aö kálfurinn
þekkirorðiðmóðurslna ótvlrætt.
Vitaskuld týna kálfar stundum
mæðrum sinum — villast undan.
Þá leita þeir og leita, og sulturinn
þjarmar að þeim. Þá ber við, að
þeir reyna að sjúga aðrar hrein-
kýr en mæður sinar. Kálfurinn
sætir færi, þegar rétta afkvæmið
er að sjúga móður sina. En hann
hefur ekki fyrr gripiö spenann i
munn sé, en babb kemur i bátinn.
Hreinkýrin hleypur burt og gefur
aðkomukálfinum ekki annað færi
á sér. Takist kálfinum ekki að
finna móöur sina aftur, er hann
dauðadæmdur.
Það er þvi viðhaldi stofnsins
mikilvægt, að þetta takist. Þar
kemur raddblærinn til sögunnar.
Þaö er lika sennilega bezta úr-
ræöi náttúrunnar i mikilli þvögu
dýra.
Yngve Espmark hefur verið
spurður að þvi, hvort hann heyri
sjálfur mun á röddum kálfa og
kúa. Hann segir það, að það sé
mannseyra yfirleitt ofviöa, en þó
geti blæmunur verið svo mikill að
það sé auövelt.
— Þegar mikil hjörö hreindýra
streymir fram, segir Yngve
Espmark, heyrist likt og snark
frá stórbáli. Það gnestur i
klaufum þeirra eða liöaböndum.
Þaö er ekki sannað, að þetta hljóð
gegni neinu hlutverki i þágu
stofnsins, en þó ekki ósennilegt,
að það eigi þátt i þvi að halda
hjörð saman.
Þetta er nú lika verið að rann-
saka, en það á sjálfsagt langt i
land, að niðurstaða fáist.
—JH
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
HJOLASTILLINGAR
MÓTOflSTILLINGAR L J Ú S ASTILLIN G A R
Látið stilla i tíma.
Fljót og örugg þjónusta.