Tíminn - 11.02.1973, Page 23
Sunnudagur 11. febrúar. 1973
TÍMINN
■S «•'.
23
ENGIN STORGANGA
FRÁ GRÆNLANDI
;xga8HaH^p.
ÞÓ-Reykjavik: „Ef aö venju læt-
ur, mun eitthvaö af þorski frá
Austur-Grænlandi ganga á is-
landsmiö i vetur, en ekki er von á
neinum stórgöngum. Þar sem
hlýindi eru nú tiltölulega mikil i
sjónum, mun aö óbreyttu ástandi
veröa viöa hrygningarskilyröi
fyrir þorskinn, þegar hlýnar viö
ströndina, og má búast viö, aö
hrygning veröi, eins og i fyrra,
dreifö á stóru svæöi.” Þetta kem-
ur meöal annars fram I skýrslu
Hafrannsóknarstofnunarinnar
um siöasta leiöangur rann-
sóknarskipsins Bjarna Sæmunds-
sonar, en skipið er nú nýkomiö úr
fjögurra vikna leiðangri, þar sem
kannað var magn og útbreiösla
þorsks viö Vesturland.
Með rannsóknum þessum er
ætlunin að fylgjast með göngum
fisk, einkum þorsks, til og frá
hrygningarsvæðunum sunnan og
vestan lands á vetrarvertið með
það fyrir augum að fá sem
gleggsta mynd hvar megin-
hrygiiingin eigi sér stað og árang-
ur héhnar. Samfara þessu fara
Ifram umfangsmiklar athuganir á
ástandi sjávar.
Hitastig sjávar fyrir Suðvestur-
og Vesturlandi er nú tiltölulega
hátt eins og um sama leyti i fyrra.
Vott af þorski var að finna á nær
öllu athugunarsvæðinu, en viðast
hvar var hann mjög dreifður, að-
eins fáeinir fiskar I hverju
klukkustundarhali. Mest fékkst af
þorski á mörkum hlýja sjávarins
úti af Norðvesturlandi (Hali-
Þveráll), um tvö tonn i klukku-
stundarhali. Þarna við mörkin
var einnig mest um æti, bæði
ókynþroska og kynþroska loðnu.
Meginhluti þorskins á þessu
svæði var ókynþroska, sérstak-
lega á Þverálssvæöinu, þar sem
aðeins 1% þorsksins var kyn-
þroska, aðaluppistaða aflans var
2-3 ára óvinnsluhæfur smáþorsk-
ur. Þorskurinn á Halanum var
nokkuð vænni og nær þriðjungur
hans kynþroska.
Helzt var hrygningar- eða ver-
tiðarþorsk að finna þar, sem
botnhiti sjávar var 5 stig á C eða
meiri, það er á svæði sem liggur
frá Djúpál, suður um Vikurál,
Látragrunn og út af Faxaflóa, en
hitastig við ströndina er að venju
Iægra á þessum árstima. Magn
hrygningarþorSksins var þó við-
ast hvar mjög litið, en dreift yfir
tiltölulega viðáttumikið svæði,
mest við Vikurál, um 700 kg á
togtima,en yfirleitt aðeins nokkr-
ir fiskar á togtima.
Aframhald verður á þessum
rannsóknum, sem nefndar eru
vertiðarrannsóknir, þvi fyrir-
hugaðar eru athuganir á fram
leiðni sjávar og þörungamagni.
Vertiöarrannsóknunum verður
stööugt haldið áfram út vertiðina,
og i gær fór rannsóknarskipið
Hafþór til athugunar á Suðvestur-
landssvæðinu og frekari rann-
sókna við Vesturland.
Leiðangursstjóri á Bjarna Sæ-
mundssyni var dr. Sigfús A.
Schopka fiskifræðingur, og að
auki var með i förinni Sólmundur
Jónsson fiskifræðingur, en hann
annaðist rannsóknir á æti.
Leiðangursstjóri á Hafþóri verð-
ur dr. Gunnar Jónsson fiski'-
fræðingur.
I
SKRAÐIR ATVINNU-
EFTIR ÁRAMÓT EN
DESEMBER
eða 292 karlar og 366 konur
.UM M ANAÐAMÓTIN siöustu
vbru 658 manns skráöir atvinnu-
lausir. Þar af eru 292 karlar og
366 konur. Samanlagöur fjöldi at-
vinnulausra á landinu öllu var á
sama tima i fyrra 1103. Sam-
kvæmt siöustu atvinnuleysis-
skráningu, sem miðast við 31.
jan. voru 295 skráðir atvinnulaus-
ir i kaupstööum. t kauptúnum
meö 1000 ibúa og fleiri, 59 og i öör-
um kauptúnum, samtals 304.
I fyrsta skipti siðan skráning
hófst eru nú færri skráðir at-
vinnulausir i janúar en I desem-
ber.
Nú eru skráðar 44 konur at-
vinnulausar i Reykjavik, en voru
aðeins 6 i desember. Kynni hér
um að valda minnkandi vinna
vegna verkfalls togarasjómanna.
Af 47 körlum, sem skráðir eru at-
vinnulausir i Reykjavik eru 40
bifreiðastjórar.
Af 20atvinnulausum á Akureyri
eru 17 vörubifreiðastjórar.
Að þessu sinni var enginn Vest-
mannaeyingur skráður atvinnu-
laus, en 10 voru skráðir i desem-
ber. Hér mun valda ringulreið sú,
sem leiðir af náttúruhamförunum
i Heimaey.
í þremur kaupstaðanna, Kópa-
vogi, Keflavik og Seyðisfirði, er
enginn skráður. atvinnulaus, og
aðeins 1 á Húsavik, 3 á Akranesi
og 3 á ísafirði. Á öðrum stöðum á
Vestfjörðum er enginn skráður
atvinnulaus. tkauptúnunum 47 að
tölu er enginn skráður atvinnu-
laus i 28.
Enn eru skráðir 21 atvinnulaus
i Stykkishólmi, þar af 15 konur.
Skelfiskveiði hefir verið tregari
að undanförnu en ráð var fyrir
gert. A Þórshöfn eru nú skráðir
atvinnulausir 17 karlmenn, þar af
7 vörubilstjórar og lOeldri verka-
menn.
Vegna hráefniskorts i frysti-
húsunum er nokkurt atvinnuleysi
á Sauðárkróki, Hofsósi, Ólafs:
firði, Dalvik, Raufarhöfn, Vopna-
firði og i Neskaupstað, en þar eru
skráðar atvinnulausar 23 konur af
26 alls. A Stokkseyri og Eyrar-
bakka eru 29 og 28 atvinnulausir;
flest konur, enda vertið rétt að
byrja.
Það skal tekið fram, að margt
af fólki þvi, sem skráð er atvinnu-
laust, hefir haft nokkra fhlaupa-
vinnu i mánuðinum.
Landssöfnun hafin
Noregi
•4
r
I
KJ-Reykjavik.
Samkvæmt skeyti,
sem utanrikisráðu-
neytinu barst i gær frá
Osló er hafin mikil
söfnun
vegna
anna
eyjum.
Norsk-islenzka félagið i Noregi
EKKIERMENGUN
ÁÍSLANDSMIDUM
íslenzki fólkinn og fónalitirnir
á óróðursspjöldum
& '.*> ■^fS'* ••
stendur fyrri þessari söfnun, með
stuðningi og samþykki Rauða
krossins i Noregi, Hjálparstofnun
kirkjunnar þar i landi og Norsk
Folkehjelp. Aróðursspjöldum i is-
lenzku fánalitunum og með is-
lenzkum fálka verður dreift um
allt land og m.a. verða spjöid
þessi sett i strætisvagna, skóla,
verzlanir, og á fleiri stöðum, þar
sem almenningur á leið um.
um allan Noreg
náttúruhamfar-
i Vestmanna-
í fyrri viku vöruðu neyt-
endasamtök i Belgiu fólk við
þvi, að borða mikinn fisk.
Mengun hafsins væri komin á
það stig að vart væri ráðlegt
að neyta fiskrétta oftar en
tvisvar i viku. Þetta vakti
eðlilega mikla athygli, enda
fengu samtökin mikið rúm i
blöðum til að koma til-
kynningunni á framfæri. Heil-
brigðisráðuneytið belgiska
sendi frá sér tilkynningu um
málið og sagði þar að of djúpt
væri tekið i árinni.
Það var siðan áréttað i
fréttum og varið til þess
miklum hluta af fréttatima
frönskumælandi hlustenda
sjónvarpsins, að fiskur vaéri
langt i frá eins hættulegúr o
neytendasamtökin vildu, v
láta. Fiskur sá sam h^fna
borðum Belga væri
part af tslandsmiðum
þyrfti að óttast að
spillti fiski sem þar æí
sinn.
s
Þá eru fyrirhugaðir útvarps- og
sjónvarpsþættir til stuðnings
málefninu, og gera menn sér
góðar vonir um undirtektir al-
ménnings við þessa landssöfnun.
Þótt söfnunin sé ekki nema rétt
farin af stað, þá hafa þegar
safnazt 250 þúsund norskar
’■■ kr.ónúr, en það samsvarar um
jSgrem óg hálfri milljón isl. króna.
í It^Sófnunarféð verður sent til Rauða
oás Islands og Hjálparstofnun-
kirkjurinar hér á landi.
Þéss má geta að lokum, að
ihorska stjórnin hefur boðið fram
*; abstoð sina, vegna Heimaeyjar-
'‘■gossLns, og standa yfir viðræður
r-um,'S hvern hátt Norðmenn munu
aðstoða ’ tslendinga.
heldur áfram
á morgun
Tricel efni
Riflað flauel
Riflað rósótt
flauel
Jersey efni
Jersey efni
Ullar terelyne
Terelyne og
bómull
Vetrarbómull
Ullarefni
Köflótt terelyne
Terelyne
kjólaefni
Crimpelene
Handklæði
90 cm
90 cm
90 cm
90 cm
130 cm
120 cm
90 cm
150 cm
150 cm
150 cm
150 cm
60 cm
BORN:
Náttföt
ur
100.
160.
150.
250.
300.
350.-
125.
150.-
250.
195.
250.-
450.
100.
195.-
125.-
150.
Galtabuxur frá
KaÉmENN:
' f';.
Hvítar straufríar
skyrtur
Mislitar straufríar
skyrtur
Krepsokkar
Vinnuskyrtur
Komið meðan
úrvalið er mest
Ótrúlega lágt verð
250.—
450.—
50.—
275.—
Austurstræti 9.