Tíminn - 11.02.1973, Side 37
Sunnudagur 11. febrúar. 1973
TÍMINN
37
SÍBROTAUNGLINGAR
ENN Á FERÐINNI
Tiltölulega litill hópur
afbrotaungling sér
slikum fjölda rann-
sóknarlögreglumanna
fyrir nægum verkefn-
um, að það tefur veru-
lega fyrir rannsókn og
afgreiðslu annarra
mála. Unglingarnir
skáka ávallt i þvi
kjólinu, að þótt þeir séu
teknir fyrir afbrot, sem
á þá sannast, er þeim
sleppt jafnhraðan aftur
og þeir taka til við fyrri
iðju, og stela og skemma
eigur manna, sem kæra
og lögreglan tekur þá
enn, yfirheyrir og
sleppir.
Gott dæmi um þetta eru tveir
ungir menn, sem brutust inn i
Brauðskálann á Langholtsvegi
um siðustu helgi og stálu þar 25
þús. kr. Piltarnir, sem eru 16ára,
flugu austur að Egilsstöðum.
A Egilsstöðum brutu þeir
rúður, skemmdu bil og höguðu
sér á þann hátt, að þeir voru
handteknir og sendir flugleiðis til
Reykjavikur á sunnudag. Þar tók
rannsóknarlögreglan við þeim.
Viðurkenndu þeir innbrotið i
Brauðskálann, og einnig er vitað
um margs konar afbrot, sem þeir
frömdu áður Að venju var
piltunum sleppt að yfireyrzlum
loknum.
I gærmorgun voru sömu
piltarnir handteknir ásamt tveim
öðrum, sem einnig eru sibrota-
menn. Klukkan niu á fimmtu-
dagskvöld voru félagarnir að
koma af sjösýningu i kvikmynda-
húsi og áttu leið framhjá kjóla-
verzluninni Mær i Lækjargötu.
Þótt fólk sé yfirleitt alltaf á ferð i
Lækjargötunni á þessum tima
sólarhrings, voru strákar
áfeimnir við að brjóta rúðu i hurð
kjólaverzlunarinnar og fóru þar
inn. Tókst þeim að stela 10 þús. kr
Þótt rúðan i verzluninni væri
Annar dráttarbátur
mölbrotin var innbrotið ekki
uppgötvað fyrr en um miðnætti.
Ekki er ljóst, hvort einhverjir
hafi farið inn um opnar dyrnar og
náð sér i fatnað á þeim tima.
Úr Lækjargötunni fóru
piltarnir inn i Breiðagerði og
brutu rúðu i Söebeckverzlun og
stálu þar tóbaki. Sömu nóttina
stálu piltarnir einnig bil, en hann
komst aftur til rátts eiganda.
Þrir þeirra pilta, sm hér koma
viðsögueru 16ára gamlirogeinn
15 ára. Hafa þeir allir langan af-
brotaferil að baki, þrátt fyrir
ungan aldur og margoft komizt
undir manna hendur.
Einn þeirra kom nokkuð við
sögu fyrr i vetur, er rannsóknar-
lögreglumenn voru orðnir svo
ieiðir á að handtaka hann og
sleppa, að farið var með hann
heim tii formanns barnaverndar-
nefndar og hann beðinn að taka
við honum, þvi piltar á þessum
aldrei eru ekki dæmdir og ekki
haldið I fanglesi og hið eina sem
lögregiuyfirvöld geta gert er að
taka skýrsiur um afbrot þeirra
og láta barnaverndaryfirvöldum
þær i té, sem segja að vonum, að
börnin eigi ósköp bágt, en ekkert
virðist vera gert raunhæft til að
stöðva afbortaferil þeirra, hvaða
tilgangi sem það kann að
þjóna OO.
HLEÐSLUTÆKI
Fyrir verkstæði 6-24 volt, 4 og 8 amper.
Áætlaö verð kr. 13.100,00
ÚTVEGUÐ MEÐ STUTTUM FYRIRVARA.
Sýnishorn og upplýsingar í verzluninni.
ARMULA 7 - SIMI 84450
Alþýðuhúsið-Hafnarfirði
sali fyrir dansleiki, fundi, fermingarveizlur
erfisdrykkjur o.fl.
Leitið upplýsinga i simum 52423 og 50499.
mm
SÓlaÖÍr HJÓLBARÐAR
til sölu á mjög hagstæðu
verði. Full ábyrgð tekin á
sólningunni. Sendum um
allt land gegn póstkröfu.
Verkstædið opið alla daga kl. 7.30 til 22
nema sunnudaga.
Ármúla 7 — Reykjavik — Simi 30501
fer á íslandsmið
ÞÓ, Reykjavik — Brezka stjórnin
ákvað aðsenda annan
dráttarbát á tslandsmið til
verndar brezkum togurum, en
sem kunnugt er þá er dráttar-
10. skóla-
r
sýning As-
grímssafns
A DAG VERDUR 1«. skólasýning
Asgrimssafns opnuð. Eins og á
hinum fyrri sýningum safnsins er
leitazt við að hafa hana sem fjöl-
þættasta. Sýndar eru olíu- og
vatnslitamyndir, e i n n i g
teikningar.
Asgrimur Jónsson var mikill
unnandi þjóðlegra fræða og ts-
lendingasaga, og varð þetta sögu-
efni honum mikið og margþætt
viðfangsefni i myndlistinni.
Ásgrimssafn hefur gert það að
venju sinni að kynna sum þessara
verka á skólasýningum undan-
farin ár. Og nú hefur þjóðsagna-
myndum verið komið fyrir i
heimili Asgrims, ásamt myndum
úr Njálu og Sturlungu.
1 vinnustofu listamannsins eru
m.a. verk sem hafa ekki verið
sýnd áður. Einnig eldgos-myndir,
en þær voru með allra siðustu
myndum sem Ásgrimur Jónsson
málaði.
Skólasýningar Ásgrimssafns
hafa notið vaxandi vinsælda. Og
eru það ekki einungis nemendur á
höfuðborgarsvæðinu sem heim-
sækja safnið, heldur og nemendur
utan þess.
Sýningin er öllum opin
sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 1.30-4. Skólar
geta pantað sértima hjá for-
stöðukonu safnsins i sima 14090.
Aðgangur ókeypis. Ásgrimssafn,
Bergstaðastræti 74.
Vörubílar
til sölu með stuttum
fyrirvara:
Volvo NB 88 1967,
Volvo FB 88 1966,
Volvo FLB 495 1965,
Henohel 221 1968,
og fleiri vörubilar.
Parca 654 hjólaskófla 1967,
Bogge til Scania og Volvo
dráttarskifur, vökvastýri
o.fl. varahlutir.
Simi 43833
báturinn „Statesman” búinn að
vera brezkum togurum til að-
stoðar og halds á tslandsmiðum i
þrjár vikur.
Dráttarbáturinn, sem bætist
við heitir „Englishman” og er
573 brúttolestir að stærð. Englis-
hman mun leggja úr höfn i Bret-
landi i næstu viku. Samband
brezkra togaraeigenda hefur
fagnað þessari ákvörðun brezku
rikisstjórnarinnar ákafleg, en
brezkir togaraeigendur hafa að
undanförnu beitt áhrifum sinum
til þess, að send yrðu fleiri að-
stoðarskip á Islandsmið.
Dráttarbáturinn „Statesman”,
sem verið hefur i þrjár vikur á
Islandsmiðum hefur varla haft
mikið að gera siðustu vikurnar
þvi Islenzku varðskipin hafa haft
öðrum hnöppum að hneppa siðan
eldgosið byrjaði I Vestmanna-
eyjum, en að klippa á vira
brezkra togara.
Litlar fréttir hafa farið af
brezku togurunum frá þvi að eld-
gosið hófst iVestmannaeyjum, en
vitað er að þeir hafa fiskað eftir
beztu getu innan landhelginnar
þennan tima og allir eru togarar-
nir úti fyrir Austfjörðum.
Eyjasjóður
vestan
hafs
FYRIR tilmæli sendiráðs islands
i Washington hefir American
Scandinavian Foundation stofnað
sérstakan sjóð er nefnist Vest-
mannaeyjasjóður, og mun stofn-
unin veita viðtöku þvi fé, sem
safnast vegna Vestmannaeyja.
Með því móti verða framlög aðila
i Bandarikjunum undanþegin
skatti.
Þriggja manna nefnd mun ann-
astskipulag söfnunarinnar og eru
i henni Ivar Guðmundsson ræðis-
maður, frú Ingibjörg Gislason og
Hans Indriðason. tslendingafélög
og ræðismenn Islands munu
einnig aðstoða og veita nánari
upplýsingar um söfnunina og
einnig sendiráðið i Washington og
fastanefndin I New York. Þetta er
i fyrsta sinn sem American
Scandinavian Foundation hefir
stofnað sjóð eða efnt til söfnunar
vegijia oáttúruhamfara. Stofnunin
tekur ékkert gjald fyrir þátt sinn i
söfnunni.
Rannsóknarstofa
Hóskólans
i lifeðlisfræði óskar að ráða meinatækni,
aðstoðarlyfjafræðing eða einstakling með
hliöstæða menntun til rannsóknarstarfa.
Upplýsingar frá 10-12 i sima 22766.
heldur áfram
Fyrsta tbl. þessa árgangs verður sent út
siðari hluta mánaðarins til áskrifenda.
Þeir sem óska að gerast áskrifendur vinsamlega sendi
áskriftarbeiðni sem allra fyrst i heimilisfang:
Búnaðarhlaðið, Hvassaleiti 18, Iteykjavik, slmar 85153 og
52585 eftir kl. 17.