Tíminn - 06.05.1973, Blaðsíða 2
TÍMINN
Sunnudagur 6. mai 1973.
Hvor á meiri
rétt á að lifa?
Hvers er
rétturinn?
Þess sterkari?
Engin miskunn við ís-
i Churchill við Hud-
1 Manitoba i Kanada er litill
bær, er nefnist Churchill og
stendur við Hudson-flóann. Um
þessar mundir rikir þar hörð
barátta milli bæjaryfirvalda og
dýraverndunarmanna. Orsökin
er sú, að i mörg ár hafa isbirnir
ógnað lifi ibúa bæjarins. Dýra-
vinum var sett lokaskilyrði. Ef
þeir innan hálfs mánaðar fyndu
ekki lausn á vandamálinu, yrðu
allir isbirnirnir skotnir.
A hverju ári gerist það, að
bæjarbúar eru eltir af isbjörnum
og meira og minna særðir. Og
næstum árlega eru einn eða fleiri
limlestir til dauða af hrömmum
isbjarnanna. En dýraverndunar-
menn hafa sina átyllu og hana all-
sterka. Að öllum likindum eru
ekki til nema um 6.000 isbirnir i
heiminum, og eru þeir þvi á list-
anum yfir þau dýr sem eru að
deyja út. Það er þvi ekki að
ófyrirsynju, að i gildi er alþjóða-
samkomulag, er segir, að strang-
lega sé bannað að ofsækja eða
drepa isbirni.
Isbirnirnir sækja að ósunum við
bæinn Churchill. Bærinn stendur
nefnilega á miðri ævaforni leið
hinna hvitu kempa heim-
skautsins. Á hverju hausti koma
þeir frá sumarbústöðum sinum
inni i landi niður að Hudson-flóan-
um, þar sem þeir ná sér m.a. i seli
til að éta. Halda þeir til við
ströndina, unz isinn er orðinn
nægilega sterkur, til að þeir geti
lagtútá hann. Eins og við flesta
bæi er ruslahaugur við Churchill,
og i hann hafa isbirnir sótt og
fundið sér margt gómsætt i
svangan maga.
Þessir birnir eru fyrir löngu
hættir að vera hræddir viö
manninn. Þeir láta lokkast af
matarlyktinni, er smýgur út úr
húsunum. Fyrir kemur að þeir
ráðist á dyr ibúðarhúsa, brjóti
glugga og láti yfirleitt öllum illum
látum við hýbýli manna i Church-
ill. Sumir birnirnir hafa jafnvel
gengið svo langt, að svipta upp
hurðum á kæliskápum.
Lögregla bæjarins hefur reynt
mikið til að fanga birnina, sett
upp gildrur og slikt, en ekkert
gengur. Morguninn eftir spásséra
þeir aftur um götur bæjarins, —
glugga i búðarglugga, skoða ráð
húsið og járnbrautarstöðina. I
fyrra ætluðu yfirvöld bæjarins að
láta alvarlega til skarar skriða
gegn björnunum, en á siðasta
andartaki gátu dýraverndunar-
menn komið þvi til leiðar, að að-
gerðinni var slegið á frest. Undir
stjórn hins 32 ára Brian Davis
fulltrua i alþjóðastofnuninni um
dýravernd, var skipulögð geysi-
leg björgunaraðgerð. Með sér-
stakri byssu, sem i stað skota
innihélt sprautur með deyfi-
lyfjum, var gengið til móts við
hvitu kempurnar. Nálarnar
stungust i hvita felldina og lyfið
streymdi inn i blóðið, sem or-
sakaði stuttan, en algjöran svefn
bjarnanna. 1 þvi ástandi voru þeir
teknir og þeim komið fyrir i
búrum, sem hvert rúmaði eitt
Við velíum runiari
það borgar sig
♦
nmtal * OFNAR H/F.
< Síðumúla 27 . Reykjavík
Símar 3-55-55 og 3-42-00