Tíminn - 06.05.1973, Qupperneq 9
Sunnudagur 6. mai 1973.
TÍMINN
9
Margt býr í þokunni sýnt á Árvöku Selfoss
Vestmannaeyingum á ,,fasta landinu"var vel
lok leiksýningar
fagnað í
Eitt af þeim dagskráratriðum,
er i boði voru á Árvöku Selfoss,
sem hófst að þessu sinni
miðvikud. 18. april og lauk að
kvöldi annars páskadag, 23. april
— var sýning Leikfélags Vest-
mannaeyja á sakamálagaman-
leikritinu, Margt býr i þokunni.
Enda þótt skammt sé „milli
lands og eyja” er þó vik milli vina
— oftast nær. Það er ekki á
hverjum degi sem Sunnlendingar
eiga þess kost að sjá leiksýningu
hjá Leikfélagi Vestmannaeyja.
Atvikin hafa þó hagað þvi svo, að
nú um þessar mundir eru flestir
Vestmannaeyjaribúar ,,á fasta
landinu” — Það var þvi vel til
fallið að fá það ágæta fólk úr
Vestmannaeyjum, sem getiö
hefur sér mjög góðan orðstir, á
leiklistarsviðinu á liðnum árum,
til þess að skemmta Arnesingum,
eina kvöldstund.
Eins og vænta mátti var
salurinn i Selfossbiói þéttsetinn á
leiksýningunni og sjaldan hef ég
séð eða heyrt jafn ánægða leik-
húsgesti halda heim af leik-
sýningu og þá fjölmörgu, er
horfðu á sýningu Vestmanna-
eyinganna i Selfossbiói að kvöldi
fyrsta sumardags þ. 19. april s.l.
Margt býr i þokunni — er
sakamálagamanleikur i 3
þáttum. Höfundar eru William
Dinner og William Morum.
Þýðandi er Asgerður Ingimars-
dóttir. Leikstjóri er Ragnhildur
Steingrimsdóttir.
Alls eru hlutverkin 8 og þrjú
þau viðamestu, vistkonurnar af
fátækra hælinu, sem hafa lent i
þoku á litilli bátkænu, villzt af
réttri leið og lentu um siðir á
ókunnri strönd. Þar hafna þær i
mannlausu húsi — og gerast sinir
eigin húsbændur — himinlifandi
og hamingjusamar að vera
lausar úr viðjum hælisins. En
„Adam var ekki lengi i Paradis”
og „ævintýrin bókstaflegahlaðast
upp i kringum þær —■ jafnvel ást-
fanginn læknir á erindi við þær —
auk margra annarra.
Fyrirliði þessara heiðurs-
kvenna er Freda Grey (Ásta
Bjartmars), Edie Boggs (Unnur
Guðjónsdóttir), er hin „fingra-
langa”, en úrræðagóða kona,
sem oft bjargar stórum vanda á
skömmum tima. Sú þriðja i
þessum hópi er hin draumlynda
skáldkona Joy Philpotts (Marta
Björnsd.) Hún lifir að hluta i sin-
um eigin hugarheimi og hefur
næstum eyðilagt „ævintýrið”
masi sinu og istöðuleysi.
Onnur hlutverk eru: John
Hunter, læknir (Jóhann Björns-
son), Paul Vanderbloom
(Gunnar Sigurmundsson) Jackie
Jackson (Edda Aðalsteinsdóttir)
Joe Pollop (Sigurgeir
Scheving), lögregluþjónn
(Trausti Eyjólfsson)
1 heild var leiksýning þessi
mjög vel heppnuð og öllum.sem
að unnu.til mikils sóma.
Stjórn Leikfélags Vestmanna-
eyja skipa nú: Formaður Gunnar
Sigurmundsson, ritari Edda
Aðalsteinsdóttir, gjaldkeri Unnur
Guðjónsdóttir, varaform. Stefán
Arnason, meðstj. Jóhann Björns-
son og Einar Þorsteinsson.
Framkvæmdarstj. Unnur
Guðjónsdóttir.
— Jú, við reynum að halda
hópinn. Hugmyndin er að sýna
þetta leikrit ef til vill viðar hér
suövestan lands áður en langt um
liöur, — og von okkar er sú, að
hefja starfið á heimaslóðum,
þegar athafnalifið hefst á nýjan
leik á Heimaey og fólki fjölgar
þar aftur.”
Þannig komst kunningi minn
einn ágætur að orði, að lokinni
leiksýningu, er ég hitti hann að
máli og spurði um framtiðar-
fyrirætlanir.
Vonandi verður þessu áhuga-
sama fólki i Leikfélagi Vest-
mannaeyja að ósk sinni.
Hafi það beztu þökk fyrir ágæta
leiksýningu Stefán Jasonarson
KOMIÐ - SKODIÐ OC KYNNIST
VOLKSWAGEN
A BIIASYNIN60NNI I KLUTACOIUM
ÞESSAR GERÐIR SÝNUM VIÐ
V.W. 1200 - 1300 - 1303
V.W. 1303 LS. sjálfskiptur
Fastback 1600 TL
Variant 1600 L
K 70 L
Sendiferðabifreið
Pallbifreið
Pappbifreið með tvöföldu húsi
Kombi — Micro-Bus
Camper (húsvagn)
10 ÞUSUNDASTI VOLKSWAGENBILLINN, SEM FRAMLEIDDUR ER
FYRIR ÍSLAND ER TIL SÝNIS Á B ÍLASÝNINGUNNI
Þegar þér kaupið Volkswagen þá eignist þér bil með frá-
bærum tæknikostum, sem byggjast á áratuga reynslu og
háþróaðri tækni,, sem aðeins Volkswagen getur veitt yður.
Voikswagen varahlutir og aukahlutir eru framleiddir af sömu
vandvirkni og nákvæmni og eru ávailt fyrirliggjandi.
BÍLASÝNING
1973
Volkswagen viðgerðarþjónusta, með sérhæfðum viðgerða-
mönnum, verkfærum og nýjustu tækni, — jafnvel tölvustýrð-
um bilanagreini tryggir hagsmuni þeirra, sem kaupa
Volkswagen.
Volkswagen viðgerða- og varahlutaþjónusta er nú um land
allt, enda er það okkar skoðun að hlutverki okkar sé ekki
lokið við sölu og afhendingu nýja Volkswagen-bilsins.
Volkswagen er mest seldi bíllinn, og í hæsta endursöluverði allra bíla á Islandi.
- ALLTAF FJOLGAR VOLKSWAGEN -
Laugavegi 170—172
21240
k~.'