Tíminn - 06.05.1973, Page 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 6. maí 1973.
Hópur eldri nemenda var aö venju við skólaslitin, og af hálfu nemenda, er brautskráftust fyrir 10 árum, tók tii máls Jónas Gestsson útibús
stjóri, Grundarfirði, og afhenti skólanum að gjöf sérstætt iistaverk eftir Jón Benediktsson, er ber nafnið KERFIÐ.
Nem-
endur
í vetur
voru 85
talsins
skólans, Vigdis Pálsdóttir,
Félagsstyttuna, verðlaunagrip,
sem veittur er sem viðurkenning
þeim nemenda, sem bezt hefur
unnið að félagsmálum. Styttuna
hlaut aö þessu sinni Jörundur
Hilmar Ragnarsson frá Kópa-
vogi.
Skóladúxinn, Erna Sigurósk
Snorradóttir, fékk sérstök verö-
laun fyrir frábæran náms-
árangur.
Hópur eldri nemenda var að
venju við skólaslitin. Af hálfu
nemenda, er brautskráðust fyrir
lOárum, tók til máls Jónas Gests-
son, útibústjóri, Grundarfiröi, og
afhenti skólanum að gjöf sérstætt
listaverk eftir Jón Benediktsson,
er ber nafnið Kerfið.
SAMVINNUSKOLANUM
BIFRÖST SLITIÐ
SAMVINNUSKÓLANUM Bifröst
var slitið þriðjudaginn 1. mai sið-
ast liðinn. Skólaslitaathöfnin fór
fram i hátíðasal skólans aö viö-
stöddu fjölmenni. Athöfnin hófst
með yfirlitsræöu skólastjórans,
sira Guðmundar Sveinssonar.
Nemendur skólans voru vetur-
inn 1972-1973 85 talsins, 4(> I l.bekk
og 39 I 2. bekk. Hafa nemendur
aldrei verið svo margir.
Á föstu starfsliði skólans varð
sú ein breyting á skólaárinu, að
ráðsmaður staðarins, Sigurður
Ólafsson frá Litla-Skarði, lét af
starfi, en við þvi tók Benedikt
Jónasson, smiöur, frá Reykjavik,
og hafði Benedikt áður verið
ráðsmaður Bifrastar. — Óvenju-
lega margir aukakennarar störf-
uðu við skólann. Verulegar
breytingar urðu bæði á námsefni
og kennsluaöferðum, kennslu-
tækni. Voru meðal annars felld
sjálfstæð námskeið inn i kennsl-
una, svo sem i tölvufræðum og
áætlanagerð. Þá var tekin upp
hópkennsla i mörgum greinum,
samhliða hefðbundinni kennslu.
— Nemandi i framhaldsnámi á
vegum samvinnusamtakanna,
Guðbjartur össurarson, annaðist
kennslu að hluta um sex mánaða
skeið, jafnframt þvi, sem hann
stundaði viðamikið bóknám.
Námsárangur var mjög góður.
1 1. bekk hlutu tveir nemendur
ágætiseinkunn: Kristin Einars-
dóttir, Reykjavik, 9,06, og Gisli
Haraldsson, frá Hafnarfirði, 9,00.
1. einkunn hlutu 43 nemendur, þar
af fengu 28 einkunnin 8.00 og þar
yfir. 2. einkunn fékk einn
nemandi og enginn lægri.
Allir nemendur 2. bekkjar, 39
að tölu, luku burtfararprófi.
Arangur varö einn sá allra bezti,
sem nokkru sinni hefur náðst i
skólanum: Agætiseinkunn hlutu
sex nemendur, þessir: Erna
Sigurósk Snorradóttir, frá
Hvammstanga, 9,27, Viðar Guð-
mundur Elisson, frá Reykjavik,
9,24, Guðný Sigriður Þorsteins-
dóttir, frá Laxárdal i Hrútafirði,
9,18, Agnes Ingvarsdóttir, frá
Höfn i Hornafirði, 9,01, Jón Eð-
vald Friðriksson, frá Sauðár-
króki, 9,01, og Páll Snorrason frá
Hvammi i Hrafnagilshreppi, 9,00.
— 1. einkunn hlutu 30 nemendur,
þar af fengu 18 einkunnina 8.00 og
þar yfir. 2. einkunn hlutu 3
nemendur og enginn lægri eink-
unn.
Aö yfirlitsræðu lokinni las
skólastjóri að venju meðaltals-
einkunnir allra nemenda skólans.
Þá voru hinum brautskráðu
nemendum afhent prófsklrteini
sln.
Næst voru verðlaun veitt.
Umsjónarmenn skólans hlutu
viðurkenningu fyrir störf sin,
Björn Gunnarsson, umsjónar-
maður i 1. bekk og Ágúst Már
Grétarsson, umsjónarmaður 2.
bekkjar og skólans alls. Bók-
færsiubikarinn hlaut að þessu
sinni Ingvar Ólafsson frá Reykja-
vik. Verðlaun Verzlunarmanna-
félags Reykjavikur fyrir beztan
árangur i vélritun fékk Óskar
Steingrimsson frá Akureyri, en
skólinn veitti öðrum brautskráð-
um nemanda samsvarandi verð-
laun, Viðari Guðmundi Elissyni
frá Reykjavik, þar sem árangur
þeirra beggja var svo jafn og
óvenjulegur. Viðurkenningu frá
danska sendiráðinu fyrir mikla
hæfni I dönsku hlutu tveir
nemendur, Erna Sigurósk
Snorradóttir 9,5 og Guðný
Sigriður Þorsteinsdóttir, 9,1.
Viðurkenningu frá þýzka sendi-
ráðinu fyrir kunnáttu i þýzku
hlutu fjórir nemendur: Erna
Sigurósk Snorradóttir 9,8: Guðný
Sigriður Þorsteinsdóttir 9,7:
Jensina Hjálmtýsdóttir frá
Reykjavik 9,7: og Inga Jóna
Sturludóttir frá Sturlu-Reykjum
9,5.
Samvinnustyttuna fyrir kunn-
áttu i samvinnusögu fékk Högni
Gunnarsson, Hjarðarfelli. — Þá
afhenti formaður
Nemendasambands Samvinnu-
Við skólaslitin fluttu, sem
tiðkast hefur, nokkrir heima-
manna stuttar ræður. Fulltrúi 1.
bekkjar var Halldór Ingimar
Halldórsson frá Hnifsdal, 2.
bekkjar var Jóhann Jónsson frá
Akranesi, en af hálfu kennara
mætti Hrafn Magnússon.
Undir lok skólaslitanna ávarp-
aði skólastjóri hina brautskráðu
nemendur, flutti þeim heilla- og
árnaðaróskir, en ræddi sérstak-
lega kenningar og fræði franska
fræðimannsins Jacques Lacans
og gerði nokkur skil hugmyndum
hans um eðli og þróun þekkingar-
innar.
Við skólaslitin lék Gunnar
Egilsson á klarinett við pianó-
undirleik Halldórs Haraldssonar.
Setti það sérstakan svip á hátiða-
höldin, svo og söngur nemenda-
kórs Samvinnuskólans. Kórinn
söng undir stjórn Guðjóns Páls-
sonar, söngstjóra frá Borgarnesi.
Aður en heim var haldið, þágu
viðstaddir veitingar.
39 luku
brott-
fararprófi
y
Hér má sjá þá, sem útskrifuðust frá Samvinnuskóianum nú i vor.