Tíminn - 06.05.1973, Síða 25

Tíminn - 06.05.1973, Síða 25
Sunnudagur 6. mai 1973. TÍMINN 25 Julius Katchen leikur á pianó verk eftir Brahms. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Siödegissagan: „Sól dauðans” eftir Pandelis Prevelakis Þýöandinn Sig- urður A. Magnússon les (3) 15.00 Miödegistónleikar: Fou Ts’ong leikur á pianó Svitu nr. 14 i G-dúr eftir Handel og Capriccio i B dúr eftir Bach. Ida Haendel leikur á fiölu Sónötu i G%dúr eftir Tartani, Prelúdia og Alle- gro eftir Pugnani / Kreisler, Scherzo-Tarantellu op. 16 eftir Wieniawski og Til- brigöi á g-streng eftir Paganini. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir. Tilkynningar. 16.25 Popphorniö 17.10 Tónleikar. 18.00 Eyjapistill. Bænarorö. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Dagiegt mál Helgi J. Halldorsson cand. mag. flytur þáttinn. 19.25 Strjálbýli — þéttbýli Þáttur i umsjá Vilhelms G. Kristinssonar fréttamanns. 19.40 Um daginn og veginn Vésteinn Ólason lektor talar. 20.00 Islenzk tónlista. Consert fyrir Kammerhljómsveit eftir Jón Nordal. Sinfóniu- hljómsveit Islands leikur, Bohdan Wodizko stj. b. Canto elegiaco eftir Jón Nordal Einar Vigfússon sellóleikari og Sinfóniu- hljómsveit Islands leika, Bphdan Wodizko stj. 20.30 David Livingstone, — 100. ártiö Ólafur Ólafsson kristniboði talar. 20.55 ÓÓMyndir úr þorpi” (Dorfszenen) eftir Béla Bartók Irmgard Seefried syngur. Eric Werba leikur á / pianó. 21.10 tsienzkt mál Endur- tekinn siðasti þáttur dr. Jakobs Benediktssonar. 21.30 Útvarpssagan: „Músin, sem læöist” eftir Guöberg Bergsson Nina Björk Árna- dóttir byrjar lesturinn. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Búnaöar- þáttur Guðmundur Jósa- fatsson frá Brandsstöðum talar um fóðrun og afuröir. 22.35 Hljómplötusafniö i umsjá Gunnars Guðmunds- sonar. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dagskrarlok. Sunnudagur 6. maí 1973 17.00 Endurtekið efni. A reg- infjölium. Siöari hluti kvik- myndar frá ferö sjónvarps- manna norður um hálendi Islands. Meðal annars er staldrað við I öskju, Dyngjufjöllum og Herðu- breiðarlindum. Umsjónar- maður Magnús Bjarnfreðs- son. Aður á dagskrá 28. mai 1972. 17.25 Frá hafi til hafs.Banda- risk fræðslumynd um möguleika á gerð nýs skipa- skurðar gegnum Panama- eiðiö og áhrif þau, sem slik- ur fiskgengur skurður gæti haft á jafnvægi lifsins i höf- unum báðum megin Ame- riku. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. Áður á dagskrá 10. marz sl. 18.00 Stundin okkar. Sólskins- kórinn syngur og þrjár stúlkur dansa „katta- tangó.” Haldiö verður áfram spurningakeppninni og sýndur þáttur úr leikrit- inu um galdrakarlinn i Oz og mynd um Magga nær- sýna. Einnig koma Baldur og Konni og páfagaukurinn Máni fram i þættinum. Um- sjónarmenn Sigriður Mar- grét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefáns- son. Ályktun flokksstjórnarfund- ar SVF 28. og 29. apríl 1973 18.55 Enska knattspyrnan 19.50 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Undir Jökli. Kvikmynd, sem Sjónvarpið hefur gert um þjóösagnafjallið Snæ- fellsjökul og ibúa byggð- anna undir Jökli. Rætt er við fólk og fjallað um áhrif Jökulsins á mannlif og menningu. Meðal þeirra, sem koma fram i myndinni eru Jakobina Þorvaröar- dóttir, Þórður Halldórsson og Zophonias Pétursson. Tónlist Anton Bruckner. Klipping Erlendur Sveins- son. Hljóösetning Marinó Ólafsson. Umsjón og kvik- myndun Sigurður Sv. Páls- son. 21.05 Þættir úr hjónabandi. Nýtt framhaldsleikrit eftir Ingmar Bergman. Aðalhlut- verk Liv Ullmann og Erland Josephson. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. Hjónin Marianna og Jóhann, aöal- persónur leikritsins, eru vel menntað fólk á miðjum fer- tugsaldri. Þau búa við efna- hagslegt öryggi og eiga tvær stálpaðar dætur. Þó vaknar einn góöan veðurdag spurn- ingin um það á hvaða grunni hjónaband þeirra sé reist, og hvort hjónabönd yfirleitt séu ekki fyrst og fremst þjóðfélagslegur ávani. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) 21.55 Horfinn heimur. Banda- risk fræðslumynd um rann- sóknir á fornum mannvist- arleifum i Noröur- og Suður- Ameriku. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 22.40 Aö kvöldi dags. Sr. Bjarni Sigurðsson á Mosfelli flytur hugvekju. 22.50 Dagskráriok. Mánudagur 7. maí 1973 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Galdur. Fyrri hluti. Upptaka frá keppni þriggja sjónhverfingamanna i Osló. (Nordvision — Norska sjón- varpiö) Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 20.55 Ramminn. Sjónvarps- leikrit eftir finnska leik- skáldið Lauri Leskinen. Leikstjóri Eila Arjomaa. Aðalhlutverk Toivo V. Pent- tinen og Bertta Korpi. Þýð- andi Guðrún Hettinen. Aöal- persónurnar eru miðaldra bændahjón i fremur af- skekktri og viðburðasnauöri byggð. Þótt þau séu ekki beinlinis ung, eru þau ný- gengin i hjónabandið, og dag nokkurn ákveða þau að létta sér upp frá hversdags- amstri við búið og bregða sér til bæjarins til að kaupa ramma utan um brúökaups- myndina. (Nordvision — Finnska sjónvarpið) 21.55 Hirósima. Hollenzk kvikmynd úr myndaflokki um þróun nokkurra borga frá striðslokum. Þessi mynd er tekin i Hirósima i Japan árið 1970, þegar aldarfjórð- ungur var liðinn frá þvi kjarnorkusprengju var varpað á borgina. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 22.35 Dagskrárlok. BARNALEIKTÆKI * ÍÞRÓTTATÆKI Vélavork*t»ði BERNHARDS HANNESS., SuSurlaodtbraut 12. Simi 35810. FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR SFV telur, að leita þurfi allra til- tækra ráða til þess að tryggja raunverulegt gildi útfærslu land- helginnar i 50 sjómilur. Skýrslur um aflamagn brezkra togara hér við land sýna svo ekki verður um villzt, að þær aðgeröir, sem beitt hefur veriö, hafa ekki megnað að draga úr veiðimagni svo sem til var ætlazt. Telur fundurinn, að kanna beri til hlitar hvort tiltæki- legt kunni að vera að ná sam- komulagi við Breta og Vest- ur-Þjóðverja. Náist ekki slikt bráðabirgðasamkomulag, sem gildi fram til þess tima, er niður- staða hafréttarráöstefnu Samein- uðu þjóðanna liggur fyrir, og verulega dragi úr sókn þessara þjóða i fiskistofnana hér við land og árlegu aflamagni, verði að- gerðir gegn landhelgisbrjótum auknar eftir föngum. Flokksstjórnarfundurinn fagn- ar þvi, að allar horfur eru nú á þvi að hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna taki til starfa snemma á næsta ári og að hún muni setja gildandi þjóðarréttarreglur um viöáttu fiskveiðilögsögu strand- rikja, sem tslendingar geti við unað, þ.á.m. um viöurkenningu á yfirráðum og eignarrétti þjóða á lifandi auölindum i hafinu yfir landgrunninu. Fundurinn telur þvi rétt og sjálfsagt, að utanrikis- ráðherra komi á framfæri við Alþjóðadómstólinn (ekki siöar en 15. janúar 1974) tilmælum af ts- lands hálfu um, að dómstóllinn fresti dómsúrskurði i málum Breta og Þjóðverja gegn rikis- stjórn tslands, þangað til niður- stöður hafréttarráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna liggja fyrir, þannig að tryggt verði, að úr- skurður dómstólsins verði i sam- ræmi við þær niðurstöður. Telur fundurinn þetta nauðsynlegt bæði vegna hagsmuna tslands og hinna fjölmörgu þjóða, sem hafa sömu hagsmuna að gæta og tslendingar vegna þess að þær hafa af sömu nauðsyn og Islendingar og með skirskotun til sama réttarskiln- ings og þeir fært út fiskveiðilög- sögu sina i allt að 200 sjómilur. Fundurinn telur, að grandskoða beri, hvort rétt sé að tslendingar taki upp málsvörn i Haag eða ekki, en hvetur til þess, að afstaða til þess máls verði ekki tekin fyrr en að þaulhugsuðu máli. Hins ve- gar leggur fundurinn áherzlu á nauðsyn öflugs kynningarstarfs i landhelgismálinu og telur sjálf- sagt, að sýnt verði fram á með miklu itarlegri hætti á alþjóða- vettvangi en gert hefur verið til þessa, að það sjónarmið var rétt, sem andstæðingar samnings- gerðarinnar lýstu yfir á Alþingi 1961, að landhelgissamningurinn við Breta þá væri hreinn nauðungarsamningur, gerður af ótta við áframhaldandi ofbeldis- aðgerðir af hálfu Breta, sem hót- anir voru beinlinis hafðar um, eins og nýjar upplýsingar i mál- sóknárskjali Breta um lögsögu dómstólsins bera ótvirætt vitni um. 1 þessu sambandi telur fund- urinn eðlilegt, að allar ofbeldisaö- gerðir Breta gegn tslendingum, þar á meðal frá löndunarbanninu eftir útfærsluna 1952 og á árunum 1958-1960, verði rækilega raktar með tiltækum gögnum og þeim m.a. komið á framfæri við dóm- stólinn á þann hátt sem rikis- stjórnin ákveður. Flokksstjórnarfundurinn vænt- ir þess fastlega, að rikisstjórnin muni hér eftir sem hingað til ná samstöðu um að móta stefnu i landhelgismálinu, sem þjóðarein- ing geti tekizt um. Fundurinn minnir á, að jafn- hliða þvi, sem við Islendingar reynum að verja fiskistofnana við landið gegn ofveiði af hálfu út- lendinga, ber okkur skylda til og nauðsyn að setja skynsamlegar reglur um okkar eigin nýtingu á fiskimiðum. Harmar fundurinn að siðasta Alþingi skyldi ekki lög- festa slikar reglur. Fundurinn fagnar þeim árangri, sem náðst hefur I tið nú- verandi rikisstjórnar i margs konar félagslegum umbótum og öðrum hagsmunamálum launþega um leið og hann heitir á landsmenn að standa vörð um áframhaldandi uppbyggingu og efndir á fyrirheitum. Flokksstjórnarfundurinn fagn- ar gegnishækkun islenzku krón- unnar um leið og hann lýsir stuðningi sinum við áframhald- andi aðgerðir til að draga úr veröbólgu. Heitir fundurinn á rik- isstjórn og launþegasamtök að vinna sameiginlega að slikum aö- gerðum. Fundurinn telur ákvörðun rik- isstjórnarinnar um gengishækk- un nú staðfestingu á réttmæti þeirrar stefnu SFV við lausn efnahagsvandans i desember sl. að taka upp sveiganlega skrán- ingu gengis. INNLENT LAN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1973 1.FL ÚTBOÐ AOG B SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Fjármálaráðherra hefur á grundvelli laga nr. 8 frá 25. apríl 1973 (lántökuheimilolir vegna framkvæmdaáætlunar 1973) ákveðið útgáfu og sölu verðtryggðra spariskírteina að fjárhæð allt að 175 millj. króna. Hefst salan um 28. maí n.k. Geta kaupendur nú í fyrsta sinn valið á milli tveggja skírteina, A-skírteina, með sömu kjörum og verið hefur og nýrra B- skírteina, sem endurgreiðast með jöfnum árgreiðslum auk verðbóta. Bæði A- og B-skírteini eru verðbætt i hlut- falli við breytingar í byggingarvísitölu og þau eru skatt- og framtalsfrjáls, eins og verið hefur. A SKÍRTEINI eru til 14 ára, innleysanleg eftir fimm ár, þegar eigandi óskar, meðaltalsvextir 5% á ári. B SKÍRTEINl eru til 15 ára, en innleysanleg með jöfnum árlegum greiðslum afborgana og vaxta, 5% á ári (annuitets lán), auk verðbóta. Eiganda er í sjálfsvald sett, hvort hann notar árlegan innlausnarrétt eða ekki. Hann get- ur því dregið árlega innlausn fram yfir gjalddaga árgreiðslumiða og fengið hann innleystan seinna með verðbótum. Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja frammi hjá venjulegum söluaðilum, sem taka á móti áskriftum á skírteini frá og með fimmtudeginum 10. maí n.k. Reykjavík, 4.mai1973 SEÐLABANKI ISLANDS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.