Tíminn - 06.05.1973, Qupperneq 26

Tíminn - 06.05.1973, Qupperneq 26
26 TÍMINN Sunnudagur 6. mai 1973 L Hinni smávöxnu fimleikakonu vöknaði um augu og hún beit á vörina cftir mistökin á svifránni Olga Korbut Litla stúlkan sem heillaði Venjulega er sagt frá i samhengi, þegar spurn- ingu er svarað, en i þetta skipti verð ég að brjóta þessa reglu, þar sem ég kynntist Olgu Korbut, þegar hún sem 13 ára gömul hafði náð svo góð- um árangri i fimleikum, að henni var boðið að æfa með sovézka lands- liðinu. Það var fyrir fjórum árum i íþrótta- höllinni i Moskvu. Ég hafði gaman af að vera við- staddur þessar æfingar, sitja á bekk úti i horni og fylgjast með, hvernig æfingin var endurtekin tiu, fimmtiu og hundrað sinnum. Og siðar þegar á keppni stendur, kemur fimleikakonan 'brosandi fram á sviðið og gerir margbrotn- ar æfingar, að þvi er virðist án nokkurrar fyrirhafnar, finnur þú hinn sterka vilja og þolinmæði, sem liggur á bak við æfingar fim- leikakonunnar, sem heillar milljónir aðdáenda. Olga dró að sér athyglina þegar i stað. Ekki bara vegna þess, að hún var ný á sviðinu og ekki ein- göngu vegna aldurs sins, en hún var barn i samanburði við hinar leiðandi stjörnur. Olga á furðu- lega létt með að einbeita sér og lét það sem fram fór i kringum sig ekki trufla sig, þegar hún þeyttist upp og niður á slánni í erfiðum og flóknum æfingum. Klukkustund áður hefði ég ekki getað látið mig dreyma um að framkvæma slikt. Ég veit, hvað vinna við fimleika- æfingar er. Ég hef verið svo hepp- inn að geta fylgzt með æfingum Larisu Latyninu, Nataljiu Kuchinskaja og Larisu Petrik. Olga vinnur á annan hátt en þær. Hún vinnur ákveðið og er full andagiftar, eins og hún væri að keppa, en ekki að æfa. Tveim árum sfðar stóðu mörg þúsund áhórfendur i áhorfenda- pöllum Iþróttahallarinnar (og jafnvel gráhærðir, heimsvanir áhorfendur) á öndinni og siðan hófust ofsaleg fagnaðarlæti þegar undrunin breyttist i aðdáun. Ljós- hærð stúlka með hvitrússneska skjaldarmerkið á iþróttabúningi sinum, sveiflaði sér niður frá efri slánni, stóð grafkyrr og sveif framundan neðri slánni eins og þokkafullur mávur. Ekki einn einasti fimleikamaður i heimi hafði getað framkvæmt svo flókna æfingu áður. Ég er aftur staddur á æfingu. Olga er ekki lengur byrjandi i landsliðinu. Hún er sovétmeist- ari. En allt er eins og áður. Ef til vill eru hreyfingar hennar ennþá fullkomnari, gæddar meiri yndis- þokka. Nú hafði Olga fengið verk að vinna, það var að fylgjast með 13 ára gamalli skólastúlku frá Tbilisi. Henni hafði verið boðið að þjálfa með landsliðinu alveg eins og Olgu fyrir 2 árum. Olga þjálf- aði og leiðbeindi þessu undra- barni, sem hafði stormað upp á tindinn án þess að taka tillit til titla eldri keppinauta sinna. Nú sátum við Olga úti i horni á leikfimissalnum og horfðum á Ninu og Olga svaraði spurningum minum. Já, hún var fædd i Grodno, sem er borg i Hvitarússlandi. Faðir hennar er byggingaverkfræðing- ur. Hann er mikill fþróttaunnandi og mjög góður skotmaður. Systur hennar Irena og Zemfira eru hrifnar af blaki og þriðja systirin Ljúdmila er lika fimleikakona. Hún er iþróttameistari. Það var húnsem fór með Olgu i iþrótta- skóla, þegar hún var niu ára. Eléna Valtsetskaja fyrrverandi heimsmeistari þjálfaði hana fyrsta árið. Þá tók Renald Knysh, einn af fremstu þjálfurum landsins, við. „Kennarar minir höfðu mikil áhrif á mig frá upphafi og inn-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.