Tíminn - 20.05.1973, Blaðsíða 29
Sunnudagur 20. mai 1973
TÍMINN
29
Sumarsýning í Listasafni íslands
AAörg ný listaverk
LISTASAFN Islands opnar i dag I anddyri eru sýndar högg-
sumarsýningu i húsakynnum myndir, málverk og grafik. Þar
safnsins viö Hringbraut. eru nýlega keypt verk eftir Bengt
Urvalshjólbaröar
Flestar gerbir ávallt
fyrirliggjandi
Fljót og góö þjónusta
%
STEINGRIMS
FJARÐAR
Málverkasýning Kára
i Myndlistarhúsinu á Miklatúni opin i dag
frá kl. 10 til 22 i kvöld. — Mánudag frá kl. 4
til 22, sem aðra virka daga.
Lindström, sömuleiðis verk eftir
Asger Jorn, Bram van Velde,
Hans Hartung, Onnu Evu Berg-
mann og fleiri svo og eftir Gunn-
laug Scheving, Karl Kvaran,
Ragnheiöi Jónsdóttur, Sigriöi
Björnsdóttur, Björgu Þorsteins-
dóttur, Jens Kristleifsson og
Arnar Herbertsson.
I fyrsta sal er sýnd altaristafla
Guðmundar Thorsteinssonar,
sem nýkomin er úr gagngerri viö-
gerö, en hún hefur ekki verið sýnd
i salarkynnum safnsins siöan viö
opnun þess 1951. Þar eru og fleiri
myndir eftir Mugg og oliumál-
verk og vatnslitamyndir eftir
Asgrim Jónsson.
í öörum saleru aöallega verk er-
lendra listamanna, meðal annars
verk eftir danska listamenn, gjöf
til safnsins frá Louis Foght. Þá
eru þar einnig verk eftir Hartung,
Vasarely, Piaubert, önnu Evu
Bergmann og Herbin, svo og verk
eftir Ninu, Þorvald og Svavar.
1 þriðja sal eru verk eftir Jón
Stefásson, m.a. nokkur sem ekki
hafa verið sýnd i safninu áður,
svo og málverk eftir Kjarval.
Sum þeirra eru nýkomin úr við-
gerð og hreinsun.
1 innsta salnum eru tvö stór
málverk eftir Gunnlaug Schev-
ing, dánargjöf listamannsins til
safnsins. Þar eru einnig verk eftir
Jón Engilberts m.a. nýkeypt
mynd „Madam” einnig verk eftir
Jóhann Briem og Jón Þorleifsson.
1 vinstri hliðarsölum eru mál-
verk og höggmyndir aðallega
eftir islenzka listamenn, þ.á.m.
nlörg nýkeypt verk. Irauðahliðar
salnum eru m.a. málverk eftir
flæmskalistamanninn Henrik van
Balen (1575-1632).
1 hægri hliðarsal eru verk eftir
Þórarin B. Þorláksson, svo og
myndir eftir Kristján Daviðsson
frá árunum 1950-53.
Sýningin verðu opin daglega frá
kl. 1.30 til 4.00.
Garðsláttuvélar
Fáanlegar í mörgum stærðum ■ og
geröum við allra hæfí. Sláttutækí;
láréttur hnífur eða sláttukefli, 48 cm
sláttubreidd, stlllaenlg sláttuhæð. —
Fáanlegar með grasskúffu og sjálf-
drlfnar. Auðveld gangsetning. fyrir-
ferðarlitil í geymslu.
Slátturinn verSur leikandi
Iéttur með NORLETT.
Mest selda garðsláttuvélin
á tslandi!
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Hjúkrunarkonur
Staða hjúkrunarkonu við Heilsuverndar-
stöð Kópavogs er laus til umsóknar.
Starfið er m.a. fólgið i ungbarnaeftirliti og skólahjúkrun.
Umsóknarfrestur er til 30. mai og skal skila umsóknum til
undirritaðs, sem ásamt Jóni R. Árnasyni lækni, veitir all-
ar nánari upplýsingar.
Kópavogi, 17. mai 1973
Bæjarritarinn Kópavogi.
Úthoð
Tilboð óskast i framkvæmdir við lóð fjöl-
býlishússins Grýtubakka 2-16 Rvk.
Útboðsgagna má vitja á Almennu verkfræðistofunni hf.
Fellsmúla 26 gegn 1000. kr. skilatryggingu.
Orðsending
frá Skarði h.f.
Hér með tilkynnist að við höfum selt
hlutafélaginu Hólum Prenthús Hafsteins
Guðmundssonar, Bygggarði, Seltjarnar-
nesi. Um leið og við þökkum viðskiptin,
vonumst við til þess að hinir nýju eigendur
megi njóta þeirra i framtiðinni.
f.h. stjórnar Skarðs h.f.
Hafsteinn Guðmundsson.
Orðsending frá
Prentsmiðjunni
Hólum h.f.
Við tilkynnum hér með viðskiptavinum
vorum, að vér höfum fest kaup á Prent-
húsi Hafsteins Guðmundssonar, Bygg-
garði, Seltjarnarnesi.
Starfsemi fyrirtækisins verður fyrst um
sinn rekin bæði i Þingholtsstræti 27,
Reykjavik og i Bygggarði, Seltjarnarnesi.
Prentsmiðjan Hólar h.f.
Þingholtsstræti 27, Rvik.
AUar málnmgarvörur
einnig Tóna- og Óska-litir
6002 litir
MBS8M
llliH
UTAVER
.1 inn í
Jtaver
Giensásvegi