Tíminn - 20.05.1973, Blaðsíða 32

Tíminn - 20.05.1973, Blaðsíða 32
32 TÍMINN Sunnudagur 20. mal 1973 íþróttaskóli Sigurðar R. Guðmundssonar LEIRÁRSKOLI tók til starfa haustið 1965. Skólinn er barna- og unglingaskóli fyrir Borgarfjörð sunnan Skarðsheiðar og er byggður sem heimavistarskóli. Heimavist skólans tekur 48 nemendur. Þrjár kennslu- stofur eru í skólanum, bókasafn, setustofa, tóm- stundarstofa, eldhús og borðstofa. Félagsheimilið ereinnig íþróttahús skólans og góð kennslulaug hefur verið byggð við hlið þess. Grasflatir eru notaðar til útiíþrótta. Leirárskóli nýtur mikilla vinsælda sem þing- og námskeiðastaður. Fjöl- mörg námskeið Mennta- málaráðuneytisins hafa verið haldin í skólanum og einnig námskeið á vegum Æskufýðsráðs ríkisins, Ungmennafélags islands, Kennarasambands Vestur- fands og fleiri aðila. iþróttaskólinn. ÍÞRÓTTASKÓLI Sigurðar R. Guðmundssonar hóf starf sumar- ið 1968 að Leirárskóla. Skólinn hefur verið miðaður við drengi og stúlkur á aldrinum 9-14 ára, en mun nú auka starfsemi sina og bæta við lýðskóladeild, sem ætluð er áhugafólki um menntun félagsleiðtoga og iþróttaleiðbein- enda. Markmið skólans er að auka iþróttamenntun ungmenna, glæða með þeim félagsanda og gera þau með þvi nýtari og betri þjóðfélagsþegna. Námstimi SKÓLINN hefst 1. júni og stendur til 31. júll. Náminu I lýðskóladeild er skipt niður I eftirtalin timabil: Svipmyndir úr skólastarfinu að fara til Islands. Þá kennir Kristbjörg Eðvaldsdóttir iþrótta- kennari við skólann. Auk þess leiðbeina þau Guðbjörg Sigurðar- dóttir kennari og Guðmundur Sigurðsson leiðbeinandi við ung- mennadeildina bæði i iþróttum og félagsstörfum. Skólareglur: A iþróttaskólanum eru fáar reglur en ákveðnar: Tökum tillit til annarra. Hugs- um ávallt um, hvort framkoma okkar geti orðið öðrum til skaða eða óþæginda. Lögð er áherzla á, að áfengi eða önnur eiturlyf séu ekki höfð um hönd i skólanum og ekki er leyfilegt að koma i skól- ann undir áhrifum þeirra. Aðrar umgengfiisreglur verða ræddar og munu nemendur i samráði við stjórn skólans reyna að finna jákvæða lausn á þeim vandamálum, sem upp kunna að koma. Umsókn Til þess að fá inngöngu i skól- ann þurfa nemendur að vera fæddir 1956 eða fyrr. Aðeins i sér- stökum tilfellum verður yngri umsækjendum veitt skólavist og ganga þá fyrir þeir, sem áður hafa verið nemendur iþróttaskól- ans. I umsókn þarf að taka fram um þátttöku i félagsstarfi, hverj- ar eru uppáhaldsiþróttir og hver eru helztu .' áhugamál umsækj- enda. Ef umsækjandi stefnir að ákveðnu markmiði með náminu, þá er gott að geta þess. útbúnaður Til skólans þarf að hafa með sér sængurfatnað, snyrtiáhöld, klæðnað til inni- og útiiþrótta, regnföt, stigvél, teppi á rúm og persónulega muni. Eigi nemendur hljóðfæri þá takið þau með. Gitar er afar nauðsynlegur i þessu námi og eru umsækj- endur beðnir að útvega sér hann ef nokkur leið er. Við hjálpumst að við að læra á hljóðfærið. Kostnaður Nemendur búa i heimavist. Þar eru fjögurra manna herbergi. Skólagjald verður kr. 30.000.00. Innifalið i skólagjaldinu er: fæði, húsnæði, kennsla, kennslubækur og ferðalög á vegum skólans. Styrkir Mörg félög, héraðssambönd, æskulýðsráð bæjar- og sveitar- félög og fleiri aðilar hafa áhuga á LEIRÁRSKÓU í BORGARFIRÐI 1.-3. júni, nám i stjórnun ung- mennabúða. 4.-30. júni, bóklegt og verklegtnám aö Leirárskóla. 1.-8. júli, skiðaiðkanir i Skiðaskólan- um i Kerlingafjöllum. 9.-16. júli, unnið að undirbúningi og fram- kvæmd fimleikahátiðar. 17.-31. júli, bóklegt og verklegt nám að Leirárskóla. Námsgreinar í lýðskóladeild Bóklegar greinar: félagsmála- fræðsla, kennslufræði, sálarfræði, heilsufræði, hreyfingarfræði, þjálfunarfræði, skyndihjálp fyrir- lestrar. Verklegar greinar: frjálsar iþróttir, knattleikir, sund, fimleikar, skiðaiðkun, þrekþjálfun, úthaldsþjálfun kennsluæfingar. Aðrar greinar: verkleg félagsmálafr. fram- kvæmd móta, kvöldvökuhald, söngur, dans, útilegur, ferðalög, fararstjórn, norska. Námsgreinar i ungmennadeild 1 ungmennadeild verða kennd- ar: frjálsar iþróttir, knattleikir og sund. Aherzla verður lögð á félagsstörf, kenndur verður dans og söngur, og kvöldvökur haldnar hvert kvöld. Námskeið ung- mennadeildar eru jafnt ætluð drengjum og stúlkum. Timabilin verð sem hér segir: 1. 4.-10. júni, 9-11 ára. 2. 10.-16. júni, 9-11 ára 3. 19.-25. júni, 12-15 ára. 4. 25.-1. júli, 12-15 ára. 5. 5.- 11. júli, 9-11 ára. 6. 11.-17. júli, 9-11- ára. 7. 17.-23. júli, 12-15 ára. 8. 23,- 29. júli 12-15 ára. Kennslufyrirkomulag og námsefni Kennsla i bóklegum greinum fer fram bæði með fyrirlestrum og vinnu nemenda i smærri hópum. í verklegu námi verður lögð áherzla á alhliða þjálfun i iþróttum og i vinnu nemenda i smærri hópum. 1 verklegu námi verður lögð áherzla á alhliða þjálfun i iþróttum og i félagsstarfi á fjölþætta kynningu og starfs- þjálfun. Skólinn notar námsefni fyrir leiðbeinendur frá Iþrótta- sambandi Noregs, sem reynzt hefur mjög vel. Þá notar skólinn nýtt námsefni Æskulýðsráðs rik- isins i félagsmálafræðslu. Sérsambönd ÍSI Frjálsiþróttasamband Islands, Knattspyrnusamband tslands og Skiðasamband Islands hafa ákveðið að hafa samvinnu við skólann um sérmenntun, hvert á sinu sviði. Málið er i athugun hjá Handknattleikssambandi Islands og Fimleikasamband Islands mun kynna starfsemi sina i sam- bandi við norrænu fimieikahá- tiðina. Munu nemendur fá tæki- færi til að verja sérgrein við sitt hæfi og taka ákveðið stig i mennt- unarkerfi sérsambandanna. Réttindi Nemendur verða ekki látnir taka próf að námi loknu, en fá umsögn sé þess óskað. Skólinn gefur ekki ákveðin réttindi, en samsvarandi tillit mun tekið til þessa náms og náms við iþrótta- linur erlendra lýðháskóla. Þeir nemendur, sem ljúka stigi i menntun leiðbeinenda hjá sér- samböndunum og skiðaskólan- um, hafa rétt til.að leiðbeina i sinni grein hjá félögum. Skíðaskólinn í Kerlingafjöllum 1.-8. júli fara nemendur i skiða- ferð i Kerlingafjöll. Mun skiða- skólinn i Kerlingafjöllum annast fræðslu fyrir þá sem ætla sér að taka leðiðbeinendastig Skiðasam- bands tslands. Fléttað verður inni ferðina fræðslu um útilegur m.a. búið i tjöldum, hjálpað til við matseld og farið i gönguferðir. Að sjálfsögðu taka nemendur virkan þátt I kvöldvökum og dansi i skíðaskólanum. Norræn fimleikahátíð Nemendur munu vinna að undirbúningi og framkvæmd nor- rænnar fimleikahátiðar i Reykja vik dagana 9.-15. júli. Jafnframt munu þeir fá mjög gott tækifæri til þess að horfa á sýningar- flokka æfa fimleika. Félagsstörf Nemendur stofna með sér skólafélag, sem hefur þýðingar- miklu hlutverki að gegna við að skipuleggja fritima þeirra. Skil- yrði fyrir að þetta takist er að hver nemandi geri sitt bezta, eftir áhuga og hæfileikum. öilum Norðurlöndunum hefur verið boð- ið að senda nemendur á skólann. Starfslið Skólastóri skólans er Sigurður R. Guðmundsson. Leiv Sandven iþróttakennari við Lýðháskólann i Seljord i Noregi verður aðal- kennari við lýðskóladeildina. Hann er forstöðumaður Iþrótta- linu við lýðháskólanna og var val- inn úr hópi fjölda umsækienda til að styrkja einstaklinga til náms við slika skóla. Væntanlegum umsækjendum er bent á að at- huga vel um möguleika á styrkj- um vegna námsins. Upplýsingar Nánari upplýsingar gefur Sigurður R. Guðmundsson, Leir- árskóla, simi 93-2111 kl. 9-12 og skrifstofa Ungmennaféiags Islands, Klapparstig 16, Reykjavik, simi 12546. Sigurður R. Guðmundsson læirárskóli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.