Tíminn - 20.05.1973, Síða 40
Gistió á góóum kjörum
#HÖmÍL#
„ÉG VONA AÐ VESTMANNAEYJA-
BÆR VERÐI AÐ NÝJU EINN AF
MÁTTARSTÓLPUAA ÞJÓÐFÉLAGSINS"
ÍGOÐI
fyrirgóúun mai
$ KJÖTIDNAÐARSTÖD SAMBANDSINS
— Rætt við Sigurgeir Kristjánsson, forseta bæjarstjórnar Vestmannaeyja
SIGURGEIIl Kristjánsson, for-
scti bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja er nýkominn tii lands frá
Eyjum.
— Hvernig er útlitió nú i Eyjum,
Sigurgeir?
— Landslagið er gjörbreytt frá
þvi, sem var. í stað Helgafells,
sem gnæfði yfir eyna, er komið
annað fell I viðbót, álika stórt
Hraunraninn austur í sjó lokar
fyrir útsýni úr bænum, sem var
fagurt yfir sundin, eyjarnar og til
lands, þar sem Eyjafjöllin blöstu
við. Undir hraundyngjuna hefur
austurbærinn svo horfið, auk þess
sem askan hefur grafið mörg hús
— að öllu eða hálfu leyti — I kaf.
—Hverjar teluröu vera framtiöar
horfur kaupstaðarins?
— Gos er mjög litið og i rénun.
Menn vona, að það fjari smátt og
smátt út. Hreinsun er hafin af
götunum og töluvert hefur þegar
áunnizt i þvi efni, að minu áliti. Ef
svo fer sem horfir þá tel ég, að
hægt verði að búa i verulegum
hluta vesturbæjarins, áður en
langt um liður. bó veldur miklu
hvernig til tekst með sáningu og
heftingu sandfoks, en nú er
ákveðið, að sá grasfræi i ösku-
flákana,og sér Sandgræðslan um
það verkefni.
— Hvað um atvinnulff I Eyjum?
— Ég veit, að mikill hugur er i
forráðamönnum fiskiðjuveranna
að koma fiskvinnslu i gang sem
fyrst, enda er erfitt að nýta Vest-
mannaeyjamiðin eins og gert
hefur verið á undanförnum árum,
nema unnt verði að landa humri
og öðrum fiskafla, svo og fá
nauðsynlega þjónustu og fyrir-
greiðslu i Vestmannaeyjum.
— Telurðu, að einhver hluti Vest-
inannaeyinga snúi aftur til sinna
fyrri heimkynna?
— betta hefur verið langur .og
erfiður vetur fyrir marga Vest-
mannaeyinga. Ég held, að flestir
þrái að komast heim sem fyrst.
Uppbygging fiskvinnslunnar i
Eyjum er forsehda þess, að
margir af útgeréarmönnum haldi
áfram rekstri, einkum þeir, sem
reka smærri báta. bað verður
hins vegar bið á, að heimilislif
komist i eðlilegt horf i Vest-
mannaeyjum, t.d. er ekki gert ráð
fyrir, að skólahald veröi i Eyjum
næsta vetur.
— bessar náttúruhamfarir hafa
skapaö ótal vandamál, er ekki
svo
— Sem betur fer telst það ekki til
daglegra viðburöa, að heilt
bæjarfélag sé slitið upp með rót-
um á einni nóttu. A herðum hvers
einstaklings hvildu að sjálfsögöu
mörg vandamál, en það má
teljast kraftaverk.hvernig fólkiö
bar sinar byrðar. Má, eins og
kennslumál, atvinnu- og efna
hagsmál, svo nefndir séu nokkrir
stórir málaflokkar, leystust furðu
vel og með skjótum hætti. Afli
Vestmannaeyjabáta á vertiðinni
var mjög góöur miðað við að-
stæður. Hins vegar voru
húsnæðismálin, og eru reyndar
enn langerfiðasta vandamálið. A
þvi sviði hefur rikisvaldið sér-
staklega tekið baggann á sig með
framkvæmdum Viðlagasjóðs. Úr
þessu fer að rofa til, þvi að fyrstu
húsin eru komin á grunnana og
fólkið, þá fyrst og fremst stærstu
fjölskyldurnar, fá þar húsnæði.
bær 500 ibúöir sem þegar er
áætlað að reisa, leysa mikinn
vanda.
— Lítið þig Vestmannaeyingar
framtíðina björtum augum, þrátt
fyrir allt:
— Bjartsýnin er einstaklings-
bundin. Ég hef áhyggjur af báta-
flotanum. brátt fyrir góðar vonir
um, að þessum ósköpum linni, þá
tel ég að Vestmannaeyjaflotinn
þyrfti að eiga betra skjól i bor-
lákshöfn en var á siðustu vertið.
Svo héld ég að fólkið, sem á hús
sin og heimili undir ösku og
hrauni, finni til með öðrum hætti,
en ég og aðrir þeir, sem vonast til
að g'eta flutt i sin hús, er
heimkemur. Slikar hamfarír sem
þessar hljóta að skilja eftir sig
margvislegan sársauka, er seint
mun fyrnast. Loks er ég ekki viss
um, að allir þeir, sem snúa heim,
kunni við sig við þær breyttu að-
stæður, sem á eru orðnar.
— Hvað viltu segja að lokum?
— Ég vona, að Vestmanna-
eyjabær risi úr öskunni og verði i
skjóli fjallanna og hraunveggsins
Sigurgeir Kristjánsson
hiýlegur kaupstaður — og nái að
nýju sæti sinu sem einn af
máttarstólpum þjóðfélagsins.
-ET.
bessi mynd var tekin, á meðan allt var i hlóma I Eyjum.
Ársskýrsla Útvegsbanka Islands komin út:
INNLÁN ÚTVEGSBANKANS
JUKUST UM 15.3% 1972
Staða bankans gagnvart Seðlabankanum fór batnandi ó órinu
Ásmundur 80 ára í dag
Býður öllum
í listaveizlu
TK-Reykjavik
Timanum barst i gær svo-
hljóðandi fréttatilkynning frá Út-
vegsbanka tslands:
Arsskýrsla Útvegsbanka ts-
lands fyrir árið 1972 er nýkomin
út. bar kemur fram, að heildar-
fjármagn Útvegsbankans
('.niðurstöðutölur efnahags-
reiknings) hefur aukizt um 855
milljónir króna á árinu 1972, eða
um 20% og nam 5,128 milljónum
króna i árslok 1972.
Heildarinnlán Útvegsbankans i
árslok 1973 námu 2,806 milljónum
króna og höfðu hækkað úr 2.435
milljónum króna i ársbyrjun, eða
um 15.3% á árinu. Spariinnlán
bankans jukust um 257 milljónir
króna á árinu, eða um 14.1%
Veltiinnlán bankans, en það er
innlán á haupareikningum, spari-
sjóðaávisanareikningum og giró-
reikningum, uxu hlutfallslega
meira á árinu 1972 en spariinn-
lánin. Heildaraukning þeirra nam
114 milljónum króna, eða 18,9%.
A árinu 1972 jukust heildarútlán
bankans um 578 milljónir króna,
eða 19,3% og námu 3,568 milljón-
um króna i árslok. Verulegur
hluti útlána Útvegsbankans er i
sjávarútvegi, og i lok vetrar ver-
tiðar voru 45 til 50% af útlánum
bankans bundin i honum. 1 árslok
1972 voru 42.7% af útlánum Út-
vegsbankans bundin i sjávarút-
vegi, 19.6% i verzlun, 12,8% i
Framhald á bls 36
Asmundur Sveinsson, mynd-
höggvari, er 80 ára i dag, A af-
mælisdaginn mun listamaðurinn
dvelja með konu sinni utan
borgarinnar. En i stað þess að
Klp—Reykjavik. — Aflahæsta
skipiö á vertiðinni i ár, var
Skarðsvik frá Hellissandi. Kom
hún með að landi samtals 1.005
lestir eða 20 lestum meira en næst
aflahæsta skipið á vertfðinni.
Skarðsvik er 176 lesta skip,
smiðaö árið 1962. Skipstjóri á þvi
á þessari vertíð var Siguröur
Kristjánsson. 1 öðru sæti á
vertiðinni var Hópsnesið frá
bjóöa nokkrum vinum sínum I af-
mælishóf, býðurhann öllum þcim
sem þiggja vilja, að skoða
Myndaskemmu sina, og það sem I
henni er, milli kl. 2 og 9, I dag,
sunnudag.
Grindavík með 987 lestir. Hóps-
nesiö er 105 lesta skip smiðað árið
1970. Skipstjóri i vetur var
Eðvarð Júliusson. x þriðja sæti á
vertiðinni var Oddgeir frá Greni-
vík með 937 lestir. Oddgeir var
gerður út frá Grindavik i vetur,
eins og Hópsnesið. Hann er 190
lestir að stærð smiðaður árið 1963.
Skipstjóri á Oddgeiri á vertiðinni
var Knútur Bjarnason.
ír þeir aflahæstu
á vertíðinni