Fréttablaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
verður með opið hús í Háskólabíói klukk-
an eitt í dag. Þar munu Birta og Bárður
úr Stundinni okkar í Sjónvarpinu kynna
dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
INNIVEÐUR ALLA HELGINA Það má
búast við fremur hægum vindi fram eftir
degi en þá bætir nokkuð í vind. Rigning
sunnan- og vestanlands. Sjá síðu 6
11. september 2004 – 247. tölublað – 4. árgangur
AÐILD EKKI
ÚTILOKUÐ
Halldór Ásgríms-
son, utanríkisráð-
herra segir „ábyrgð-
arleysi“ að útiloka
aðild að Evrópu-
sambandinu. Hann
líkir þó enn sjávarútvegsstefnu sambands-
ins við „nýlendustefnu.“ Sjá síðu 2
Á SLÓÐ LYKILSINS Lesendur falla
hver um annan þveran yfir bókinni Da
Vinci lykillinn. Nú ferðast þeir á staðina
sem þar koma við sögu. Margir í ferða-
þjónustu fagna en aðrir eru allt annað en
sáttir. Sjá síðu 4
MINNI VERÐBÓLGA Verðbólga virðist
fara minnkandi. Vísitala neysluverðs hefur
hækkað um 0,43 prósent frá því í ágúst,
sem er heldur minni hækkun en greiningar-
deildir bankanna gerðu ráð fyrir. Sjá síðu 6
SIGURINN NÆRRI Þremur árum
eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum
segir næstæðsti maður al-Kaída sigurinn
nærri í Írak og Afganistan. Eftirlifendur og
aðstandendur látinna eiga enn um sárt
að binda. Sjá síðu 8
59%74%
Kvikmyndir 34
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 30
Sjónvarp 36
Stórsveit Nix Noltes:
● einbeitir sér að tónlist balkanskaga
Íslensk hljómsveit
SÍÐA 34
▲
● bílar
Volkswagen bjallan
eftirminnileg
Hjálmar Hjálmarsson:
● fær fólk til að gera ótrúlega hluti
Gríndávaldur
Sailesh:
▲
SÍÐA 38
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Davíð Oddsson hefur myndað fjórar
ríkisstjórnir frá því að hann var kjörinn á
þing í apríl 1991. Tuttugu og níu ráð-
herrar hafa setið í stjórnum hans.
29 ráðherrar Davíðs:
VIÐSKIPTI Norðurljós hafa keypt 35
prósenta hlut í Og Vodafone fyrir
rúma fimm milljarða króna. Selj-
andi er fyrirtæki Kenneth Peter-
son, CVC. Þar með eru Norðurljós
aftur þátttakandi á símamarkaði
eftir nokkurt hlé. Félagið átti hlut í
Tali sem sameinaðist Íslandssíma
undir merkjum Og Vodafone.
„Okkur bauðst þetta og við telj-
um þetta góðan fjárfestingarkost.
Þetta er flott fyrirtæki sem hefur
gengið vel í samkeppni og við telj-
um að það eigi sér bjarta framtíð,“
segir Skarphéðinn Steinarsson,
stjórnarformaður Norðurljósa.
Hann segir fjarskipta- og fjöl-
miðlafyrirtæki eigi mikla samleið.
„Enginn spurning er að þróunin
verður sú að ljósvaka- og fjölmiðla-
fyrirtæki eigi mjög nána samleið.
Með þessu erum við komin með ná-
inn samstarfsaðila við þessa upp-
byggingu.“
Norðurljós slitu í sumar viðræð-
um við Símann um dreifingu staf-
ræns efnis. Í kjölfarið keypti Sím-
inn sýningarrétt á enska boltanum
og fjórðungshlut í Skjá einum.
Skarphéðinn segir greinilegt að
fleiri hugsi um samspil fjarskipta-
fyrirtækja og fjölmiðla með svip-
uðum hætti.
Með sölu hlutarins í Og Vodafo-
ne hefur Kenneth Peterson selt
stærstu eignir sínar hér. Fyrr á
árinu seldi hann hlut sinn í Norður-
áli sem var upprunaleg fjárfesting
hans hér á landi. Bjarni Þorvarðar-
son stjórnarformaður Og Vodafone
og samstarfsmaður Petersons
segir söluna ekki þýða að Peterson
horfi ekki lengur til fjárfestinga
hér. „Við höfum hins vegar lýst því
yfir að við höfum áhuga á fjar-
skiptafyrirtækjum.“ Stíll Kenneths
Petersons í fjárfestingum hefur
gjarnan verið sá að kaupa góð
fyrirtæki sem eru ódýr vegna lægð-
ar á markaði. Aðspurður segir
Bjarni að það samræmdist ekki
þeirri stefnu að selja Og Vodafone
til að taka þátt í kaupum á Símanum
þegar hann verður seldur miðað við
það verð sem rætt hefur verið um.
haflidi@frettabladid.is
Eignast ráðandi hlut
fyrir fimm milljarða
Norðurljós hafa tryggt sér þriðjungs hlut í Og Vodafone. Stjórnarformaður Norðurljósa segir
ljósvaka og fjölmiðlafyrirtæki munu eiga mikla samleið. Seljandi er Kenneth Peterson sem
selt hefur allar helstu eignir sínar hér á landi.
SÍÐUR 22 & 23
▲
Fréttablaðið fékk valinkunna Íslendinga
til að segja lesendum frá því hvað þeir
hefðu viljað vita um tvítugt, sem lífs-
reynslan hefur kennt þeim síðan.
Þegar ég var tuttugu:
SÍÐUR 24 & 25
▲
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
SAMGÖNGUMÁL Sundabrautin leysir
ekki umferðarvandann á gatnamót-
um Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar og því nauðsynlegt að fara í
framkvæmdir við gatnamótin,
segir Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra.
Árni Þór Sigurðsson, formaður
samgöngunefndar, segir að ekki
verði ráðist í gerð mislægu gatna-
mótanna á næstu árum því Sunda-
braut verði í forgangi. Sturla
fagnar því að borgin vilji fara í gerð
Sundabrautar, en hafa verði samráð
við öll sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu um forgangsröðun.
„Ég lít nú svo á að útspil Árna
verði að skoða í því ljósi að um
þetta hefur ekki, að því er ég best
veit, verið tekin ákvörðun hjá
Reykjavíkurborg eða nágranna-
sveitarfélögunum,„ segir Sturla.
„Sundabraut er risaverkefni sem
auðvitað verður tekið í áföngum.
Óhjákvæmilegt er að gera ein-
hverjar endurbætur á gatnamót-
um Miklubrautar og Kringlumýr-
arbrautar og mjög erfitt verður að
afgreiða samgönguáætlun án þess
að taka eitthvert tillit til að-
stæðnanna sem þar eru. Borgin
hefur hins vegar heilmikið um það
að segja hvernig skipulagið
verður þar, en ég held að erfitt
verði að líta alveg framhjá um-
ferðarþunganum sem þar er.“ ■
Gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar:
Ráðherra kallar á endurbætur
Keflavík:
Lést í átökum
við lögreglu
MANNSLÁT 33 ára maður lést í átök-
um við lögregluna í Keflavík á
fimmtudag. Lögregla hafði farið að
heimili mannsins eftir að tilkynnt
hafði verið um föður hans, í annar-
legu ástandi og illa til reika.
Tveir menn frá ríkislögreglu-
stjóra voru fengnir til að rannsaka
vettvanginn. Karl Hermannson,
yfirlögregluþjónn í Keflavík, segir
öll gögn málsins hafa verið send til
ríkissaksóknara og hefur málið
verið falið lögreglunni í Reykjavík
til rannsóknar. Hörður Jóhannes-
son, yfirlögregluþjónn í Reykjavík,
segir engan grun vera um harð-
ræði af hálfu lögreglunnar. Á þessu
stigi beinist rannsóknin fyrst og
fremst að því hvað gerðist og hver
dánarorsök mannsins var.
Sjá síðu 6
VIÐ TÚNGÖTU Í KEFLAVÍK
Linda Björk Gylfadóttir, nágranni við Túngötu í Keflavík, bendir á húsið og lóðina þar sem maður lést í höndum lögreglu á fimmtudag.
Landssímamálið:
Kennir fjöl-
miðlum um
DÓMSMÁL Sveinbjörn Kristjáns-
son, fyrrverandi aðalgjaldkeri
Símans, telur fjölmiðla hafa haft
áhrif á niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur í Landssímamál-
inu.
Í lesendabréfi sem hann
skrifar í blaðið í dag segist hann
sáttur við dóminn sem hann
fékk. Hins vegar hafi aðrir hlotið
harða dóma án þess að sekt
þeirra væri sönnuð.
Sveinbjörn telur dómstóla
hafa látið undan þrýstingi fjöl-
miðla sem hafi misnotað vald sitt
í umfjöllun um málið. Hann segir
almenningsálitið hafa snúist
gegn saklausu fólki og að vondur
dómur hafi verið felldur.
Sjá síðu 16