Fréttablaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 17
17LAUGARDAGUR 11. september 2004 Stuttklipptur með bindi Fyrir rúmu þrjátíuogeinu ári gisti Richard Nixon Ísland. Múgur og margmenni var fyrir utan Stjórnaráðið þegar gestinn bar að garði. Mest bar á ungu fólki, sumir strákar síðhærðir og hippalegir í klæða- burði. Aðrir voru stuttklipptir og snyrti- legir, í jakkafötum og með bindi. Um leið og Nixon birtist tóku hinir síðhærðu að úa og baula ákaft, þeir stuttklipptu klöppuðu og hrópuðu fagnaðaróp. Ég var einn hinna síðhærðu sem úuðu. Skammt frá mér stóð ungur stuttklipptur maður með bindi sem klappaði forset- anum lof í lófa. Næstu nótt mátti ég gista fangaklefa lögreglunnar vegna einkamótmæla gegn stefnu Nixons. Ári síðar neyddist Nixon til að segja af sér enda varð hann ber að valdamisferli. Sautján árum eftir afsögnina varð ungi maðurinn stuttklippti forsætisráðherra íslenska lýðveldisins. Innan tíðar, þann fimmtánda níunda, lýkur ferli hans sem forsætisráðherra, a.m.k. að nafninu til. Stefán Snævarr á kistan.is Orð danska þjóðminjavarðarins [Þjóðminja-]safnið og sýning þess ber með sér glæsileika og settur er nýr stuðull fyrir allar sýningar í landinu. Það vakti athygli fleiri en mín, að danski þjóðminjavörðurinn, sem flutti ávarp við athöfnina sá ástæðu til að þakka stjórn- málamönnum sérstaklega fyrir að staðið væri jafnvel að endurgerð safnsins. Eitt er víst, að án pólitískra ákvarðana hefði ekki verið ráðist í þetta verk. Frá upphafi hef ég alltaf verið þeirrar skoðunar, að það ætti að gefa endurreisn safnsins þann tíma, sem þyrfti til að vel yrði að henni staðið – í ljósi tímans og sögunnar skipti það meira máli en að kippa sér upp við nöldrið í pólitískum andstæð- ingum, sem reyndu á framkvæmda- tímanum að finna allt til að gera sem minnst úr okkur, sem stóðum að því að ákveða framkvæmdina og bárum á henni pólitíska ábyrgð. Björn Bjarnason á bjorn.is Mótsagnir sjálfstæðismanna Það er því áhugavert að fylgjast með forystumönnum Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn þegja þunnu hljóði meðan fyrirtæki í eigu ríkisins fjárfestir á sam- keppnismarkaði meðan forystumenn borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins gagnrýna R listann harðlega fyrir að leyfa Vélamiðstöð ehf., sem er í eigu Reykja- víkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur, að taka þátt í útboði á frjálsum samkeppn- ismarkaði. Vaknar þá óhjákvæmilega spurningin: Hvert ætla forystumenn flokksins með fyrirtæki í eigu hins opin- bera? Á að einkavæða þar sem þeim hentar en láta önnur fyrirtæki fjárfesta á samkeppnismarkaði þar sem þeim hent- ar? Sjálfstæðismenn eiga heimtingu á svörum við þessari spurningu tafarlaust! Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson á frelsi.is AF NETINU Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og segja skoðun sína á fréttum blaðsins, viðhorfum sem birtast í blaðinu eða leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Bréf skulu vera stutt og gagnorð, 50–200 orð að lengd. Ritstjórn áskilur sér rétt til að stytta aðsent efni. Vinsamlega sendið efnið í tölvupósti á netfangið greinar@frettabladid.is. Forsetaframbjóðandi demókrata, John Kerry, á í vök að verjast eft- ir stöðugar barsmíðar repúblik- ana síðastliðinn mánuð. Fram- ganga Kerrys í Víetnamstríðinu, sem átti að vera helsta tromp hans, hefur reytt af honum fylgi í kjölfar áhrifamikillar auglýsinga- herferðar fyrrum kollega hans á vígvellinum. Í fyrsta sinn á árinu er Bush forseti með örugga for- ystu í skoðanakönnunum og nú eru aðeins 50 dagar til kjördags. Vandræði Kerrys speglast hér í Minnesota, sem hefur verið eitt helsta vígi demókrata í áratugi. Héðan komu tveir foringjar demókrata sem gerðu atlögu að forsetastólnum, Hubert H. Humphrey varaforseti Lyndons B. Johnsons sem tapaði naumlega fyrir Nixon árið 1968 og Walter Mondale varaforseti Jimmy Carters sem var flengdur af Reagan árið 1984. Demókratar eru hins vegar enn í sárum hér eftir sviplegt fráfall hins skelegga Paul Wellstone sem lést í flugslysi árið 2002. Demókratar hafa unnið Minnesota í 10 af 11 forsetakosn- ingum síðan 1960 en nú er fylkið talið í hópi þeirra tólf þar sem úrslit séu óhemju tvísýn. Clinton vann hér tvívegis með yfirburðum á síðasta áratug en Al Gore sigraði Bush með aðeins 2% mun árið 2000. Nýjustu kannanir benda til þess að munurinn á fylgi Kerrys og Bush í Minnesota sé innan skekkju- marka. Kerry hefur verk ad vinna því ef hann vinnur ekki Minnesota þá er hann dauðadæmdur. Ýmislegt verður demókrötum að óhamingju hér um slóðir. Borg- arstjórinn í höfuðborginni St. Paul, demókratinn Randy Kelly, olli nýlega miklu uppnámi þegar hann lýsti yfir stuðningi við Bush og hyllti hann á kosningafundi. Demókratar trylltust og nú er hafin undirskriftasöfnun þar sem kjósendur í borginni eru hvattir til að fella borgarstjórann í auka- kosningum í nóvember. Eins og nærri má geta hefur þetta mál ekki aukið á eininguna í hópi demókrata. Ef af verður hefst sama ferli og felldi demókratann Ed Davis í Kaliforníu og opnaði leið fyrir „stórleikarann“ Arnold Schwarzenegger inn í pólitíkina. Kjósendur í Minnesota eru svo- lítið svag fyrir sterum líka. Þeir komu öllum á óvart fyrir nokkrum árum er þeir höfnuðu báðum stóru flokkunum en lyftu glímukappan- um Jesse Ventura í hásæti fylkis- stjóra. Sú kosning endurspeglaði megna óánægju kjósenda með frammistöðu gömlu flokkanna. Hér í Minnesota er óvenju sterk hefð fyrir því að óháðir frambjóð- endur nái góðum árangri í kosn- ingum. Ralph Nader fekk 5% hér í síðustu forsetakosningum og getur átt von á svipuðu fylgi nú, sem er helmingi meira en hann er að fá í könnunum á landsvísu. Nýlegar kannanir sýna að 75% kjósenda hér í Minnesota geti hugsað sér að kjósa aðra en fram- bjóðendur stóru flokkanna tveggja í forsetakosningunum. Það er því ekki furða að svita- perlunum fjölgi á enni Johns Kerrys þessa dagana. Höfundur stundar nám í Minnesota og mun á næstunni skrifa fleiri pistla um forseta- kosningarnar í Bandaríkjunum. Nauðvörn á „heimavelli“ Ameríkubréf SKÚLI HELGASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.