Fréttablaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 12
Sænsk gagnrýnisgleraugu Umræðan um KB banka í Svíþjóð hefur snúist við undanfarin misseri. Neikvæð- ar raddir hafa hljóðnað og fleiri bæst í þann hóp sem líta með velþóknun á starfsemi bankans. Sænski konungur- inn sá a.m.k. ástæðu til að sæma for- svarsmenn bank- ans orðu fyrir fram- lag þeirra til við- sk ip tasamsk ip ta þjóðanna. KB banki hefur hækkað mest allra fyrirtækja á sænska mark- aðnum að und- anförnu. Úr- töluraddir eru þó ekki allar þagnaðar. Pistlahöfundur Svenska Dagbladet veltir fyrir sér hvort danski bankinn FIH hafi verið of dýru verði keyptur og hvort KB banki ráði við kaup á breska bankanum Singer og Friedlander. Nokkuð sem fáir efast um á Íslandi. Svíar munu hins vegar eflaust klóra sér í hausnum yfir vexti bankans og viðgangi, enda þekktir fyrir að hafa gagnrýnisgleraugun jafnan á nefinu; ekki síst þegar smærri nágrannar eiga í hlut. Engin biðröð Erlendir fjárfestar sitja ekki um kaup á hlutabréfum í íslenskum fyrirtækjum. Íslenski markaðurinn hefur hækkað meira en flestir markaðir í nágrannaríkjum. Að undanförnu hafa erlendir fjárfestar veirð að auka eign sína í Össuri. Fyrir eru erlendir fjárfestar stærstir í Bakka- vör og KB banka. Erlend eign í þessum fyrirtækjum hefur reynst þeim vel. Það er því kannski ekki að undra að Þor- steinn Már Baldvinsson og fleiri íslensk- ir útgerðarmenn horfi löngunaraugum til þess að útlendingum verði leyft að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. Í flest- um tilvikum hafa útlendingar eignast hlut í íslenskum fyrirtækjum með kaup- um íslenskra fyrirtækja á erlendum. Það er því fátt sem bendir til þess að löng biðröð myndist ef stjórnvöld heimila út- lendingum að fjárfesta í íslenskum sjáv- arútvegi. Í dag eru þrjú ár liðin frá grimmi- legasta hermdarverki sem framið hefur verið á bandarískri grund. Nær 3.000 manns létu lífið í árásinni á Pentagon og tvíbura- turnana á Manhattan, þar af nokkur hundruð útlendingar. Óhætt er að fullyrða að enginn at- burður frá falli Sovétríkjanna ein- um áratug fyrr hafi haft svo mikil og gagnger áhrif á framvindu heimsmála sem þessi. Svo vildi til að þá var við völd í Bandaríkjunum forseti sem hafði eitthvert hæpnasta umboð sem nokkur Bandaríkjaforseti hefur haft frá þjóð sinni frá upphafi vega: George W. Bush hafði minni- huta heildaratkvæðafjölda á bak við sig, úrslitin ultu á nokkrum hundruðum atkvæða í Flórída, ríki þar sem bróðir hans réði ríkjum og stjórnaði atkvæðatalningu. Loks varð Hæstiréttur að skerast í leik- inn og lýsa Bush réttkjörinn. Flestir fréttaskýrendur töldu að þessi forseti mundi einbeita sér að málum sem víðtæk samstaða beggja stóru flokkanna gæti orðið um, hann yrði atkvæðalítill bæði innanlands og utan. Atburðirnir 11. september ger- breyttu þessu. Allur heimurinn taldi eðlilegt að Bandaríkjamenn réðust inn í Afganistan eftir að stjórnvöld þar höfðu neitað kröfu þeirra um að framselja ódæðis- manninn Osama bin Laden. En þrátt fyrir það alsjáandi auga sem Bandaríkjamenn hafa komið fyrir úti í geimnum, og telja að geri sér kleift að fylgjast með öllu á yfir- borði jarðar, smaug bin Laden úr greipum þeirra og er ófundinn enn! Af 19 ódæðismönnum sem rændu flugvélunum þremur sem flugu á turnana og Pentagon voru að minnsta kosti 15 frá Sádi- Arabíu. Enginn þeirra var frá Írak. Samt fór gífurleg áróðursmaskína í gang til að tengja Írak við al Kaída og gera landið þannig að réttmætu skotmarki fyrir hefndarhug Banda- ríkjamanna. Jafnframt var með sí- vaxandi þunga fullyrt að Saddam Hússein – (Hitler nútímans) - byggi yfir gereyðingarvopnum, sem hann gæti skotið á Vesturlönd hvenær sem væri með 45 mínútna fyrirvara. Hver sem dró þetta í efa var stimplaður vinur Saddams, og ef ekki landráðamaður þá nytsam- ur sakleysingi, sem léti óvini lýð- ræðis, frelsis og kristinna gilda nota sig til að grafa undan grund- velli vestrænna stjórnarhátta. Bush og Blair sneru bökum saman í spuna lygavefsins, þó með þeim hætti að þeir ættu smugur út og gætu skellt skuldinni á leyniþjón- ustur sínar, svo sem gert hefur verið með ærið hæpnum rökum. Svo fóru ríkin tvö (undir því hljómmikla nafni „bandalagiðî”) í stríð í Írak með halarófu hinna „staðföstu og fúsu“ á eftir sér. Þrátt fyrir yfirlýst stríðslok stendur stríðið enn, Bandaríkja- menn hafa misst yfir 1.000 her- menn og Írakar neita að láta frelsa sig þrátt fyrir fall tuga þúsunda óbreyttra borgara, misþyrmingar og pyntingar. Brátt höfðu allir kúgarar heims- ins lært aðferðina: Tengja öll and- stöðuöfl, hverju nafni sem þau nefnast, við al Kaída og stimpla þau hryðjuverkahópa; þá mætti svipta þau öllum mannréttindum, jafnvel útrýma þeim létu þau sér ekki segjast. Í grein minni í síðustu viku rakti ég hvernig kínversk stjórnvöld nýta sér þá alþjóðlegu hysteríu, sem kerfisbundið hefur verið byggð upp á síðustu þremur árum, til að ráðast gegn Uighur- þjóðflokknum. Rússar hafa beitt viðlíka aðferðum í Tsjetsjeníu og ákalla alþjóðasamfélagið um stuðning við þær aðgerðir. Vissu- lega eru ódæðisverk aðskilnaðar- sinna hryllileg. En viðbrögðin eru engu skárri. Í Morgunblaðinu í fyrradag er haft eftir rússneskum sérfræðingi um öryggismál: „Því miður er líklegast að viðbrögðin felist í aukinni kúgun, múlbindingu fjölmiðla og skertum borgara- legum réttindum. Og því meiri sem kúgunin verður, því meiri verður stuðningurinn við hryðjuverka- mennina í Tétsníu.“ En maður líttu þér nær. Osama bin Laden setur æ meir svip sinn á Bandaríkin. Ógnarástand er vakið og viðhaldið og stighækkað öðru hvoru ñ stundum á grundvelli margra ára gamalla upplýsinga. Lögregluvaldið er aukið og dregið úr réttindum þegnanna jafnframt. Lögreglan fær stóraukið svigrúm til hlerana, veikustu grunsemdir geta leitt til fangelsana, án mögu- leika á samráði við lögfróða verjendur, ættingja og vini. Marga minnir ástandið á bók George Orwell 1984. Þegar minnst er á þá bók dettur flestum í hug slagorðið: „Stóri Bróðir hefur gætur á þér.“ En kannski á hitt enn betur við í dag: Þörf Foringjans á „samfelldu stríði“. Hann þurfti að halda borg- urunum í stöðugri ógn af Óvininum til þess að þeir gæfu honum fús- lega það vald sem hann þráði. Fólkið kaus að lifa, svo að það fórn- aði frelsi sínu og frjálsræði. Auð- vitað gat þetta því aðeins gerst að fólkið væri fyllilega sannfært um að óvinurinn væri alls staðar nálægur, og að það gæti dáið á hverri stundu Þetta bragð heppnaðist í bókinni og það gengur upp í veruleikanum í dag. Það eina sem getur stöðvað framgang slíkra brellna er að við snúumst af fyllstu hörku og hiklaust gegn lygunum og blekkingunum sem haldið er að okkur. Er það ekki hluti af okkar vestrænu arfleifð að „sannleikurinn skal gera yður frjálsa“? ■ Ídag eru þrjú ár liðin frá hinum skelfilegu árásum hryðjuverka-manna á Bandaríkin 11. september 2001. Heimurinn hefur ekkiverið samur síðan þeir atburðir áttu sér stað. Líklegt er að skuggi þessa ógnarverks og sá slóði sem það hefur dregið á eftir sér eigi eftir að fylgja mannkyni um langa framtíð. Viðbrögð stjórnvalda í okkar heimshluta við árásinni hafa einkum verið af tvennu tagi. Ráðist hefur verið með hervaldi gegn víghreiðrum hryðjuverkamanna víða um heim og reynt að uppræta þau. Þá hefur innra öryggiskerfi fjölmargra ríkja verið endur- skipulagt í veigamiklum atriðum. Á fyrrnefnda sviðinu eru veigamestar innrásir Bandaríkja- manna og fylgiríkja þeirra í Afganistan og Írak. Innrásin í Afganistan var óhjákvæmileg og fullkomlega réttmæt. Hún var líka árangursrík að því leyti að al Kaída samtökin töpuðu mikilvæg- asta griðastað sínum og eru í sárum. Hins vegar hefur komið á dag- inn að innrásin í Írak var misráðin. Beitt var blekkingum til að afla stuðnings alþjóðasamfélagsins og almenningsálitsins í heiminum við innrásina. Þó að heimurinn sé vissulega öruggari staður með Saddam Hussein og glæpasveitir hans bak við lás og slá var Írak ekki rétta skotmarkið í hinu eiginlega hryðjuverkastríði. Endurbæturnar sem gerðar hafa verið á innri öryggismálum lýðræðisríkja, svo sem með landmæraeftirliti, munu vafalaust draga úr líkum á því að hryðjuverkamenn komi fram viljum sínum. En sumar lagaheimildir sem stjórnvöld hafa aflað sér til að fylgjast með og hafa hendur í hári hryðjuverkamanna orka tvímælis þar sem þær ógna lýðréttindum. Er mikilvægt að kjörnir fulltrúar almennings á þjóðþingum fylgist náið með því að nýjum reglum verði ekki misbeitt; ekki verði gengið lengra á rétt einstaklinga en ýtrasta nauðsyn og almannaheill krefur. Skiljanlegt er að hefnd og auknar varnir hafi verið mönnum efst í huga eftir hryðjuverkin fyrir þremur árum. En tilfinningar mega ekki bera skynsemi ofurliði. Stjórnvöld og almenningur á Vestur- löndum verða að horfast í augu við ástæðurnar fyrir því að ofstæk- is- og ódæðismönnum hefur tekist að fylkja venjulegu fólki, sem þráir eðlilegt mannlíf, undir gunnfána sjálfsmorðsárása og haturs á frelsi og lýðræði. Ástæðurnar eru ranglætið sem þetta fólk upp- lifir hvarvetna í umhverfi sínu, örbirgðin og vonleysið sem mætir því í daglegu lífi. Þar er rót vandans að finna. Engar árásir og engar varnir megna að forða okkur frá áframhaldandi skelfingum hryðjuverka ef ekki er tekið á meininu sjálfu. Um það eru ógnar- verk víða um heim á undanförnum misserum, nú síðast barna- morðin í Rússlandi, órækur vottur. Það ætti að vera höfuðatriði utanríkisstefnu Íslendinga að koma þessum skilaboðum á framfæri og vinna í samræmi við þau. ■ 11. september 2004 LAUGARDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Þrjú ár frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum. Ráðast verður að rót vandans Hringekja hefndarinnar ORÐRÉTT Mildi að ekki fór betur Þau voru spennt og litu á björg- unina sem Survivor-ferð. Þau voru ofsalega kát með ævintýrið sem krökkunum fannst skemmtilegur bónus. Jónína Ómarsdóttir kennari Fréttablaðið 9. september Kjóstu mig - annars gætirðu dáið Það er höfuðatriði að við veljum rétt í kosningunum 2. nóvember. Ef við veljum rangt er hættan sú að við verðum fyrir annarri árás. Dick Cheney, varaforseti Bandaríkj- anna. Morgunblaðið 9. september Betra að skora meira og fá færri á sig Við hefðum getað gert fleiri mörk með aðeins betri leik og áttum alls ekki að fá þrjú mörk á okkur. Eiður Smári Guðjohnsen landsliðs- fyrirliði Morgunblaðið 9. september Mótorhjólatöffari dansar og spilar á fiðlu Maxim Vengerov kemur og leikur víólukonsert og stígur dans að auki. Hann tók sér frí í heilt ár til að keyra á mótorhjóli um Banda- ríkin og læra dans. Við fáum að sjá hvað kemur úr úr því. Sváfnir Sigurðsson, kynningarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands Fréttablaðið 9. september Verða þau ekki bara harðari af þessu? Þessi gönguleið er á bersvæði og því skjóllaus fyrir öllum áttum og ekkert nema stöku ljósastaur að hengja sig utan í þegar kaldur og oft blautur norðan- sjávargarrinn blæs í fangið. Þetta hljómar ef til vill skáld- lega og ýkt en þetta er engu að síður staðreynd. Guðmundur Þór Egilsson á Álftanesi kvartar yfir að börn þurfi að ganga of langt til að taka strætó. DV 9. september FRÁ DEGI TIL DAGS Engar árásir og engar varnir megna að forða okkur frá áframhaldandi skelfingum hryðjuverka ef ekki er tekið á meininu sjálfu. Um það eru ógnarverk víða um heim á undanförnum misserum, nú síðast barnamorðin í Rússlandi, órækur vottur. Það ætti að vera höfuðatriði ut- anríkisstefnu Íslendinga að koma þessum skilaboðum á framfæri og vinna í samræmi við þau. ,, haflidi@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Í DAG HRYÐJUVERKJASTRÍÐIÐ ÓLAFUR HANNIBALSSON En maður líttu þér nær. Osama bin Laden setur æ meir svip sinn á Bandaríkin. ,,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.