Fréttablaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 42
26 11. september 2004 LAUGARDAGUR
Haustrigningarnar hafa ráðið
ríkjum í veðráttunni síðustu
daga og minnt okkur á að við
búum á Íslandi. Það þurfti eitt-
hvað slíkt til eftir hlýindin síð-
sumars enda haft á orði að eyjan
bláa gæti varla ennþá verið
staðsett norður undir Græn-
landssundi. En þar er hún enn,
haustið segir okkur það.
Sumarsins 2004 verður, án efa,
lengi minnst fyrir eindæma veð-
ursæld. Hitamet féllu þvers og
kruss um landið og mannlífið
breyttist í takt við það. Ís seldist
sem aldrei fyrr, setið var á úti-
kaffihúsum svo lengi sem lög
heimiluðu, bjór og aðrar svalandi
veigar runnu sem stórfljót niður
þurrar kverkar og sólarvarnir
tæmdust úr hillum stórmarkað-
anna.
Pálína í Vegamótum á Suður-
landi hafði ekki undan við íssöl-
una, Helena á Kaffibrennslunni
sagði „brjálað að gera“. Hrafn-
istufólk steig dans úti í garði og
yfirstjórn Hafnarfjarðar fundaði
undir berum himni.
Sigtryggur sálfræðingur sagði
okkur að veðrið hefði góð áhrif á
sálarlífið, enda „verðum við ró-
legri þegar hitinn er mikill og
nautnin í kringum það segir til
sín“. Ástandið hafði þó ekki sömu
áhrif á alla. Þeir sem glíma við
þunglyndi geta orðið enn þung-
lyndari við að horfa upp á aðra
káta og létta, sagði sálfræðingur-
inn. Og í miðjum hlýindunum bár-
ust þær fregnir utan úr heimi að
hiti og raki hefðu slæm áhrif á
mígrenisjúka. Gott veður hefur
því kosti og galla.
Ferðalögin og fótboltinn
Auðvitað flykktust landsmenn út í
náttúruna þegar veðrið var sem
best. Þeir sem enn eiga tjald stun-
gu hælum sínum þar sem hægt
var að stinga hælum og fellihýsa-
eigendurnir voru á ferðinni sem
aldrei fyrr. „Maður verður að nota
þetta, nóg var nú borgað fyrir
græjuna,“ sagði ónefndur Kópa-
vogsbúi sem varði öllum helgum í
sveitum landsins. Hann sagðist
vita fátt unaðslegra en að setja
hýsið sitt upp með næstum einu
handtaki, sitja við höllina, sötra
kaffi og horfa á fjöllin.
Þeir sem bestum búnaði
skarta létu ekki áhuga sinn á
Evrópumótinu í knattspyrnu
koma í veg fyrir ferðalög. Sjón-
varpið var bara tekið með og
gónt á Grikkina leggja hverja
stórþjóðina á fætur annarri eins
og ekkert væri sjálfsagðara.
Evrópumótið setti auðvitað
sinn svip á sumarið. Annars dag-
farsprútt fólk missti sig af spenn-
ingi og hálf þjóðin var orðin sér-
fróð um föst leikatriði, snúnings-
bolta og „réttar“ innáskiptingar.
Fjölmiðlalögin og forsetinn
Dagfarsprýðin rann líka af fólki í
umræðunum um fjölmiðlalögin.
Málið klauf þjóðina í herðar niður
og svo djúp gjá myndaðist á milli
þings og þjóðar að sjálfum forsetan-
um þótti nóg um. Synjaði hann lög-
unum staðfestingar eins og frægt er
orðið og var það í fyrsta sinn sem
forseti gengur gegn þingvilja.
Framtíðin mun svo svara hvort
þetta verði viðtekin venja eða hvort
við urðum vitni að einstökum við-
burði í lýðveldissögunni.
Forsetinn var svo endurkjörinn
í júní, hann hlaut yfirgnæfandi
kosningu, þorra allra greiddra at-
kvæða en sem fyrr skipuðu lands-
menn sér í fylkingar eftir því
hvort þeim þótti hann í raun bera
sigur úr býtum eða ekki. Sumir
gengu svo langt að segja hann ekki
forseta allrar þjóðarinnar heldur
bara þeirra sem kusu hann.
Fendergítarar og Framsókn
Tónelskir höfðu úr vöndu að velja
í sumar því framboð hljómleika
með erlendum hljómsveitum var
með eindæmum gott. Raunar
ótrúlega gott. Metallica, Pink,
Korn, Kraftwerk, James Brown,
Deep Purple, Pixies, Placebo, 50
TJALDSTÆÐIN VORU VEL NÝTT Í SUMAR FORSETINN VAR Í SVIÐSLJÓSINU Í SUMAR
Óvenjuleg veðursæld, tíðir hljómleikar og umræður um fjölmiðlalög einkenndu sumarið 2004. Forsetinn var líka í sviðsljósinu,
bæði vegna lagasynjunar og endurkjörs.
Hlýtt, taktfast og róstursamt