Fréttablaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 11
11LAUGARDAGUR 11. september 2004
■ EVRÓPA
!
" #$ %" $""
& '(
$ )#& ...30 tíma spilun
GÍSLARNIR ENN Á LÍFI Frönsku
blaðamennirnir sem voru
teknir í gíslingu eru að öllum
líkindum enn á lífi að sögn
Michel Barnier, utanríkisráð-
herra Frakklands. Franskir
ráðamenn vilja sem minnst
segja um málið þar sem þeir
óttast að það dragi úr möguleik-
um á lausn gíslanna.
SJÖ FÉLLU Í BARDÖGUM Tyrk-
neskir hermenn felldu fjóra
kúrdíska uppreisnarmenn í bar-
dögum í austurhluta Tyrklands í
gær. Þrír hermenn féllu fyrir
hendi Kúrdanna. Frá 1. júní í
sumar hafa alls 65 Kúrdar og 25
tyrkneskir hermenn og lög-
reglumenn fallið í bardögum og
árásum.
Réttarhöld:
Málaliði
sakfelldur
SIMBABVE Breski málaliðinn
Simon Mann, sem stjórnvöld í
Miðbaugs-Gíneu sökuðu um að
leiða hóp málaliða sem áttu að
steypa þeim af stóli, hefur verið
dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir
að reyna að kaupa vopn ólöglega.
Dómurinn var kveðinn upp í
fangelsi í Simbabve en í honum
var ekkert tekið á ásökunum um
fyrirhugað valdarán.
Alls voru 64 málaliðar og
áhöfn flugvélar sem flutti þá
handtekin á leið til Miðbaugs-
Gíneu eftir að mikið magn vopna
fannst í flugvélinni. Sonur
Margrétar Thatcher, fyrrum for-
sætisráðherra Bretlands, hefur
verið sakaður um að taka þátt í
fjármögnum verkefnisins. ■
MICHAEL MANN
Mann hefur verið í fangelsi í hálft ár og
verður þar í sjö ár enn.
Lestarslys:
Tveir létust
SVÍÞJÓÐ Tveir létust og 47 slösuð-
ust, þar af fjórir alvarlega,
þegar lest lenti í árekstri við
flutningabíl í Nosaby skammt
frá Kristianstad í Suður-Svíþjóð.
Einum af þremur vögnum lest-
arinnar hvolfdi við áreksturinn
og var í fyrstu óttast að fólk
kynni að hafa lent undir vagnin-
um. Síðar um daginn kom þó í
ljós að svo hafði ekki verið.
Nokkrir skorðuðust fastir og
þurftu á hjálp að halda til að
komast út úr flaki lestarvagns-
ins. Fjölmennt björgunarlið var
sent á vettvang sem hjálpaði
fólki á slysstað og fluttu þá sem
á þurftu að halda á sjúkrahús. ■
LANDBÚNAÐUR Embætti yfirdýra-
læknis hefur borist til eyrna að
brotalamir kunni að hafa orðið í
flutningum sauðfjár milli lands-
hluta í sláturhús, að sögn
Sigurðar Sigurðarsonar, sér-
fræðings embættisins í sauðfjár-
sjúkdómum.
Sigurður segir að vegið sé að
vörnum við riðu, garnaveiki og
ýmsum smitsjúkdómum sem
embættið er að reyna að útrýma
þegar óvarlega er farið í flutn-
ingunum.
„Féð er flutt langar leiðir og
milli landshluta. Farið er bæ af
bæ, jafnvel úr einu hólfi í annað
með mismunandi smitstöðum og
stórir miklir bílar sem bakka upp
að bæjardyrunum þar sem
óhreinindin leka af bílunum,“
segir Sigurður og skorar á slát-
urleyfishafa og bílstjóra að sjá
til þess að farið sé að reglum og
bílar sótthreinsaðir þegar farið
er á milli hólfa. „Ég skora á dýra-
lækna að fylgjast með þessu og
bændur að láta vita ef ekki er
staðið að þrifnaði bíla með viðun-
andi hætti.“ Sigurður telur hætt-
una á að slegið sé slöku við í
þrifnaði bíla aukast eftir því sem
líður á sláturtíðina því þá sé ver-
ið að sækja færri kindur og því
freistingin meiri að fara víðar og
nýta ferðir. ■
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Sektað fyrir
kannabisrækt
DÓMSMÁL Tveir menn á þrítugsaldri
voru í gær dæmdir til að greiða
hvor um sig 200 þúsund krónur í
sekt fyrir að rækta kannabisplöntur
í Súðarvogi í Reykjavík.
Lögreglan í Reykjavík haldlagði
89 kannabisplöntur, 8,39 grömm af
maríjúana og 6,96 grömm af kanna-
bisfræjum í húsnæði mannanna í
byrjun júní í fyrra. Mennirnir
játuðu brot sín, en þeim var virt til
refsiþyngingar að þeir frömdu brot
sitt í sameiningu. Greiði þeir ekki
sektina innan fjögurra vikna þurfa
þeir að sitja í fangelsi í 32 daga.
Dómurinn var upp kveðinn í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur. ■
Smithætta í sauðfjárflutningum:
Reglur um smitgát brotnar
SIGURÐUR SIGURÐARSON
„Langar ferðir í sláturhús reyna á skepnur
og líklegt að afurðirnar verði verri,“ segir
Sigurður Sigurðarson, sérfræðingur yfir-
dýralæknisembættisins.