Fréttablaðið - 11.09.2004, Síða 8
11. september 2004 LAUGARDAGUR
Colin Powell þremur árum eftir 11. september:
Búum enn við ógn
WASHINGTON, AP „Við búum enn í
hættulegu umhverfi. Það er enn
til fólk sem vill vinna Banda-
ríkjunum mein,“ sagði Colin
Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Hann segir
Bandaríkjamenn þó öruggari nú
en um það leyti sem hryðju-
verkaárásirnar voru gerðar í
New York og Washington fyrir
þremur árum.
Powell sagðist telja að Osama
bin Laden, leiðtogi al-Kaída,
væri enn á lífi en sagði að hann
gæti ekki verið viss. „Ég veit
ekki hvar hann er. Ég veit ekki
við hvers konar heilsu hann er.
Ég trúi því að hann sé á lífi en
get ekki sannað það. Hann er
augljóslega í felum og á flótta.“
Síðustu tvö ár hefur bin Laden
sent frá sér skilaboð fyrir 11.
september til að hvetja menn
sína áfram og minna á árásirnar
2001. Nú er það næstráðandi
hans sem gerir það. Powell segir
al-Kaída hafa sýnt að samtökin
geti endurnýjað sig og fengið
nýja menn til starfa. Hins vegar
verði nýir leiðtogar þeirra ekki
jafn öflugir og bin Laden. ■
Segja sigurinn nærri
Þremur árum eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum segir næstæðsti
maður al-Kaída sigurinn nærri í Írak og Afganistan. Þeir sem lifðu árásirnar
af og aðstandendur þeirra sem létust eiga enn um sárt að binda.
HRYÐJUVERK „Ósigur Bandaríkja-
manna í Írak og Afganistan er að-
eins tímaspursmál,“ segir Ayman
al-Zawahri, næstráðandi Osama
bin Laden í al-Kaída, á myndbandi
sem sýnt var á sjónvarpsstöðinni
al-Jazeera í gær. „Í báðum löndum
eru Bandaríkjamenn á milli
tveggja elda. Ef þeir halda áfram
að berjast blæðir þeim út og þeir
glata öllu,“ sagði hann.
Þetta er þriðja árið í röð sem
al-Kaída sendir frá sér upptöku
tíunda september, tvö síðustu ár
hafa samtökin sent frá sér hljóð-
upptöku með ávarpi Osama bin
Laden. „Skilaboðin breytast ár frá
ári en hafa alltaf þann tilgang að
sanna tilvist þeirra og getu til að
halda áfram starfsemi sinni,“
sagði Dia'a Rashwan, egypskur
sérfræðingur í málefnum íslam-
skra vígamanna í samtali við AP-
fréttastofuna.
Tímasetning upptakanna er
heldur engin tilviljun, degi áður
en 11. september gefur mörgum
tilefni til að minnast hryðjuverka-
árásanna í Bandaríkjunum fyrir
þremur árum.
Árásirnar halda áfram að
hrella þá sem urðu fyrir þeim.
Margir þeirra sem lifðu árás-
irnar af hittast reglulega. „Um-
heimurinn og jafnvel íbúar New
York hafa jafnað sig eftir áfallið.
En við sem lentum í þessu getum
talað saman um hvað sem er,“ er
haft eftir Larry Bogacz í tímarit-
inu Time. Hann var á 82. hæð
norðurturnsins þegar árásirnar
voru gerðar.
Í Time er einnig greint frá
rannsókn sem sýnir að íbúar Man-
hattan segjast nota áfengi, tóbak
og maríúana í meira mæli eftir
árásirnar en fyrir þær. Það virðist
koma í staðinn fyrir ráðgjöf sem
fólki stendur til boða án endur-
gjalds, hana virðast fáir aðrir
nýta en þeir sem voru þegar í
meðferð áður en árásirnar voru
gerðar.
Aðstandendur þeirra sem
létust glíma enn við ýmis vanda-
mál. Margir eiga erfitt með að
vita ekki hvernig ástvinir þeirra
létust. „Það mikilvægasta veit ég
aldrei. Ég mun aldrei vita hvort
hann þjáðist og ég mun aldrei vita
hvernig hann lést,“ sagði Liz
Alderman í viðtali við dagblaðið
New York Times en hann missti
son sinn.
brynjolfur@frettabladid.is
Hefur
þú séð
DV í dag?
Gullu í Svínasúpunni helst illa á karlmönnumGuðlaug Elísabet Ólafsdóttir, eða Gulla í Svínasúpunni, er ein vinsælasta leikkonalandsins í dag en svo hefur ekki alltafverið. Hún var við það að segja skilið viðleiklistina þegar kallið kom. Grínið á velvið hana en henni helst illa á karlmönnum eins og fram kemur í ítarlegu viðtali í Helgarblaði DV.
Bls. 20-21
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 204. TBL. – 94. ÁRG. – [LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004] VERÐ KR. 295
Sorg í Keflavík Móðir kennir lögregluum dauða sonar síns Bls. 61
D
V-
m
yn
d
Te
itu
r
Betra að vera feit en heimsk
Auður LaxnessVar hjá Halldórisíðustu nóttina Bls. 12
Sorg í
Keflavík
Móðir
kennir
lögreglu
um dauða
sonar síns
COLIN POWELL
Heimurinn er öruggari nú en áður vegna
baráttunnar gegn hryðjuverkum, segir
bandaríski utanríkisráðherrann.
Á FLÓTTA
Þremur árum eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum eiga margir þeir sem lifðu þær
af enn um sárt að binda. Tugþúsundir í World Trade Center komust út og lifðu árásina
af, sumir þeirra hafa myndað félagsskap þar sem þeir hjálpa hver öðrum að takast á við
eftirköstin.