Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 14
14 21. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR
BANDARÍKIN, AP Ákvörðun George W.
Bush, forseta Bandaríkjanna, að
ráðast inn í Írak ber vott um dóm-
greindarskort og getur leitt stríðs
sem ekki sér fyrir endann á.
„Saddam Hussein var hræðilegur
einræðisherra sem á skilið að fara til
helvítis,“ sagði Kerry í ræðu sem
hann flutti í New York-háskóla í gær.
„En það er ekki nóg til þess að fara í
stríð. Samt segir Bush að ef hann
stæði í sömu sporum í dag og hann
gerði áður en hann fór í stríðið myndi
hann gera nákvæmlega það sama.
Hvernig getur honum verið alvara?
Er hann virkilega að segja að ef við
vissum að það væri engin raunveru-
leg hætta vegna Íraka, engin gjöreyð-
ingarvopn, engin tengsl við al-Kaída,
þá ættum við samt að ráðast inn í
landið? Mitt svar er nei. Það er meg-
inhlutverk forsetans sem yfirmanns
hersins að vera ábyrgur og taka vel
ígrundaðar ákvarðanir sem stuðla að
auknu öryggi Bandaríkjamanna.
Bush steypti einræðisherra af stóli og
gjaldið sem við greiðum er ringulreið
og minna öryggi Bandaríkjamanna.“
Stjórnmálaskýrendur eru sam-
mála um að ræða Kerry í gær hafi
verið til þess fallin að kveða niður
þær sögur um að hann sé ekki með
neina stefnu varðandi Írak og stríð-
ið. Steve Schmidt, einn af kosninga-
stjórum Bush, segir að með orðum
sínum sé Kerry að senda þau skila-
boð til óvina Bandaríkjanna að
Bandaríkjamenn séu linir og gefist
auðveldlega upp. ■
Borgartún í Reykjavík hefur
gengið í endurnýjun lífdaga og er
orðið eitt af fjörlegustu strætum
bæjarins. Nýjar glæsihallir hafa
risið við götuna, aðrar eru í bygg-
ingu, grunnar eru teknir og enn á
eftir að rýma fyrir fleiri hýsum.
Slegið hefur verið á að um
fjögur þúsund manns vinni við
skrifborð í Borgartúninu og enn
eiga fleiri eftir að bætast við á
næstu misserum.
Uppbygging hins nýja Borgar-
túns hefur verið hröð. Fá ár eru
síðan ákveðið var að láta eldri og
lúnari byggingar víkja fyrir nýrri
og glæsilegri. Og óhætt er að full-
yrða að glæsileikinn sé í fyrir-
rúmi. Nokkur af tignarlegustu
skrifstofuhúsum borgarinnar
standa nú við götuna og frá þeim
er sýn yfir sundin blá.
Verðmætasta fyrirtæki
landsins
Tvær hallirnar við Borgartún-
ið bera tignarleg nöfn, Höfða-
borg og Hús atvinnulífsins. Hið
fyrrnefnda er númer 21 og þar er
aðsetur næstum tuttugu ríkis-
stofnana. Í þeim hópi eru Lög-
gildingarstofa, Íbúðalánasjóður,
Ríkissáttasemjari, Hagstofan,
LÍN og Barnaverndarstofa. Hús
atvinnulífsins er númer 35 og
hýsir meðal annars Samtök at-
vinnulífsins, Samtök iðnaðarins,
Samtök verslunar og þjónustu,
LÍÚ, Útflutningsráð og Nýsköp-
unarsjóð.
Þó að nokkur öflug fyrirtæki
hafi flust í Borgartúnið á undan-
förnum árum tók ímynd þess
stakkaskiptum þegar hinn um-
svifamikli og verðmæti KB banki
festi sér lóðina númer 19. Á sínum
tíma huggðist Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins reisa sér þar höfuð-
stöðvar en sameiningin við
Íslandsbanka gjörði þá þörf að
engu. KB banki flutti inn í upphafi
árs og ber öðrum fremur ábyrgð á
að Borgartúnið er ýmist nefnt
Miðstöð fjármála á Íslandi, Wall
street eða City eftir samnefndum
fjármálahverfum stórborganna í
austri og vestri. Nýbyggingin var
raunar orðin of lítil áður en flutt
var inn og nýlega var greint frá
kaupum bankans á húsinu númer
17 til að ráða bót á þrengslunum.
Verður húsið gert upp að utan sem
innan og sambyggt því nýja.
Auk KB banka starfa nokkur
önnur fjármálafyrirtæki við
Hallgrímskirkja
Guð er að tala við þig
ert þú að hlusta?
www.tlig.org
Vassula Ryden fjallar um guðlegan
innblástur sem hún hefur meðtekið allt frá
árinu 1985 og er ákall Drottins til alls
mannkyns um iðrun, sátt, frið og kærleika.
Spádómsskilaboðin Einlægt líf með Guði
eru þó umfram allt bón til kirkjunnar um
eitt samfélag allra kristinna manna.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Ókeypis aðgangur.
Vassula Ryden
Sunnudaginn 3. október 2004, kl. 19.30
JOHN KERRY FLYTUR RÆÐU Í NEW
YORK-HÁSKÓLA
Stjórnmálaskýrendur eru sammála um að
ræða Kerrys í gær hafi verið til þess fallin að
kveða niður þær sögur um að hann sé ekki
með neina stefnu varðandi Írak og stríðið.
Kerry gagnrýnir Bush harkalega fyrir stríðið í Írak:
Innrásin dómgreindarskortur
Aðalstræti
atvinnulífsins
Borgartún í Reykjavík er orðið miðpunktur athafnalífsins. Áður voru
verkstæði og vörubílastöð helstu kennileiti en þau hafa vikið fyrir stór-
fyrirtækjum og hagsmunasamtökum. Jakkaföt komin í stað samfestinga.
BORGARTÚN 19, KB BANKI
Húsið var of lítið þegar bankinn flutti inn fyrr á árinu. Húsið á næstu lóð var því keypt á dögunum.
BORGARTÚN 21, HÖFÐABORG
Um tuttugu opinberar stofnanir eru í Höfðaborg, stórar og smáar.