Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 24. september 2004
Fáðu flott
munnstykki
Skeifan 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Hjá okkur fáið þið falleg
rimlarúm í úrvali fyrir börnin.
Leikfimifatnaður er nú seldur
með 30% afslætti í öllum verslun-
um Útilífs til að rýma fyrir nýjum
vörum. Mest er um boli að ræða á
þessu niðursetta verði og eru þeir
til í hvítum, gráum, rauðum,
bleikum og ljósbláum litum – með
hlýrum, stuttum ermum og
löngum; jafnvel langerma með
rennilás. Einnig eru toppar á
þessu tilboði og talsvert af buxum,
bæði kvart og síðum, en þó í
minna úrvali en bolirnir. Vörurnar
eru með merkinu USA Pro og
teljast bæði til erobikklínu
og jógalínu. Erobikklínan er úr
blöndu af teygjuefni og bómul en
jógalínan er með meiri bómullará-
ferð. Verslanir Útilífs eru í Smára-
lind, Glæsibæ og Kringlunni. ■
Úrval af bolum á 30% afslætti.
Útilíf:
Leikfimifatnaður á afslætti
Kvenfataverslunin Hjá Hrafn-
hildi býður þessa dagana uppá
hausttilboð á kápum og úlpum.
Fimmtán prósenta afsláttur er
af öllum kápum og úlpum í
versluninni og úrvalið er ekki
af verri endanum. Hægt er að
fá bæði hlýjar og þykkar ullar-
kápur sem og þunnar úlpur og
allt upp í dúnúlpur. Starfsmenn
verslunarinnar eru nýbúnir að
taka upp nýjar vörur og gildir
tilboðið til og með morgun-
deginum. Verslunin er til húsa
að Engjateigi 5 í Reykjavík og
er síminn þar 581 2141. ■
Tilboð á kápum og úlpum:
Nauðsynlegt fyrir haustið