Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 53
37FÖSTUDAGUR 24. september 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÁ LEIKSTJÓRA
SCARY MOVIE
FRUMSÝND 24. SEPTEMBER
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind.
Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS
klúbb. 99 kr/skeytið
Sendu SMS skeytið
JA WHITE á númerið 1900
og þú gætir unnið.
9. hver vinnur.
Vinningar eru:
Miðar á myndina
DVD myndir
Margt fleira.
TRAVOLTA SLEKKUR ELDA Leikarinn
John Travolta var í miklu stuði á frumsýn-
ingu nýjustu myndar sinnar, Ladder 49, í
Hollywood fyrir skömmu. Travolta leikur
slökkviliðsmann í myndinni og því var hópi
slökkviliðsmanna boðið á frumsýninguna.
Rapparinn Eminem gefur út
plötuna Encore 16. nóvember.
Þar verður meiri áhersla lögð á
persónuna Slim Shady heldur en á
síðustu plötu.
Eminem gagnrýnir Bush
Bandaríkjaforseta víða á plötunni
og gefur þar ekkert eftir frekar
en fyrri daginn. Fyrsta smáskífu-
lagið, Just Lose It, kemur í útvarp
von bráðar og skömmu síðar verð-
ur frumsýnt myndband við lagið.
Þar hleypur Eminem um nakinn í
miðborg Los Angeles og klæðir
sig líka upp eins og frægar
persónur á borð við Pee-Wee
Herman. Einnig er að finna á plöt-
unni titillagið Encore þar sem Dr.
Dre og 50 Cent koma við sögu.
Svo gæti farið að með nýju
plötunni fylgi aukadiskur í tak-
mörkuðu upplagi með lögum eftir
Eminem sem var lekið á netið á
síðasta ári. Miklar vonir eru
bundnar við Encore og er talið að
sala geti auðveldlega farið yfir
eina milljón eintaka fyrstu vikuna
í Bandaríkjunum. ■
Hleypur nakinn
um Los Angeles
EMINEM Rapparinn Eminem gefur í nóvember út nýja plötu sem ber heitið Encore.
Poppprinsessan Britney Spears erekki gift dansaranum Kevin
Federline þrátt fyrir allt. Parið hefur
ekki enn skrifað undir leyfis-
bréf vegna hjónabandsins
en stefnir að því að gera
það í næstu viku. Ástæð-
an er sú að þegar brúð-
kaupinu var flýtt til að
gabba fjölmiðla tókst lög-
fræðingum þeirra ekki
að ljúka við hjúskapar-
sáttmálann í tæka tíð.
Söngkonan Christina Aguileraætlar á næstunni að stjórna sjón-
varpsþætti um kynlíf ung-
linga. Þar ætlar hún að tala
við unglingana og hvetja
þá til að sofa ekki hjá fyrr en
þeir gangi í hjónaband.
Aguilera reynir hvað hún
getur til að bæta ímynd sína
þessa dagana. Hún er farin
að klæða sig sómasamlega,
hefur litað hár sitt ljóst, auk
þess sem skrautpinnar víðs-
vegar um líkama hennar
eru flestir horfnir.
Popparinn fyrrverandi Cat Stevenser kominn aftur til Bretlands eftir
að hafa verið neitað um vegabréfsá-
ritun til Bandaríkjanna. Stevens, sem
heitir nú Yusuf Islam og er íslamstrú-
ar, var grunaður um að tengjast
hryðjuverkamönnum og
fékk því ekki að koma til
landsins. Stevens var
mjög undrandi á þessu
öllu saman og fannst
hegðun Bandaríkja-
manna hvort tveggja
hlægileg og ógnvekj-
andi.
Leikkonunni Drew Barrymorefinnst sífellt erfiðara að glíma við
svefnleysi sitt. Einnig hefur hún
áhyggjur af því að hún sé farin að líta
út eins og afturganga.
Barrymore segist vera
vinnualki og það hafi sitt
að segja með vandamál
sitt. Ein besta leiðin til
að vinna bug á svefn-
leysinu sé að lesa
góða bók.
Rokksveitin The Pixies ætlar aðendurútgefa þrjár fyrstu plötur
sínar á vínyl. Um er að ræða Come
on Pilgrim, Surfer
Rosa og Doolittle.
Plöturnar hafa ekki
verið fáanlegar í þess-
ari útgáfu í háa herr-
ans tíð og því er hér
um stórtíðindi að
ræða fyrir aðdáendur
sveitarinnar.
Thom Yorke, söngvari Radiohead,hefur hvatt aðdáendur sína til að
mótmæla stjörnustríðsá-
ætlun ríkisstjórnar George
W. Bush Bandaríkjaforseta.
Yorke hefur lengi verið
á móti Bush og vill nú
fá aðdáendur sína í lið
með sér áður en for-
setakosningar hefjast í
Bandaríkjunum.
Söngkonan Madonna óskaði eftirfriði í heiminum á ráðstefnu
gyðinga í Ísrael á dögunum. Sagðist
hún hafa íhugað að hætta
við pílagrímsför sína til
landsins vegna hryðju-
verkaárásanna sem
þar eiga sér stað með
reglulegu millibili.
Bætti hún því við að
hættulegra væri að
vera í Ísrael heldur
en í New York.
■ TÓNLIST