Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 61
Rússneskir hermenn í Síberíu munu fá sjálfhitandi kuldaskó, því hinir hefðbundnu kuldaskór duga ekki til að halda tám þeirra hlýjum á köldum túndrum Síber- íu. Hershöfðingjar hafa sam- þykkt að hermenn skuli fá þennan merka skófatnað sem byggir á efnahvörfum sem einangrun; skórnir halda hitanum inni og á sama tíma draga í sig raka sem hitar þá enn frekar. Þetta kom í ljós eftir kynningu síberískra vís- indamanna sem hafa að undan- förnu þróað búnaðinn. Skórnir munu viðhalda um 18-20 gráðu hita á annars köldum tám her- mannanna. Nokkrar herdeildir í Tsjetsjen- íu hafa þegar fengið úthlutað slík- um kuldaskóm. Þeir virka í allt að sex klukkutíma áður en þarf að „hlaða“ þá aftur en til þess þarf ekki mikla tækni, það er nóg að skella þeim bara á heitan ofn. Þessi búnaður gæti einnig orð- ið vinsæll hjá vísindamönnum sem halda sig á norður- eða suður- pólnum, auk þess sem ísklifur- garpar geta nú litið öfundaraug- um á fætur síberískra hermanna. Þar sem oft er langt í næsta ofn fyrir ísklifrara þurfa þeir þó lík- lega að bíða nokkuð áður en slíkir kuldaskór henta þeim. Kulda- skórnir eru ekki komnir á al- mennan markað og þeirra er ekki að vænta alveg á næstunni, en þó er aldrei að vita nema Rússar sjái viðskiptatækifærið í þessari nýju framleiðslu. ■ 45FÖSTUDAGUR 24. september 2004 Breska sveitin Coldplay er hárs- breidd frá því að ljúka við þriðju breiðskífu sína. Álagið á drengina er mikið enda þurfa þeir að fylgja eftir hinni stórgóðu plötu A Rush of Blood to the Head. „Við erum undir mikilli pressu í hljóðverinu. Við vinnum út í eitt og okkur má ekki verða á,“ sagði söngv- arinn Chris Martin í samtali við NME í eina viðtalinu sem hann hefur veitt á árinu. Hann vildi samt ekki gefa neitt upp um plötuna að svo stöddu. Á síðasta ári sagðist Martin ætla að draga sig í hlé og „finna upp hjólið að nýju“ fyrir næstu plötu. Nú þegar stutt er í nýju plötuna hefur Martin aðeins dregið í land. „Ég held að fólk eigi eftir að fá ógeð á okkur þegar við snúum aftur. Og það sem ég sagði um hjólið, það var bara spenningur yfir tökum á næstu plötu. ■ Playstationleikurinn SingStar hefur verið á toppi vinsælustu tölvuleikja hér á landi um nokkurt skeið en nú er komin samkeppni í heim karaoke-leikja, því út er kominn leikurinn Get On Da Mic, sem er fyrsti hiphop/karaoke-leik- urinn sem komið hefur út. Til að ná langt í heimi hiphopp- ara er ekki nóg að geta haldið lagi. Markmiðið leiksins er að safna aðdáendum, syngja sig inn á klúbbana, taka upp plötur og búa til myndbönd. Ef allt tekst vel er hægt að koma fram á leikvelli fyr- ir framan þúsundir aðdáenda. Á leiðinni til frægðar og frama þarf svo að takast á við öfluga fram- leiðendur, skuggalega umboðs- menn og svo auðvitað grúppíur. Leiknum fylgja rúmlega 40 lög frægra hiphopara á borð við Dr. Dre, JKwon, Missy Elliot, Lil’ Kim, Tupac og fleiri. Ef vel er sungið falla seðlar af himnum ofan, ef ekki gufa aðdáendur upp. Síðast en ekki síst þarf að kaupa „bling“ fyrir peninginn sem fæst ef vel er sungið. Það þarf að kaupa allt frá fötum að snekkjum og auðvitað allt gullið. ■ Stelpur og “bling” ■ TÖLVULEIKUR ■ TÓNLIST GET ON DA MIC Nýr hiphop/karaoke- leikur, þar sem ekki er nóg að syngja. Coldplay-plata að koma CHRIS MARTIN Hann ætlar ekki að finna upp hjólið á næstu plötu. Rokkhljómsveitin Minus the Bear frá Seattle heldur tónleika á Grand rokk í kvöld. Sveitin er að leggja upp í tveggja mánaða tónleikaferð um Evrópu þar sem hún mun leika á yfir þrjátíu tónleikum. Ákvað hún að hefja túrinn hér á landi og sýna íslenskum tónlistaráhugamönnum hvað í henni býr. Minus the Bear gaf síðast út EP-plötuna They Make Beer Commercials Like This og hefur verið að vinna að sinni fyrstu breiðskífu. ■ Seattle-rokk á Grandrokk ■ TÓNLEIKAR MINUS THE BEAR Heldur tónleika á Grandrokk í kvöld Hermenn í Síberíu fá upphitaðan skófatnað. ■ SKRÝTNA FRÉTTIN Upphitaðir skór í kuldanum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.