Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 48
■ ■ LEIKIR  17.30 Hraðmót Hauka og Njarðvíkur fer fram á Strandgötu í körfuknattleik kvenna. Fimm leikir eru á dagskrá í kvöld.  19.15 ÍR og Selfoss eigast við í Austurbergi í handknattleik karla.  19.15 ÍBV og Stjarnan leigast við í Vestmannaeyjum í handknattleik karla.  20.00 HK og FH eigast við í Digranesi í handknattleik karla.  20.00 Valur og Víkingur eigast við í Valsheimilinu í handknattleik karla. ■ ■ SJÓNVARP  16.10 Ólympíuleikar fatlaðra á RÚV.  17.20 Olíssport á Sýn. Fjallað um helstu viðburði heima og erlendis.  18.00 Upphitun á SkjáEinum. Breskir knattspyrnuspekingar spá fyrir um leiki helgarinnar.  18.35 Enski boltinn á Sýn. Beint frá leik Leeds og Sunderland.  20.35 UEFA Champions League á Sýn. Fréttir af liðum og leikmön- num í Meistaradeild Evrópu.  21.05 Landsbankadeildin á Sýn. Farið yfir síðustu sex umferðirnar í Landsbankadeildinni.  22.05 Hnefaleikar á Sýn. Útsend- ing frá einvígi Naseem Hamed og Augie Sanchez frá 2000.  01.30 Ólympíuleikar fatlaðra á RÚV.  05.50 Formúla 1. Bein útsending frá tímatökum í Shanghai. 32 24. september 2004 FÖSTUDAGUR Við hrósum... ... íslensku keppendunum á Ólympíuleikum fatlaðra. Enn eitt skiptið standa þau sig stórkostlega og koma heim með verðlaun í farteskinu. Þau eru svo sannarlega glæsilegir fulltrúar Íslands á erlendri grundu og Íslendingar geta verið ákaflega stoltir af þeim öllum. „Ætli það sé ekki vegna þess að ég er á Musso. Það er eina skýringin sem mér dettur í hug.“ Skýring Haraldar Péturssonar, Íslandsmeistara í torfæru, á því hvernig honum tókst að komast yfir mýrina. sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 21 22 23 24 25 26 27 Föstudagur SEPTEMBER ÓLYMPÍULEIKAR FATLAÐRA Ólympíu- leikar fatlaðra fara fram í Aþenu þessa dagana og þar eiga Íslend- ingar þrjá glæsilega fulltrúa; borðtenniskappann Jóhann Rúnar Kristjánsson, spretthlauparann Jón Odd Halldórsson og sund- drottninguna Kristínu Rós Hákonardóttur. Jóhann Rúnar tók fyrstur ís- lensku keppendanna þátt og stóð hann sig með miklum sóma. Jón Oddur og Kristín Rós hafa síðan farið á kostum síðustu daga. Jón Oddur fékk silfurverðlaun í 100 metra hlaupi og Kristín Rós fékk einnig silfurverðlaun er hún tók þátt í 100 metra bringusundi. Hún gerði síðan gott betur daginn eftir er hún tók þátt í 100 metra bak- sundi en þar fékk hún gull- verðlaun og það sem meira er, þá synti hún á nýju heimsmeti. Hún átti sjálf gamla heimsmetið. „Mér líður alveg rosalega vel,“ sagði sunddrottningin Kristín Rós úr blíðunni í Aþenu í gær. Það skal engan undra að henni hafi liðið vel enda síðustu dagar í Grikklandi búnir að vera algjört ævintýri fyrir hana. En átti hún von á að ná þessum árangri? „Já og nei. Ég er búin að æfa eins og brjálæðingur í sumar og vonaðist til að það myndi skila mér einhverju, sem það og gerði. Ég get ekki verið annað en rosa- lega ánægð með þetta,“ sagði Kristín Rós en hún hefur verið í ströngu prógrammi síðustu daga og keppti sex sinnum á tveim dögum. Hún setti heimsmetið í sjötta sundinu. „Ég var alveg í skýjunum er ég kom í mark og sá ég hafði sigrað og þar að auki sett heimsmet. Það var alveg yndisleg tilfinning sem er ekki hægt að lýsa.“ Það munaði mjög litlu að Kristín Rós næði gulli líka í 100 metra bringusundinu. Hún leiddi nánast allt sundið en sigurveg- arinn stakk sér fram fyrir hana á síðustu metrunum og kom sjónar- mun á undan Kristínu í mark. „Það var svolítið súrt að klára ekki bringusundið. Ég neita því ekki. Það munaði bara nokkrum sekúndubrotum á okkur en það þýðir ekki að velta sér upp úr því,“ sagði Kristín Rós, sem á eftir að keppa í einu sundi á leikunum – 50 metra skriðsundi. „Ég ætla í úrslit þar og vonandi næli ég í þriðja peninginn en það verður tæpt,“ sagði Kristin Rós Hákonardóttir. Frábær upplifun Jón Oddur Halldórsson er að taka þátt í sínum fyrstu leikum og hann byrjaði sinn ólympíuferil með silfurverðlaunum. „Ég átti ekkert endilega von á að ég myndi vinna til verðlauna. Þetta er náttúrlega mitt fyrsta mót og ég var því ekki öruggur um neitt,“ sagði Jón Oddur og bætti við að það hefði verið einstök til- finning er hann sá að hann hefði unnið til verðlauna. „Ég vissi er ég kom í mark að ég hafði unnið til verðlauna en var ekki viss um hvort það væri silfur eða brons. Mér leið frábærlega er ég sá að ég hafði fengið silfur. Þetta var frábær upplifun,“ sagði Jón Oddur og greinilegt að hann var ekki alveg kominn á jörðina ennþá. Hann tekur einnig þátt í 200 metra hlaupi og þar ætlar hann líka að standa sig vel. „200 metrarnir leggjast vel í mig. Ég er nokkuð viss um að ég kemst í úrslit. Ég mun síðan reyna mitt besta og hver veit nema það skili mér verðlaunum,“ sagði Jón Oddur Halldórsson og bætti við að það væri stórkostlegt að taka þátt á Ólympíuleikum og hann ætlar líka að vera með eftir fjögur ár. Slíkt hið sama stefnir borð- tenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson á en hann er líka að taka þátt á ÓL í fyrsta skipti. Hann ætlar að vera aftur með 2008 og þá er stefnan sett á verðlaun. „Draumurinn er að verða að veruleika hérna í Aþenu,“ sagði Jóhann dreyminn. „Þetta er topp- urinn og ein af stóru stundunum í lífinu. Nú er ég kominn á Everest. Nú verður æft eins og brjálaður maður næstu fjögur árin og það eru alveg hreinar línur að ég ætla á pall í Kína. Við settum upp áætlun 1999 og hún gekk út á að komast hingað og fá reynslu. Mæta síðan enn sterkari 2008 og taka verðlaunin.“ henry@frettabladid.is KÁT MEÐ VERÐLAUNIN Kristín Rós Hákonardóttir sundkona og Jón Oddur Halldórsson spretthlaupari brosa breitt í dag enda hafa þau bæði unnið til verðlauna á Ólympíuleikum fatlaðra í Aþenu. Kristín Rós er búin að vinna gull og silfurverðlaun í sundlauginni en Jón Oddur tók silfurverðlaun í 100 metra hlaupi. Stórkostlegur árangur Kristín Rós Hákonardóttir og Jón Oddur Halldórsson gera það veru- lega gott á Ólympíuleikum fatlaðra í Aþenu. TVÖ Á PALLI Kristín Rós Hákonardóttir, til vinstri, og Jón Oddur Halldórsson, að ofan, sjást hér á verðlaunapallinum á Ólympíu- leikum fatlaðra í Aþenu í fyrrakvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.