Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 26
Allir verða leiðir á því að taka borða eins samloku marga daga í
röð.Hvernig væri að virkja hugmyndaflugið í nestisgerðinni?
Skinkunni má til dæmis skipta út fyrir aspas eða tómata. Síðan er
tilvalið að skera út samlokuna með kökumóti og mæta með hjar-
ta- eða stjörnulaga samloku í vinnuna.
Í sumar kom á markaðinn nýr bjór, Lager frá Víking, sem er
einn ódýrasti bjórinn sem boðið er upp á í Vínbúðum. Útlit bjór-
dósanna þykir nýstárlegt, en það er hannað af auglýsingastof-
unni Góðu Fólki McCann. Við útlitshönnunina voru hefðir varð-
andi litanotkun, leturgerð og myndmál bjórumbúða látnar víkja
fyrir nútímalegu og léttu útliti sem er í fullu samræmi við Lager-
bjórinn. Um er að ræða hefðbundinn lagerbjór hliðstæðan þeim
sem framleiddur er í Skandinavíu og á Bretlandseyjum. Lager,
sem er 4,5% að styrkleika, er millisterkur bjór sem hefur mildan
biturleika og örlítið sætt bragð. Í hann er notaður maís sem
gerir hann minna saðsaman og „léttari“ en annan bjór. Lager
hentar vel með öllum grillmat og er hressandi einn og sér. Hinn
nýi Lager er bruggaður í brugghúsi Viking á Akureyri.
Verð í Vínbúðum 156 kr.
Nýr Lager frá Víking:
Nýr ódýr Lager
Nýtt í Vínbúðum
Sigurjón Ívarsson matreiðslumaður
segir að leynivopnið í hans eldhús-
inu sé gott skurðarbretti, að
ógleymdum vel brýndum hnífum.
„Bitlausir hnífar eru gagnslausir og
beinlínis hættulegir,“ segir hann.
„Þar fyrir utan á ég mér annars
konar leynivopn sem er gott skap,
jákvæðni og ástríða. Að elda mat
ástríðulaust endar með ósköpum.“
Sigurjón segist leggja sig fram
um að halda uppi góðum anda á sín-
um vinnustað sem er Júmbósam-
lokur. „Svo eru fleiri þættir sem
mér finnst mikilvægir í eldhúsinu,
eins og ferskt og gott hráefni. Það
er eitt af lykilatriðunum. Og góð
eldavél.“
Sigurjóni finnst skemmtilegast
að elda íslenskt lamb, hvort sem er
á gamaldags, hefðbundinn hátt eða
nýstárlegan. „Ég fæ kikk út úr því
að elda lambið með spennandi
kryddjurtum og fer ekki ofan af því
að íslenskt lambakjöt er eitt besta
hráefni í heimi.“ ■
Leynivopnið í eldhúsinu:
Vel beittir hnífar
og skurðarbretti
Sigurjón telur að góður hnífur og gott skurð-
arbretti sé það sem hann getur síst verið án
í eldhúsinu.
Spænskir matar- og víndagar
standa yfir á veitingastaðnum
Siggi Hall á Óðinsvéum þar sem
boðið er upp á spænskan matseðil
ásamt spænskum vínum frá
Rioja. Á matseðlinum er meðal
annars að finna saltfiskbollur og
pönnusteiktan saltfisk en Spán-
verjar hafa löngum verið þekktir
fyrir dálæti sitt á saltfiski.
Dagarnir eru haldnir í tilefni
heimsóknar Maríu Martinez til
landsins, en er hún ein þekktasta
víngerðarkona heims og hefur í
þrjá áratugi stýrt vínhúsinu
Bodegas Montecillo í Rioja sem er
helsta víngerðarsvæði Spánar.
Montecillo-vín verða í boði
með matseðlinum auk þess sem
matargestum er boðið upp á
Osborne-sérrí við komu og með
eftirrétti kvöldsins.
María smakkaði sjálf réttina á
matseðlinum á dögunum og var
einkar ánægð með þá.
„Veitingastaðirnir hér í Reykjavík
eru ótrúlega góðir,“ segir hún og
bætir við að hráefnið sé líka fyrs-
ta flokks. María hefur þekkt Sigga
Hall í árafjöld, eða síðan hann
sótti hana heim í vínhúsið. Sjálf er
María í annarri heimsókn sinni
hér á landi. ■
Spænskir dagar á Hótel Óðinsvéum:
Saltfiskur og suðræn
stemning hjá Sigga Hall
María Martinez, ein þekktasta víngerðarkona heims.
Vinningssamlokan verður seld á veitinga-
stöðum Delifrance sem eru um allan heim.
Delifrance:
Samlokukeppni
Girnileg og gómsæt samloka er
sívinsæll réttur. Franska fyrir-
tækið Delifrance stendur fyrir
keppni í samlokugerð á sunnu-
daginn og munu átta manns taka
þátt í keppninni. Skilyrði er að
hægt sé að útbúa samlokuna á
skömmum tíma og hráefnið þarf
að vera að hægt að nálgast hvar
sem er í heiminum. Samlokan má
heldur ekki kosta of mikið. Vinn-
ingssamlokan verður kynnt sem
samloka ársins og mun fást á
hinum fjölmörgu kaffihúsum
Delifrance um allan heim.
Þetta er í fjórða sinn sem
Delifrance stendur fyrir sam-
lokukeppni. Sú fimmta verður í
Lyon í Frakklandi í janúar á
næsta ári. Fjórtán þjóðir taka þátt
í keppninni og nú gefst Íslending-
um í fyrsta skipti kostur á að
senda fulltrúa
Keppnin á sunnudag fer fram í
aðalsal Hótels Nordica og hafa
keppendur 30 mínútur til að útbúa
samlokuna sína og kynna hana
dómnefnd. Húsið opnar klukkan
13 og allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir. ■
Rófur
Rófur eru ódýrt og gott meðlæti sem
fer vel með ýmsum íslenskum mat, t.d.
lambakjöti, saltkjöti og sviðum. Þær
voru einnig vinsælt meðlæti í Evrópu
lengi vel, ekki síst Frakklandi. Þar voru
þær einnig mikið notaðar í pottrétti og
súpur. Hin síðari ár hafa þær hins vegar
átt undir högg að sækja. Rófur eru
kaloríusnauðar en vítamínríkar.
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
Hin hliðin á bílum
Stærsti bílamarkaður landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is