Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S E G J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R 550 5000
Þekktir
gæðingar
Filippus II kóngur í Makedóníusem var uppi fyrir meira en 23
öldum var mikill hestamaður, eins
og nafnið bendir til. (Fil-hippos –
elskur að hestum). Dag einn kom
Þessalíumaðurinn Fílóníkus til
hirðarinnar með ótaminn fola og
vildi selja hann. Filippusi leist vel
á gripinn. En þá kom í ljós að fol-
inn var svo villtur að enginn
treysti sér til að fara á bak honum.
Alexander litli (12 ára gamall son-
ur Filippusar sem nú er þekktur
sem Alexander mikli) sá að hestur-
inn var hræddur við sinn eigin
skugga svo að hann sneri honum í
sólarátt. Síðan steig Alexander á
bak og tók að temja hestinn sem
átti eftir að bera hann á sigurför
um veröldina í tvo áratugi.
BUCEPHALUS var nafnið á
þessum gæðingi, sem lést af sárum
sem hann hlaut í síðustu orustu Al-
exanders árið 326 f. Kr. Alexander
syrgði vin sinn ákaflega og tók
hann í guðatölu og skipaði þegnum
sínum að tilbiðja hann. Þar að auki
stofnaði Alexander borgina
Bucephala í hans minningu; en sú
borg halda menn að heiti Jhelum
nú um stundir og sé í Pakistan.
INCATATUS var frægur veð-
hlaupahestur í Rómaborg og eig-
andi hans var enginn annar en
landsfaðirinn og keisarinn Gaius
Caesar Augustus Germanicus -
betur þekktur undir gælunafninu
Caligúla (Litli skór). Caligúla hafði
mikið dálæti á þessum eftirlætis
gæðingi sínum og innréttaði hest-
hús hans með marmara og réð sér-
stakt starfslið til að þjóna honum. Í
ofanálag vígði Caligúla vin sinn til
prests og fyrirskipaði að hann tæki
sæti á Öldungaþingi Rómverja.
Þrátt fyrir þetta fannst keisaran-
um ekki að hann hefði gert nógu
vel við þennan mállausa vin sinn
og tilkynnti því að hann hefði í
huga að skipa hann í konsúlsemb-
ætti við fyrstu hentugleika. Því
miður entist Caligúlu ekki aldur til
að standa við þá fyrirætlun því að
hann var myrtur og þess vegna
varð Incatatus aldrei ræðismaður
þrátt fyrir mikla hæfileika sína.
ÞESSI dæmi sanna svo að ekki
verður um villst að mikil og góð
fordæmi eru fyrir því að voldugir
landsfeður skipi gæðinga sína í há
embætti. ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR