Fréttablaðið - 30.09.2004, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 30. september 2004 39
Kringlunni www.sonycenter.is Sími 588 7669
Nú fylgja borð með 32”
tækjunum okkar, vaxtalaust!
*Miðað við 12 jafnar vaxtalausar greiðslur á Visa eða Mastercard
skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist
með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
Athugið að borðin fylgja einungis KV-32CS70, KV-32CS76, KV-32FQ86, KV-32XL90
Vinningshafi í Walkman SMS leiknum okkar var Hjalti Helgason.
KV-32XL90
PICTURE POWER
Advanced 100Hz Digital Motion
Stafræn myndleiðrétting (DNR)
Innbyggður Memorystick lesari
Forritanleg fjarstýring fylgir
Verð 215.940 krónur
eða 17.995 krónur á mánuði*
KV-32CS76
100 Hz Digital Plus
Digital Comb filter
Stafræn myndleiðrétting (DNR)
Mynd í mynd
Forritanleg fjarstýring fylgir
Verð143.940 krónur
eða 11.995 krónur á mánuði*
KV-32CS70
32" FD Trinitron myndlampi
100 Hz
Virtual Dolby Surround BBE
Fjarstýring
Verð 119.940 krónur
eða 9.995 krónur á mánuði*
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Kobe Bryantsagði til fyrrver-
andi félaga síns,
Shaquille O’Neal,
þegar lögregla yfir-
heyrði hann á síð-
asta ári. Bryant var
ákærður fyrir
nauðgun en ákæran var óvænt felld
niður fyrir skömmu. Eftir að yfir-
heyrslum lauk, gaf Bryant sig á tal við
rannsóknarfulltrúa lögreglunnar. Þar
á meðal var Doug Winters sem full-
yrðir að Kobe hafi kjaftað frá O’Neal,
þáverandi félaga sínum hjá Lakers.
„Bryant sagði einn samherja sína
hafa ítrekað lent í sömu stöðu en
ávallt borgað konunum til að þegja.
Hann nefndi svo Shaq á nafn og
sagði hann hafa borgað konum allt
að milljón dollara,“ sagði Winters.
Þessi ummæli erugjörsamlega út
í hött,“ sagði Perry
Rogers, umboðs-
maður O’Neal.
„Þetta er aumkunar-
verð tilraun mann-
eskju, sem er full ör-
væntingar, til að bægja sviðsljósinu
af sér. Þetta er ekki einu sinni svara
virði,“ sagði umboðsmaðurinn. Þess
má geta að Shaquille O’Neal gifti sig
fyrir tveimur árum og hefur aldrei
komist í kast við lögin vegna kynferð-
isafbrota.
M i ð v ö r ð u r i n nGilberto Silva
meiddist á baki í
leik á dögunum og
leikur ekki með
Arsenal næsta mán-
uðinn. Arsene
Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, sagði líklegt að
gömul meiðsli hefðu tekið sig upp
að nýju. „Þetta eru undarleg meiðsli
sem ungir leikmenn upplifa því
miður alltof oft,“ sagði Wenger.
Arsenal leikur gegn Panathinaikos í
Meistaradeild Evrópu 20. október
næstkomandi. Gilberto missir að
öllum líkindum af leiknum.
Mauricio Tar-icco, varnar-
maður Tottenham,
var dæmdur í
þriggja leikja bann
fyrir gróft brot í leik
gegn Chelsea. Leik-
urinn var í apríl í síð-
asta tímabili en
Taricco tekur bannið út í næstu
þremur leikjum liðsins. Taricco braut
harkalega á Damian Duff, leikmanni
Chelsea, og var vikið af velli. Hann
tekur út bannið í leikjum Tottenham
við Everton, Portsmouth og Bolton.
Mark Hughes,knattspyrnu-
stjóri Blackburn,
sannfærði Yori
Djorkaeff um að
leika með liðinu í
vetur. „Hann er frá-
bær leikmaður og
hentar okkur mjög
vel,“ sagði Hughes. Djorkaeff, sem
æfði með Fulham fyrr í vikunni, var
ánægður með að samkomulag hefði
nást við Blackburn. „Ég hef saknað
fótboltans á Englandi og hlakka til að
komast í gang aftur. Ég er fullviss um
að ég geti styrkt liðið,“ sagið Djorka-
eff.
Valur og Grass-hoppers frá
Sviss mætast í 2.
umferð EHF-keppn-
innar í handknatt-
leik. Valsmenn
ákváðu að selja
heimaleikinn og verða því báðar
viðureignirnar í Sviss aðra helgi. Fyrri
leikurinn fer fram föstudaginn 8.
október og er seinni leikurinn daginn
eftir. Fyrirfram eru Valsmenn sigur-
stranglegri en Grasshoppers, sem
eru í 2. deild í Sviss, munu vafalaust
bíta frá sér í leikjunum tveimur.
E iður Smáriþyrstir í betri
árangur með
Chelsea. Þetta
segir hann í ítar-
legu viðtali á
heimasíðu félags-
ins. „Það er fúlt að
vera alltaf einu
skrefi frá titli en ná ekki alla leið. Það
hefur oft vantað herslumuninn,“
sagði Eiður Smári. Pilturinn sagðist
vilja bæta árangurinn frá fyrri árum.
„Það gildir einu hvort það sé enska
deildin eða Meistaradeildin. Ef ég
fengi að velja, ynnum við báðar
keppnirnar.“ Chelsea fær Liverpool í
heimsókn á sunnudaginn.
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH í fót-
bolta mæta þýska liðinu Alemania
Aachen, ytra, í dag í 1. umferð
Evrópukeppni félagsliða. Þetta er
seinni leikur liðanna en í þeim
fyrri fengu FH-ingar slæman
skell, töpuðu 1-5 á Laugardalsv-
vellinum og möguleikar þeirra á
því að komast áfram því afar tak-
markaðir, svo ekki sé meira sagt.
Fréttablaðið heyrði hljóðið í
fyrirliða Íslandsmeistaranna,
Heimi Guðjónssyni.
„Við höfum það gott hérna úti,
það er tuttugu stiga hiti og allar
aðstæður hinar bestu,“ segir
Heimir og segir aðspurður að
stemningin í hópnum sé góð.
„Þetta er nánast örugglega síðasti
leikurinn okkar á þessu keppnis-
tímabili. Vissulega má maður
aldrei afskrifa neitt í boltanum en
það verður að segjast eins og er
að möguleikarnir á að komast
áfram eru afar litlir.“ Heimir
segir stöðu mála þó ekki koma í
veg fyrir að hans menn mæta til
leiks af fullum krafti „enda
viljum við enda þetta tímabil á
eins jákvæðum nótum og mögu-
legt er.“
Hann segir leikskipulagið
koma til með að breytast frá því
í fyrri leiknum. „Við komum til
með að vera varnarsinnaðri,
sjáum hvað setur og það væri ekki
verra ef þeir kæmu verulega góð-
ir með sig til leiks. Stefnan er að
halda hreinu og sjá hvaða mögu-
leikar koma upp,“ segir Heimir
sem er ekki búinn að gera upp við
sig hvort hann ætli að leggja
skóna á hilluna eður ei.
„Ég er ekki búinn að ákveða
mig, nú kemur smá frí eftir langt,
strangt og gott tímabil og manni
veitir ekkert af því. Síðan tek ég
ákvörðun í framhaldinu,“ sagði
Heimir Guðjónsson og vonandi
fyrir FH-inga og íslenska boltann
munum við sjá hann innanvallar á
næsta sumri - það er nóg eftir í
kallinum. ■
AÐ SPILA SÍÐASTA LEIKINN? Heimir
Guðjónsson er ekki búinn að ákveða það
hvort hann spili með FH-liðinu á næsta ári
en síðasti leikur liðsins árið 2004 er í kvöld.
FH mætir Alemania Aachen í Þýskalandi í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu:
Stefna á að halda markinu hreinu