Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 12
12 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR
Áfengisumbúðir:
Heineken varar
við ofdrykkju
NEYTENDAMÁL Viðvörunarmiðar,
sem vara við áhrifum of mikillar
drykkju áfengis, verða innan árs
komnir á allar umbúðir Heineken,
að því fram kemur á fréttavef BBC.
Að sögn Eggerts Ísdal munu þessar
viðvaranir einnig birtast íslenskum
neytendum: „Þeir ætla að reyna að
mæla með hóflegri drykkju og vísa
á vefsíðu sína um hóflega drykkju,“
segir Eggert. Hér á landi verða um-
búðirnar orðnar merktar um mitt
næsta ár en ekki er búið að ákveða
hvernig miðarnir munu líta út.
Ekki er mikið um viðvörunar-
miða á áfengi hér á landi. Helst er
að finna viðvaranir á flöskum frá
Bandaríkjunum þar sem segir að
áfengi og akstur fari ekki saman og
einnig tilmæli til ófrískra kvenna.
Fréttavefur BBC segir þessa
stefnu Heineken koma til þar sem
matar- og drykkjarframleiðendur
vilja forðast hinar háu skaðabóta-
kröfur sem tókbaksframleiðendur
hafa þurft að greiða. „Þó að neyt-
endur séu ábyrgir fyrir drykkju-
hegðun sinni, leggjum við áherslu á
að minna þá á og upplýsa neytendur
um ábyrga drykkju og hættu á of-
notkun áfengis,“ sagði stjórnarfor-
maður Heineken, Thony Ruys, í
samtali við BBC. ■
ÍBÚÐALÁN Hin nýju 100 prósenta
íbúðalán bankanna eru verðtr-
yggð á Íslandi en ekki í nágranna-
löndunum. Þar þekkist ekki verð-
trygging í sama mæli og á Íslandi
að sögn Tryggva Þórs Herberts-
sonar, forstöðumanns Hagfræði-
stofnunar Háskóla Íslands.
„Verðtryggingin er reyndar
ekki slæm,“ segir Tryggvi Þór.
„Þegar það ríkir stöðugleiki í
þjóðfélaginu hefur það sýnt sig að
verðtryggð lán bera lægri vexti
en óverðtryggð lán. Ástæðan
fyrir því er að það er alltaf eitt-
hvert óvissuálag. Bankinn þarf að
hafa vaðið fyrir neðan sig ef það
kemur snöggt verðbólguskot til
þess að raunvextirnir fari ekki
niður úr öllu valdi. Ég held að það
sé alveg óhætt að segja það að
þegar það ríkir stöðugleiki í efna-
hagslífinu eins og núna þá græði
lántakendur á
því að vera
með verð-
tryggingu.“
Tryggvi Þór
segir að ef
v e r ð b ó l g a n
fari af stað og
rjúki til dæmis
upp í fimmtán
prósent og svo
niður og aftur
upp þá gæti
borgað sig að
vera með óverðtryggt lán því þá
geta bankarnir ekki séð verbólgu-
skellina fyrir.
„Þetta var ástand sem var oft
hérna áður fyrr. Hagstjórnin á Ís-
landi er hins vegar orðin svo full-
komin að þetta á ekki að koma
fyrir þó það geti alltaf gerst eitt-
hvert slys.“
Tryggvi Þór segir hins vegar
að fólk verði að fara varlega áður
en það taki 100 prósenta íbúðalán.
„Ef fasteignaverð fer að lækka
út af einhverjum ástæðum og
hagvaxtarhorfur versna getur
fólk setið eftir með lán sem er
mun hærra en virði íbúðarinnar.
Segjum sem svo að fasteignaverð
lækki um 20 prósent, til dæmis í
nýju hverfunum, þar sem fast-
eignaverðið er á miklu meiri ferð
en þar sem er fullbyggt, þá festist
fólk bara inni með 120 prósenta
lán. Þannig að þessi lán eru var-
hugaverð að því leytinu til að fólk
þarf nákvæmlega að vita hvað
það er að gera. Það getur ekki
gert ráð fyrir að fasteignaverð
haldi áfram að hækka í framtíð-
inni eins og það hefur verið að
gera.“
trausti@frettabladid.is
Hæstiréttur:
Skilorð fyrir
hnefahögg
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
átta mánaða skilorðsbundinn
fangelsisdóm Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir manni á þrítugs-
aldri. Maðurinn var dæmdur fyrir
að slá annan mann hnefahöggi í
andlitið.
Sá sem var sleginn skarst á
augabrún, bólgnaði á vörum og
þrjár postulínskrónur í gómi brotn-
uðu. Framburður þolandans og
þriggja vitna varð til þess að of-
beldismaðurinn komst ekki undan
refsingu. Áður hafði maðurinn
verið dæmdur til sjö mánaða refs-
ingar og bættist ofbeldisdómurinn
við hinn fyrri. - hrs
Verðtryggingin
er ekki slæm
Ólíkt því sem þekkist í nágrannalöndunum eru íbúðalán á Íslandi verð-
tryggð. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir að við núverandi
aðstæður græði lántakendur á því.
Í KJÖTBORÐINU
Innflutningur nautakjöts hefur nálægt því
fjórfaldast milli ára, að því er fram kemur
hjá Landssambandi kúabænda.
Nautakjöt:
Aukinn inn-
flutningur
LANDBÚNAÐUR Nautakjöt er flutt
inn til landsins í mun meiri mæli
en í fyrra, segir Landssamband
kúabænda eftir að hafa kannað
gögn frá Hagstofu Íslands.
Frá því í janúar og út septem-
ber hafa verið flutt til landsins 45
tonn af nautakjöti, en á sama tíma
í fyrra voru flutt inn 12 tonn.
„Langmest hefur verið flutt inn af
frystum lundum, eða 22 tonn og er
áætlað söluverðmæti um 60 til 70
milljónir króna,“ segir á vef
Landssambandsins. Þar kemur
jafnframt fram að ellefu fyrir-
tæki hafi fengið heimild til að
flytja samtals inn 95 tonn af
nautakjöti án tolla á tólf mánaða
tímabili sem hófst í júlí í sumar.
- óká
Fílabeinsströndin:
Norðmenn og
Danir flýja
NOREGUR, AP Norsk og dönsk
stjórnvöld hafa boðist til að hjálpa
ríkisborgurum landanna sem eru
á Fílabeinsströndinni að fara frá
landinu.
Ástandið á Fílabeinsströndinni
er mjög ótryggt um þessar mund-
ir vegna átaka milli uppreisnar-
manna og stjórnarhersins.
Franski herinn blandaðist síðan í
átökin í síðustu viku. Alla hafa 36
af 56 Norðmönnum sem eru í
landinu tekið tilboði norskra
stjórnvalda og fjórir af tíu Dön-
um. Fólkið verður flutt frá land-
inu ásamt breskum þegnum um
helgina. ■
Líkamsárás í Öxnadal:
Málið sent
saksóknara
LÖGREGLA Lögreglurannsókn á lík-
amsárás í Öxnadal aðfaranótt
fimmta ágúst er lokið og verður
málið sent ríkissaksóknara eftir
helgi. Sá grunaði er talinn hafa
barið annan mann með hafna-
boltakylfu í höfuðið þannig að
hann slasaðist alvarlega.
Árásarmaðurinn er á þrítugs-
aldri og sat í nokkurra daga
gæsluvarðhaldi eftir að mis-
vísandi upplýsingar vitna að at-
burðunum leiddu til rannsóknar
lögreglunnar á Akureyri. Sá sem
varð fyrir árásinni slasaðist al-
varlega og var fluttur á gjör-
gæsludeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri með höfuðkúpu-,
nef- og kinnbeinsbrot og blæðing-
ar inn á heila. Sá grunaði og sá
slasaði voru í bíl í Öxnadal ásamt
tveimur öðrum. Samferðarmenn
þess slasaða sögðu í fyrstu að
hann hefði fallið á veginn þegar
hann fór út úr bílnum eftir
rifrildi. Við nánari athugun kom í
ljós að sjö vitni urðu að atburðin-
um, sem ekki er talinn hafa verið
óhapp. ■
Smábátasjómenn á Norðfirði:
Óánægja með
dragnótina
FISKVEIÐAR Bæjarstjórn Fjarða-
byggðar hefur samþykkt að fara
þess á leit við sjávarútvegsráðu-
neytið að veiðar dragnótabáta yfir
15 metra stærð verði bannaðar í
Norðfjarðarflóa, Norðfirði, Hell-
isfirði, Viðfirði, Sandvík, Vöðla-
vík, Reyðarfirði og Eskifirði.
Á Norðfirði er mikil óánægja
meðal smábátasjómanna vegna
veiða dragnótabáta alveg upp í
landsteina og þá sérstaklega
vegna komu stærri báta annars
staðar að. Eigendur smærri báta
telja stórlega að sér vegið og köll-
uðu því eftir aðgerðum bæjar-
stjórnar Fjarðabyggðar.
Í greinargerð með ályktun
bæjarstjórnarinnar kemur fram
að til þessa hafi verið tiltölulega
góð sátt um dragnótaveiðar á
Austfjörðum sem stundaðar hafi
verið af frekar litlum bátum. „Nú
í haust hefur ástandið breyst og
stórir bátar hafa verið að veiðum
hér í fjörðum og af því hefur
skapast mikil óánægja,“ segir þar.
Einn afkastamesti báturinn sem
veiðarnar stundar um þessar
mundir er Bjarmi SU, 222 tonn,
skráður á Eskifirði en útgerðin á
Breiðdalsvík. Eigandi er Tálkni
hf. á Tálknafirði. Yfirleitt fer
allur afli dragnótaveiðanna til
útflutnings.
- eg/óká
GLÍMT VIÐ TARF
Útlitið var ekki gott fyrir Lee Laskosky á
tímabili þegar hann glímdi við tarf í úrslita-
keppni kúrekasýningar í Edmonton í
Kanada. Hann hafði tarfinn þó undir áður
en yfir lauk.
EGGERT ÍSDAL
Á flöskum og dósum Heineken munu birt-
ast viðvaranir gegn of mikilli drykkju.
BJARMI Í HÖFN Í NESKAUPSTAÐ Á NORÐFIRÐI
Smábátasjómenn á Norðfirði kölluðu eftir aðgerðum bæjarstjórnar Fjarðabyggðar vegna
dragnótaveiða stórra utanaðkomandi báta inn um alla firði bæjarfélagsins.
NÝTT HVERFI VIÐ ELLIÐAVATN
Fasteignaverð í nýjum hverfum breytist örar en í fullbyggðum hverfum.
TRYGGVI ÞÓR
Fólk verður að fara var-
lega ef það ætlar að
taka 100 prósenta lán.
Ríkislögreglustjóri:
Krefst
refsingar
DÓMSMÁL Aðalmeðferð var í máli
gegn Jóni Ragnarssyni, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra og
stjórnarformanni Lykilhótela, í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Jón var ákærður af ríkislögreglu-
stjóra fyrir umboðssvik um 37
milljón króna lán í nafni Lykil-
hótela.
Var þess krafist í gær að Jón
yrði dæmdur til refsingar. Erfitt
er að segja hversu mikið Jón
hagnaðist með brotunum, sem
voru framin þegar rekstur fyrir-
tækisins stóð völtum fótum. Hluti
af milljónunum 37 hefur verið
endurgreiddur.
- hrs
Umferðarslys:
Þrír létust
TYRKLAND, AP Þrír létust og 20 slös-
uðust þegar rúta með 36 ólöglega
innflytjendur innanborðs fór út af
brú og steyptist niður í á í norð-
vesturhluta Tyrklands. Sjö farþeg-
ar sem sluppu ómeiddir úr slysinu
flýðu af vettvangi áður en lögregla
kom en þeir slösuðu og sex til við-
bótar sem ekki slösuðust voru
handteknir þegar lögregla kom á
vettvang.
Mikið er um að fólk reyni að
komast í gegnum Tyrkland til Vest-
ur-Evrópu frá Asíu og gerist það
nær daglega að ólöglegir innflytj-
endur séu stöðvaðir í Tyrklandi. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
LM
A