Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 68
56 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR
Glæsilegir ítalskir leðurhornsófar
Sprengitilboð 70.000,- kr. afsláttur
Model IS 26.
Hornsófi
2 sæti+horn+2 sæti
Verð áður 239.000,- stgr.
Sprengitilboð
aðeins 169.000,-
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-17
gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf.,
sími 565-1234
Í tilefni af 25 ára afmæli plötunn-
ar The Wall með Pink Floyd mun
hljómsveitin Dúndurfréttir flytja
verkið í heild á tvennum tónleik-
um í Austurbæ. Verða þeir fyrri
haldnir mánudaginn 15. nóvem-
ber klukkan 20.00 og hinir síðari
klukkan 22.30 sama kvöld.
Dúndurfréttir hafa á síðustu
tíu árum troðið af og til upp á
Gauk á Stöng og flutt þar m.a.
lög og verk hljómsveitanna Pink
Floyd og Led Zeppelin. Er það
samdóma álit margra að sjaldan
eða aldrei hafi þessi lög snillinga
rokksins verið tekin jafn fag-
mannlega og vel.
Fyrir þremur árum fluttu þeir
Dúndurfréttamenn The Wall
þrisvar sinnum í í Borgarleik-
húsinu fyrir troðfullu húsi. Nú
verður leikurinn endurtekinn og
engu verður til sparað til að gera
þessa hljómleika sem glæsileg-
asta. Til dæmis verður boðið upp
á fullkomið hljóðkerfi og ljósa-
sýningu.
Platan The Wall var gefin út
árið 1979. Allar götur síðan hefur
hún verið talið eitt af meistara-
stykkjum rokksögunnar. Roger
Waters, forsprakki Pink Floyd,
samdi öll lögin og var hugsjóna-
maðurinn á bak við verkið. Hefur
The Wall til dæmis verið nefnd
sem ein besta „concept“-plata
allra tíma, en öll lögin á henni
tengjast innbyrðis. Náði hún
strax miklum vinsældum víða um
heim og komst í efsta sætið í
mörgum löndum. Eitt af
frægustu lögum plöt-
unnar er Another
Brick in the Wall
(Part 2) sem hreif
fjöldann allan af unglingum með
sér, sérstaklega vegna textabrota
á borð „We don’t need no edu-
cation“ og „Teacher, leave the
kids alone“, þar sem breskt
skólakerfi var gagnrýnt harð-
lega. Þremur árum eftir útgáfu
plötunnar var síðan frumsýnd
kvikmyndin The Wall sem var
leikstýrð af Alan Parker. Hand-
ritshöfundur var Roger Waters.
The Wall fjallar um mann að
nafni Pink Floyd sem elst upp í
stríðshrjáðu Englandi. Eftir að
hafa misst föður sinn og verið of-
verndaður af móður sinni byggir
Floyd upp andlegan vegg á milli
sín og umheimsins svo hann geti
lifað í heimi sem er laus við öll
vandamál. Allir þeir erfiðleikar
sem koma upp í lífi hans verða
því aðeins enn einn múrsteinninn
í sífellt hækkandi vegg hans.
freyr@frettabladid.is
Veggurinn rís á ný
Í tilefni af 25 ára afmæli plötunnar The Wall með Pink Floyd mun hljómsveitin
Dúndurfréttir flytja verkið á tvennum tónleikum í Austurbæ.
LAGALISTI THE WALL
Plata 1:
In The Flesh?
The Thin Ice
Another Brick In The Wall - Part 1
The Happiest Days Of Our Lives
Another Brick In The Wall - Part 2
Mother
Goodbye Blue Sky
Empty Spaces
What Shall We Do Now?
Young Lust
One Of My Turns
Don't Leave Me Now
Another Brick In The Wall - Part 3
The Last Few Bricks
Goodbye Cruel World
Plata 2:
Hey You
Is There Anybody Out There?
Nobody Home
Vera
Bring The Boys Back Home
Comfortably Numb
The Show Must Go On
In The Flesh
Run Like Hell
Waiting For The Worms
Stop
The Trial
Outside The Wall
DÚNDURFRÉTTIR Hljómsveitin Dúndurfréttir er skipuð þeim Matthíasi Matthíassyni, Pétri Erni Guðmundssyni, Ólafi Hólm, Einari Þór Jóhannssyni, Ingimundi Óskarssyni og Haraldi
Sveinbjörnssyni.
THE WALL Kvikmyndin The
Wall kom út árið 1982 og náði
strax miklum vinsældum.
Jónatan Garðarsson, umsjónarmaður þátt-
arins Mósaík, hefur alla tíð verið mikill
Pink Floyd-aðdáandi. Hann segist hafa
hlustað mikið á The Wall á sínum yngri
árum.
„Þetta var mikil uppáhaldsplata. Mér
fannst gaman að heyra í þessum gömlu
kempum koma svona kröftugum til baka,“
segir Jónatan. „Mér fannst hafa dofnað dá-
lítið yfir þeim eftir að þeir gáfu út The
Dark Side of the Moon þó að mér hafi alltaf
fundist Wish You Were Here skemmtileg
plata. Það er mikil meining í The Wall, mik-
ill áróður gegn bresku menntakerfi og
ástandinu sem var í Bretlandi á þessum
tíma. Þetta var á tímabilinu þegar
Thatcherisminn er að knýja á og mikil póli-
tík í tónlist í Bretlandi, sérstaklega með
pönkinu og þeirri bylgju sem var þá komin
af stað,“ segir hann.
The Wall er fræg „concept“-plata þar
sem öll lögin tengjast innbyrðis. Jónatan er
sammála því að hún sé ein besta plata sinn-
ar tegundar sem hefur verið gefin út. „Það
hafa verið nokkrar plötur taldar mjög ofar-
lega. Sgt. Peppers með Bítlunum hrindir
þessu „concept“-æði af stað á sínum tíma.
Síðan kom Tommy með The Who sem var
annars eðlis, hálfgerð ópera. Á þessum tíma
eru margir framsæknir rokkarar að gera
„concept“-plötur sem höfðu margar farið
fyrir ofan garð og neðan. En þessi plata ríg-
heldur alveg. Það sem skiptir kannski máli
er sándheimurinn sem þeir bjuggu til. Þeir
hafa alltaf verið miklir sándpælarar og
náðu því mjög vel á þessari plötu.“ ■
Plata sem rígheldur