Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 50
38 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR Ríkasta guðshús landsins Strandarkirkja í Selvogi stendur látlaus á fáfarinni eyðiströnd; ljós í myrkrinu fyrir sjófarendur rétt utan við hvassar öldur og urrandi brim. Samfélagið í kring telur örfá sóknarbörn, en margir vilja eiga hlut í paradísinni. Kirkjan er enn ríkasta kirkja landsins af hreinum fjármun- um enda berast henni milljónir króna í áheitum og gjöfum á ári hverju. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir hitti kirkjunnar menn og sálir í Selvogi. V ið hvítfyssandi öldugangog ógnandi brim stendurhún tignarleg við skerjótta suðurströnd Íslands; leiðarljós þeirra sem um sjávarslóð fara. Vitni um lífsháska íslenskra sjó- manna á leið heim frá Noregs- ströndum með við til húsagerðar um borð. Við landsteina Íslands lenda þeir í hafvillu og vita ekki hvert skipið stefnir. Í örvæntingu heitir skipstjórinn að allur viður- inn fari til kirkjubyggingar á þeim stað sem hann næði landi heilu og höldnu. Að heitinu unnu birtist honum sýn í líki ljósengils framundan stefni skipsins og verður engillinn stefnumið skip- stjórans sem hann stýrir eftir þar til skipið kennir grunns í sandvík milli sjávarklappa, en þá hvarf engillinn og birti af degi. Sáu þá skipsmenn að þeir höfðu verið leiddir eftir bugðóttu lendingar- sundi milli boðaskerja á úthafs- brimsströnd, en þar skammt fyrir ofan var hin fyrsta Strandar- kirkja reist úr fórnarviðnum. Vinsæl til áheita Frá upphafi hefur Strandarkirkja verið vinsæl til áheita, en þá heit- ir fólk á kirkjuna ákveðinni peningaupphæð ef það fær áþreifanlegt svar við bænum sín- um. Mikill straumur fólks er í Strandarkirkju og hún alltaf opin um helgar á vorin og haustin, og alla daga yfir sumartímann. Messað er í kirkjunni um jól og páska, að hausti, um miðja vetr- artíð og á hálfsmánaðar fresti frá miðjum maí og út ágúst, eða um tíu messur á ári. Messugestir koma víða að en gjarnan fólk úr Selvogi og afkomendur þess. Sóknarbörnum í Selvogi hefur farið fjölgandi hin síðari ár og nú er búið á fjórum bæjum í Strand- arsókn: Götu, Vogsósum 1 og 2 og Þorkelsgerði. Afar skemmtilegt samfélag hefur myndast í kringum Strand- arkirkju og er þar starfræktur pulsuvagn og kaffihúsið T-bær á sumrin, og listagallerí að Þorkels- gerði allan ársins hring. Frá árinu 1996 og til ársins 1998 stóðu yfir miklar endurbæt- ur á Strandarkirkju og umhverfi hennar, en 1986 var land kirkj- unnar girt af og hafin ræktun og gróðursetning trjáa og blóma. Er óhætt að nefna nafn Kristófers Bjarnasonar, fyrrverandi kirkju- varðar í Strandarkirkju, sem mannsins á bak við verkin, en kirkjan ber ævistarfi hans fagurt vitni, auk þess sem Kristófer hlóð stein- og sjóvarnargarða í landi kirkjunnar. Innbrot í Strandarkirkju hafa átt sér stað af og til, en munir alltaf fundist að lokum. Munir í Strandarkirkju eru margir frá því um 1865. Sterkefnuð Strandarkirkja Strandarkirkja í Selvogi er rík- asta guðshús lýðveldisins. Kirkj- an stendur á eyðiströnd, er fræg fyrir áheit og enn í dag vinsæl til áheita þegar mannfólkið vill treysta á miskunnsemi himna- föðurins í skiptum fyrir peninga- upphæðir. Á árum áður lánaði Strandarkirkja öðrum kirkjum fjármuni úr Hinum almenna kirkjusjóði, en sjóðurinn var upp- haflega stofnaður í því augnamiði að kirkjurnar legðu í hann um- framfé og veittu síðan lán til kirkna sem áttu í þyngri skuld- bindingum. Ragnhildur Benediksdóttir, skrifstofustjóri á Biskupsstofu, segir Hinn almenna kirkjusjóð hafa verið stofnaðan á þeim tíma þegar bankar og sparisjóðir voru ekki starfræktir á jafn almennum grundvelli og í dag. Því láni Strandarkirkja engum lengur, heldur eigi sitt fé sem að mestu fer í rekstur kirkjunnar sem ný- lega gekk í gegnum miklar endur- bætur, auk þess að vera vinsæll ferðamannastaður sem krefst sí- aukinna fjármuna. „Það var fyrir tilstilli Dr. Sig- urbjörns Einarssonar að Hinn al- menni kirkjusjóður var stofnaður í gamla daga, en hann var aldrei merktur Strandarkirkju einni,“ segir Ragnhildur í ljósi þess að enn heyrast raddir þess efnis að Strandarkirkja sé lánastofnun. „Strandarkirkja átti sterkasta sjóðinn vegna áheita og veitti því flest lánin en nú er öll lánastarf- semi liðin tíð, enda Þjóðkirkjan ekki lánastofnun né banki, þótt hún sé styrktarstofnun á sumum sviðum.“ Ekki almannafé Síðast var lánað úr Hinum al- menna kirkjusjóði árið 1988 en eftir það var hann lagður niður sem lánasjóður. Fé Strandar- kirkju er þó enn geymt í Hinum almenna kirkjusjóði sem er ávaxtaður á hávaxtabankareikn- ingi, á hagstæðustu vöxtum á hverjum tíma. Áheit á árinu 2003 voru 3.468.483 krónur, en algeng- asta áheitið er fimm þúsund krón- ur. Í október síðastliðnum voru áheit á Strandarkirkju sextíu tals- ins. Áheit eru venjulega fleiri á sumrin en svo dregur úr þeim er líða tekur á veturinn. Áheit og gjafir til Strandar- kirkju árið 2003 voru 3,4 milljónir króna. Samtals á hún í Hinum al- menna kirkjusjóði 18,9 milljónir í hreinni eign. Auk áheita og gjafa hefur á Strandarkirkja jarðirnar Strönd, Hlíð, Stakkavík og Vogsósa. Aðeins Vogsósar eru í leigu, fyrir 125 þúsund krónur á ári. Hinar eru eyðijarðir. Strand- arkirkja á sömuleiðis Hlíðarvatn sem er leigt út til silungsveiði fyrir 423 þúsund krónur á ári. Deiliskipulag á döfinni Bundnar eignir Strandarkirkju; jarðir, sjóvarnargarður, bygging- ar og tæki, eru metnar á 45,7 milljónir. Eitt sumarhús á vegum Strandarkirkju er ofan við kirkj- una og þar dvelja kirkjuverðir yfir sumartímann. Ragnhildur segir aðrar sumarhúsabyggingar ekki leyfðar á jörðum Strandar- kirkju í dag. „Það þarf að gera deiliskipulag fyrir jarðirnar í framtíðinni, enda skylt að gera slíkt. Það liggur þó ekkert fyrir hvenær það verður gert og ég hef engin áform heyrt um að þarna eigi að koma sumar- húsabyggð. Á ekki von á því í ná- inni framtíð.“ Að sögn Ragnhildar eru fjár- munir Strandarkirkju ekki al- mannafé. „Kirkjan ein getur ráð- stafað peningunum og kirkjuráð hefur yfirumráð yfir öllu sem snert- ir kirkjuna, en áður var það dóms- og kirkjumálaráðuneytið. Kirkjuráð er skipað þriggja manna nefnd sem sér um rekstur kirkjunnar í sam- vinnu við sóknarnefnd Strandar- kirkju. Öll fjárumsýsla fer í bók- hald og ríkisendurskoðun.“ Þess má geta í lokin að Strandar- kirkja er skuldlaus með öllu, en á liðnum árum hefur stórfé verið tek- ið vegna endurbóta á kirkjunni sjálfri, þjónustuhúsi, sjóvarnar- garði, bílastæðum og kirkjugarði. ■ Í SELVOGI Það er gaman að koma í Selvog, jafnt sumar sem vetur, en frá vori og fram á haust er samfélagið kringum Strandarkirkju lifandi og skemmtilegt. Auk fjöruferðar eftir heilaga stund í kirkjunni geta gestir fengið sér kaffi og tertur í T-bæ, pulsu og list í pulsuvagninum og skoðað sérkennilega og fagra muni Sigurbjargar Eyjólfsdóttur í bragganum í Þorkelsgerði, en þar er opið á veturna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.