Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 67
„Ég anda, ég sef, ég míg...tónlist!“ -Bubbi Morthens
Til heljar og til baka
með atómbombunni
Bubba Morthens
TIL HAMINGJU!!!
VINSÆLASTA ÍSLENSKA HEIMILDAMYNDIN!
Þórunn: Ég er mjög hrifin af
svona hugsanalausu kroti og
mismunandi skrift. Ófullkom-
ið, hrátt og persónulegt. Ljóð
eða hugsanir sem málverk og
textinn gefur málverkinu
nýja vídd. Mér finnst gaman
að sjá listaverk þar sem texti
er líka notaður til tjáningar,
þetta er eiginlega grafísk
hönnun, þar sem textinn og
útlitið spila saman.
Gunnar: Já, það má kannski
dunda sér við að lesa þennan
texta. Liturinn er alls ekkert
ljótur og hugmyndin er góð en
verkið í heild sinni finnst mér
ekki fallegt. Frekar furðulegt
listaverk með þessum bekk
fyrir framan og svona. Já,
falleinkunn segi ég.
Sigrún: Mér finnst þetta vera
jarðbundin mynd, djúpir litir
og virkar dáldið hrjúf. Ljósi
og bleiki liturinn sem kemur
inn á myndflötinn skapar
mildar andstæður, minnir mig
á haustlauf í skógi. Textinn og
nafnið neðst á myndinni vek-
ur skemmtilegar spurningar.
Gæti vel hugsað mér þessa í
stofuna.
Hafdís: Þessi finnst mér
minnst spennandi. Þetta eru
þó fallegir litir og það brýtur
upp einfaldleikann að hafa
þessar pensilstrokur þarna
hægra megin og þessa einu
fyrir miðju vinstra megin en
ég er ekki viss um að það geri
eitthvað fyrir myndina. Það
virðist líka eitthvað vera límt
á myndina, ef það á að vera
þarna þá finnst mér það
skemma fyrir. Nafnið á verk-
inu er líka afgerandi og ég fer
ósjálfrátt að leita að holunum
sem verið er að fylla upp í.
Það finnst mér skemma fyrir.
Ég myndi ekki vilja þessa upp
á vegg.
Einar: Ég fíla þessa. Ég veit
ekki hvort þetta er eitthvað
sem ég myndi hafa heima hjá
mér en ég væri til í að hafa
hana á skrifstofunni þar sem
maður þarf eitthvað lifandi og
hvetjandi. Mér finnst full
mikið að gerast í henni en
samt er eitthvað smart við
hana.
gráu víðáttu í kringum mig. Hlý
form og litir höfða til mín, mjóar
línur áÝmilli trufla mýktina.
Þessa vil ég hafa fyrir ofan sjón-
varpið til að gleyma mér í.
Hafdís: Þessa gæti ég vel hugs-
að mér að eiga. Skemmtileg
mynd og fallegir litir. Mér finnst
eini gallinn við hana vera að hún
er aðeins of mikið eins og ljós-
mynd.
Einar: Það má nú engu muna að
þetta séu hringirnir úr merkinu
á fyrirtækinu mínu. Þetta er
áhugaverð pæling en alls ekki
eitthvað sem ég myndi fíla inni
hjá mér. Þetta er full djörf lita-
notkun fyrir minn smekk.
Steingrímur
Eyfjörð
Filling the holes
STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ 2004
Filling the holes Blönduð tækni
Hafin er samkeppni um bestu sög-
una frá Hróarskelduhátíðinni sem
er haldin árlega í Danmörku. Þar
koma fram margar af frægustu
hljómsveitum heims í fjögurra
daga tónlistarveislu.
Sigurvegari keppninar, sem
verður krýndur í desember, fær
að launum miða fyrir tvo á Hró-
arskeldu á næsta ári. Í gegnum
árin hafa fjölmargir Íslendingar
kíkt á hátíðina og vafalítið lent í
mörgum ævintýrum sem þeir
geta nú deilt með öðrum Íslend-
ingum. Að sögn skipuleggjandans,
Tómasar Young, sem sjálfur
hefur farið síðastliðin fimm skipti
á hátíðina, er þegar búið að senda
inn nokkrar sögur. „Þetta lítur vel
út og verður örugglega skemmti-
legt,“ sagði hann í spjalli við
Fréttablaðið.
Sagan sem vinnur verður birt á
íslenskri heimasíðu Hróarskeldu,
www.roskilde-festival.is. Senda
skal söguna á roskilde@roskilde-
festival.is. Þess má geta að
miðasala á Hróarskeldu á næsta
ári hefst 1. desember hjá
Stúdentaferðum. ■
Samkeppni um bestu Hróarskeldusöguna
■ TÓNLIST
HRÓARSKELDA Margar af frægustu
hljómsveitum heims hafa troðið upp á
Hróarskeldu í gegnum árin.
M
YN
D
B
Ö
S