Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 36
Aprilia-sporthjól Bílatorg.is og Aprilia á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um um- boðssölu Aprilia-sporthjólanna. Bílatorg mun annast umboðssöluna og hægt er að skoða verðskrá og panta hjólin í gegnum vefsíðuna bilatorg.is.[ ] REYNSLUAKSTUR Ekta fyrir stórfjölskylduna Mitsubishi Grandis er rúmgóður og þægilegur í akstri. Fyrir ekki svo mörgum árum þótti ekki tiltökumál að hrúga 4-5 börn- um í aftursæti bíla, halda svo jafnvel á einu, og bílbelti – þau voru ekki fyrir venjulegt fólk. Í dag hafa tímarnir svo sannarlega breyst. Hinn almenni neytandi gerir miklar kröfur um að öryggi farþega í bílum sé sem mest, og það hefur að sjálfsögðu kallað á stærri bíla, þar sem hver og einn farþegi hefur gott pláss og er tryggilega festur í bílbelti. Svokallaðir fjölnotabílar eru hluti af þessari þróun. Stórir bílar með örugg sæti fyrir marga far- þega. Það er örugglega markaður fyrir þessa bíla hér á landi því þó að fólk eignist færri börn en áður hefur samsettum fjölskyldum fjölgað. Samanlagður fjöldi barna í fjölskyldu er kannski fjögur eða fimm og þá dugar enginn venju- legur bíll til. Mitsubishi Grandis er einn þeirra bíla sem svara þessari þró- un. Hann er sjö manna, stór og mikill. Farangursrýmið er ekki upp á marga fiska þegar öll sætin eru í notkun en það stækkar til mikilla muna þegar aftasta sæta- röðin hefur verið lögð niður. Mjög gott er að setjast upp í Grandisinn, sætin eru afar þægi- leg og bíllinn er mjög lipur þrátt fyrir stærðina. Útsýnið er líka gott úr bílnum vegna þess hversu hátt er setið. Hann er óneitanlega mjög stór, fyrst þegar litið er í baksýnisspegilinn fær maður hálfgert áfall, bíllinn er svo lang- ur. Það venst hins vegar furðu fljótt og ýmislegt er gert til að gera manni akstur á þessu stóra farartæki þægilegri. Hliðarspegl- arnir eru til dæmis mjög stórir og hjálpa ökumanni við aksturinn. Bíllinn hefur „blöðrulag“ eins og algengt er með stærri fjölnota bíla. Þetta þýðir að langt er frá ökumanni og fram í rúðu en ein- nig að ökumaður sér ekki fram- enda bílsins, sem hlýtur að teljast galli. Vélin í Grandisnum er 2,4 lítra 165 hestafla bensínvél. Bíllinn er afar kraftmikill, sjálfskiptur með möguleika á beinskiptingu, mjög þægilegur í akstri innanbæjar og eins og klettur á vegi þegar lengra er ekið. Reyndar er staðsetningin á skiptistönginni nokkuð furðu- leg, hægra megin í mælaborðinu, þar að auki hreyfist gírinn til vin- stri og hægri, ekki bara upp og niður. Þetta venst þó fljótt. Bíllinn eyðir 13 á hundraði í innanbæjarakstri, segir á heima- síðu innflytjanda, en hann virðist þó eyða meira í hinu dæmigerða skaki á milli húsa í Reykjavík. sigridur@frettabladid.is steinunn@frettabladid.is Mitsubishi Grandis er flottur bíll fyrir stórar fjölskyldur. Hann er þægilegur í akstri og kraftmikill. Hækkun á hámarkshraða á norskum vegum hefur ekki fjölgað slysum. Árið 2001 var gerð sú tilraun að hækka hám- arkshraða á tveimur vegum til reynslu. Margir voru fullir efasemda um þessa áætlun og héldu að slysum myndi fjöl- ga. Ný skýrsla sýnir að svo er ekki að því er kemur fram í norska blaðinu Aftenposten. Áður var 90 km hraði á klukku- stund hæsti hámarkshraði á þjóðvegum landsins. Nú hefur 100 km hraði verið leyfður á fleiri vegum, skilyrði er þó að þeir séu í mjög góðu ástandi. Hámarkshraði hækkar Slysum fjölgar ekki Hámarkshraði á íslenskum vegum er 90 km á klst. Smáauglýsingasíminn er 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.