Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 48
36 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR Þú ert ekki óvön stjórnmálum. Er það samt ekki yfirþyrmandi að taka við starfi borgarstjóra? Það er ekki yfirþyrmandi. Ég þekki borgarmálin út og inn enda hef ég setið í borgarstjórn í tíu ár, þannig að ég veit að hverju ég geng og kvíði ekki fyrir því að takast á við þetta verkefni. Það hefur reynt mjög á sam- starfið innan Reykjavíkurlistans undanfarna daga vegna mála Þór- ólfs Árnason- ar. Mátti ekki litlu muna að það slitnaði upp úr sam- starfinu? Nei, það var ekki þannig. Það lítur kannski þannig út en Reykjavíkur- listinn er býsna sterkur og hefur staðið af sér brotsjó. Ekki bara núna heldur oft áður. Það er það sterkur sam- starfsvilji hjá borgarfulltrúunum og þó að það hafi reynt á þá var samstarfið ekki í hættu. Allir borgarfulltrúar Reykja- víkurlistans nema Árni Þór Sig- urðsson lýstu yfir stuðningi við Þórólf Árnason þrátt fyrir aðild hans að verðsamráði olíufélag- anna. Bendir þetta ekki til þess að Vinstri grænir geri meiri siðferðis- kröfur til sinna fulltrúa en hinir flokkarnir innan Reykjavíkurlist- ans? Ég ætla ekki að gerast dómari í því. Það er hins vegar þannig að niðurstaða samkeppnisráðs um verðsamráð olíufélaganna er eitt þúsund blaðsíður. Þegar umræðan hófst höfðu mjög fáir lesið hana og rýnt í efnisatriðin. Við treystum Þórólfi en það komu upp sjónar- mið um að atriði í þessari skýrslu orkuðu tvímælis og að hún væri mun alvarlegri en frumskýrslan hafði gefið til kynna. Þegar við borgarfulltrúarnir fórum í gegn- um þessi atriði með Þórólfi komumst við að þeirri niður- stöðu að það yrði erfitt fyrir Þórólf að starfa með þetta hangandi yfir sér. Þá tók hann þá afstöðu vegna skýrsl- unnar og um- ræðunnar í þjóðfélaginu að það væri best fyrir sig og Reykjavík- urlistann að hann segði af sér. Það þykir mér mjög virðingarvert. Voruð þið þá kannski of fljót á ykkur að lýsa yfir stuðningi við Þórólf fyrst þið voruð ekki búin að lesa skýrsluna? Það held ég ekki. Það er erfitt að segja hvað er rétt og hvað rangt í þessari atburðarás. Sagan verður að dæma það. Finnst þér þú hafa fengið næg- ar upplýsingar um stöðu Þórólfs og þátt hans í samráði olíufélag- anna þegar hann tók við starfi borgarstjóra í fyrra? Já. Nú virðist tillaga um þig hafa komið seint fram í viðræðum flokkanna um arftaka Þórólfs. Þið virtust ekki geta sameinast um oddvita flokkanna eða Dag B. Eggertsson. Þú ert ekki oddviti þíns flokks innan Reykjavíkurlist- ans. Verður þess vegna ekki erfitt fyrir þig að sinna leiðtogahlut- verki í borginni? Það verður að koma í ljós. Þessi hópur hefur starfað saman í gegnum tíðina og við höfum skipt með okkur verkum. Ég reikna ekki með að það verði nein breyt- ing á því. Stefán Jón mun til dæm- is fara fyrir skólamálum, Björk fyrir velferðarmálunum og svo framvegis. Ég hef fengið umboð frá stuðn- ingsfólki listans í tveimur stórum og erfiðum prófkjörum. Í stóra prófkjörinu 1998 lenti ég í þriðja sæti, sem kom mjög á óvart þá. Í prófkjörinu 2002 fékk ég svo flest atkvæði samtals. Ég hef aldrei verið upptekin af tali um oddvita og á kjörtímabilinu 1994 til 1998 og 1998 til 2002 var aldrei talað um oddvita flokkanna. Kannski af því að það voru allt konur sem voru þá í forsvari. Nú er ekki langt í næstu kosn- ingar, tæp tvö ár. Er þetta ekki of skammur tími fyrir þig að sanna þig í starfinu? Átján mánuðir? Tvær með- göngur? Ég veit það ekki og það verður að koma í ljós. En það er ekki eins og ég sé að ganga inn í ný verkefni. Ég þekki þetta og ég hef reynslu úr stórum málaflokk- um eins og skipulagsmálum. Ætlar þú að sækjast eftir því að leiða Reykjavíkurlistann í næstu kosningum, það er að segja ef hann fer fram? Tíminn verður að leiða það í ljós hvort Reykjavíkurlistinn heldur áfram. Það er hins vegar allt of snemmt að svara því hvort ég sækist eftir leiðtogahlutverk- inu í næstu kosningum. Það er ýmislegt sem getur komið upp. Það gerðist margt í þessari viku þegar Þórólfur sagði af sér þannig að það getur mjög margt gerst á átján mánuðum. Nú hafa mörg deilumál komið upp innan Reykjavíkurlistans á síðustu misserum. Fráfarandi borgarstjóri hefur sjálfur nefnt deilur um framtíð Austurbæjar- bíós og stjórnkerfisbreytingar. Er trúnaðurinn milli borgarfulltrú- anna ekki orðinn lítill? Nei. Það er mjög eðlilegt í svona samstarfi að fólk takist á og hafi mismunandi skoðanir. Það hefur oft hvesst á milli okkar í Reykjavíkurlistanum. Við erum hins vegar mjög hreinskiptin í samræðum hvert við annað og getum talað út um hlutina, rifist og tekist á en komist síðan að niðurstöðu sem allir geta sætt sig við. Það er fyrst og fremst vegna þess að borgarfulltrúar listans bera mikla virðingu hver fyrir öðrum og svo er okkur hlýtt hverju til annars. Eru ekki litlar líkur á því að Reykjavíkurlistinn bjóði fram sem slíkur í næstu kosningum? Sér- staklega með hliðsjón af ummæl- um sem hafa fallið undanfarið, meðal annars hjá formanni Ungra jafnaðarmanna sem sagði að staða Samfylkingar innan listans væri óþolandi og ummælum for- manns framsóknarfélagsins í norðurkjördæmi sem vill að Fram- sóknarflokkurinn fari fram undir eigin nafni? Við erum vön þessu í Reykja- víkurlistanum. Það hefur alltaf verið til fólk sem hefur haft skoð- un á því hvernig við ættum að haga okkar málum. Það verður bara að koma í ljós. Við höf- um í tvígang farið í gegn- um viðræður um samstarf og ég á von á því að flokk- arnir reyni að ná samstöðu fyrir næstu k o s n i n g a r . Svo verður bara að koma í ljós hvort það tekst eða ekki. Þú hefur verið formaður skipu- lagsnefndar. Þar eru nokkur um- deild mál til umfjöllunar eins og mislæg gatnamót Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar. Það virðist sem fjöldi borgarbúa vilji mislæg gatnamót þarna en Reykjavíkurlistinn hefur hafnað þeirri lausn. Við teljum að tillaga okkar um fjölgun akreina sé jafn góð og hugmyndir sjálfstæðismanna um mislæg gatnamót. Það er margt sem mælir gegn hefðbundnum mislægum gatnamótum, meðal annars plássleysi. Okkar lausn tryggir jafn mikil afköst á gatna- mótunum, jafn mikið umferðar- öryggi og ég held að hún sé heppi- legri fyrir gangandi vegfarendur. Er eitthvað að frétta af skipu- lagsmálum í Vatnsmýrinni? Ég vona að það geti orðið eitt af mínum síðustu verkum sem formaður s k i p u l a g s - nefndar að setja af stað skipulagsvinnu í Vatnsmýrinni. Það verður far- ið í hugmynda- samkeppni og svo verður svæðið skipulagt. Vonandi tekst mér að gera þetta að mínu síðasta verki sem formaður skipulagsnefndar. Nú standa yfir mjög viðamikl- ar stjórnkerfisbreytingar og það má greina óöryggi hjá starfsfólki borgarinnar um framtíð þess. Er ekki erfitt að taka við starfi borg- arstjóra undir þessum kringum- stæðum? Það hefur verið vandað mjög Reykjavíkurlistinn hefur staðið af sér brotsjó Steinunn Valdís Óskarsdóttir tekur við starfi borgarstjóra um næstu mánaðamót. Eftir erfiða viku hjá borgarfulltrúum Reykjavíkur- listans vegna aðildar Þórólfs Árnasonar að verðsamráði olíufélaganna náðist samstaða um að Steinunn tæki við starfinu. Guðmundur Hörður Guðmundsson ræddi við hana. Það hefur oft hvesst á milli okkar í Reykjavíkurlistanum. Við erum hins vegar mjög hrein- skiptin í samræðum hvert við annað og getum talað út um hlutina, rifist og tekist á. ,, Við treystum Þórólfi en það komu upp sjónarmið um að atriði í þessari skýrslu orkuðu tví- mælis og að hún væri mun alvarlegri en frumskýrslan hafði gefið til kynna. ,, Steinunn Valdís í hnotskurn NAFN: Steinunn Valdís Óskarsdóttir. MAKI: Ólafur Haraldsson, hönnuður. BÖRN: Kristrún Vala Ólafsdóttir, 5 ára. FÆDD: 1965 í Reykjavík. MENNTUN: Stúdent frá Menntaskólanum við Sund. Sagnfræðingur frá Háskóla Íslands. STARFSFERILL: Formaður Stúdentaráðs HÍ 1991 til 1992. Starfskona á Rann- sóknarstofu í kvenna- fræðum 1992. Borgar- fulltrúi frá árinu 1994. Starfskona Kvenfélaga- sambands Íslands 1993 til 1995.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.