Fréttablaðið - 13.11.2004, Page 54
SMS LEIKUR
LENDIR 12//11//04
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
Vinningar eru:
ENCORE CD´sEminem SmáskífuboxAðrar smáskífum með EminemEminem CD´s
Aðrir rapp CD´s
Margt fleira.
Sendu
SMS skeytið
BTL EMF
á númerið
1900
og þú gætir unnið. 12. hver vinnur
42 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR
ALLAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
ARABÍUKONUR
Jóhanna Kristjónsdóttir
ÍSLENSKI HESTURINN
Gísli B. Björnsson og Hjalti Jón
Sveinsson
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
BARN AÐ EILÍFU
Sigmundur Ernir Rúnarsson
BÁTUR MEÐ SEGLI OG ALLT
Gerður Kristný
DA VINCI LYKILLINN
Dan Brown
BÍTLAÁVARPIÐ
Einar Már Guðmundsson
ÓLÖF ESKIMÓI
Inga Dóra Björnsdóttir
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
BÁTUR MEÐ SEGLI OG ALLT
Gerður Kristný
BÍTLAÁVARPIÐ
Einar Már Guðmundsson
ELLEFU MÍNÚTUR
Paulo Coelho
ANDRÆÐI
Sigfús Bjartmarsson
MEÐ KÖLDU BLÓÐI
Ian Rankin
DANTE KLÚBBURINN
Matthew Pearl
KARÍTAS ÁN TITILS
Kristín Marja Baldursdóttir
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Örlaganóttin
eftir Tove Jansson
Hreint út sagt dásamlega skemmti-
leg og hugmyndarík barnabók um
múmínálfana í frábærri þýðingu
Steinunnar Briem. Hér verða
múmínálfarnir fyrir því óláni að eld-
fjall byrjar að gjósa í nágrenni við
hús þeirra og nú liggur á að bjarga
sér. Bók sem engum getur leiðst.
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]
Karítas án titils er ný skáldsaga
Kristínar Marju Baldursdóttur;
dramatísk örlagasaga ungrar stúlku
í upphafi 20. aldar. Kristín Marja er
þekktust fyrir Mávahlátur, bók sem
sló rækilega í gegn. „Vinsældir
þeirrar bókar fóru einhvern veginn
framhjá mér,“ segir Kristín Marja,
„þegar maður er búinn að skrifa
eina bók þá er hún búin og næstum
gleymd í huga manns því maður er
svo upptekinn af næsta verkefni.“
Konan sem fór hringinn
Þessi nýja skáldsaga á sér langa
sögu. „Stuttu eftir að Mávahlátur
kom út sagði við mig kona að ég ætti
að skrifa sögu íslenskra kvenna,“
segir Kristín Marja. „Ég var reynd-
ar með eitthvað slíkt í huga og hafði
í nokkurn tíma sankað að mér sög-
um um konur. Ein saga um lang-
ömmu mína sat í mér. Hún bjó á
Vestfjörðum, átti sex börn, og þegar
hún varð ekkja ákvað hún að flytja
til Akureyrar til að koma börnunum
til mennta. Hún tók sig upp og fór
með skipi frá Ísafirði. Þegar skipið
var komið að Horni þá varð það að
snúa við vegna hafíss. Þegar
langamma sneri aftur til Ísafjarðar
sagði fólk við hana: „Jæja, er nú
þessu feigðarflani með börnin lok-
ið?“ „Nei,“ svaraði hún, „ég fer bara
hringinn.“ Og hún fór hringinn,
sigldi suður fyrir landið og til Akur-
eyrar. Ferðin tók hálfan mánuð og
hún og börnin voru í lest allan tím-
ann. Langamma kom börnum sínum
til mennta þótt hún þyrfti að fara
lengri leiðina. Þessa sögu heyrði ég
margoft í æsku minni ásamt öðrum
sögum sem urðu til þess að ég ákvað
að skrifa þessa bók.
Síðan kom upp í hendur mínar
lítil skissubók Kristínar Þorvalds-
dóttur, sem var ein af þeim konum
sem fóru utan til náms til að læra
myndlist í kringum aldamótin. Um
leið fæddist í huga mér listakonan
Karítas. Ég held að það hafi alltaf
blundað í huga mér að skrifa um
listakonu. Faðir minn málaði í frí-
stundum og ég hékk alltaf í honum.
Til að fá vinnufrið leyfði hann mér
að skoða listaverkabækur sínar og
fimm ára gömul þekkti ég alla
helstu impressjónistana. Um tíma
ætlaði ég mér að læra myndlist.“
Skortur á sterkum kvenfyrir-
myndum
Karítas – án titils var átta ár í smíð-
um og Kristín Marja var fjögur ár
að skrifa hana. „Á þessum átta
árum var ég að skrifa aðrar bækur
en þessi saga fylgdi mér alltaf. Þeg-
ar ég var að skrifa hana var ég
margoft komin að því að gefast upp.
Það var erfitt að fara aftur í tímann
því það er ekkert of mikið til um
konur og þeirra störf en ég var svo
heppin að kynnast konum sem
fræddu mig um ýmis smáatriði í
daglegu lífi kvenna á þessum tíma.“
Kristín Marja segist hafa séð
persónuleika aðalpersónunnar Kar-
ítasar þegar hún var stödd á lista-
safni í Cordoba á Spáni. „Þá sá ég
hana allt í einu. Hún var þar á
mynd, kona með sólhlíf og vindil í
vinstri hendi og fisk í þeirri hægri.
Á höfði bar hún körfu með víni,
brauði og banönum.“
Konur hafa alltaf verið aðalper-
sónur í verkum Kristínar Marju.
„Ég veit ekkert hvernig karlmenn
hugsa og þess vegna kýs ég að lýsa
þeim utanfrá,“ segir hún. „Það er
alltaf verið að skrifa um karlmenn
og afrek þeirra en of lítið er skrifað
um konur. Konur eru þrautseigar en
samt oft svo bráðfyndnar. Ég kýs að
skrifa um slíkar konur.“
Kristín Marja segir að skortur sé
á sterkum kvenfyrirmyndum í sam-
tímanum. „Það var tímabil á minni
ævi þegar ég var hlaðin störfum, ég
vann langan vinnudag, var að ljúka
námi, var að skrifa bók, var að
byggja og ala upp þrjár dætur. Ég
fékk regluleg sjálfsvorkunnarköst.
Þá hugsaði ég alltaf um söguna um
langömmu og beit á jaxlinn og
skammaðist mín. Ég áttaði mig á því
hvað fyrirmyndir eru mikilvægar;
sterkar konur með mikinn sjálfsaga.
Okkur skortir slíkar fyrirmyndir.
Það er hins vegar til nóg af útlits-
fyrirmyndum en við þurfum bara
ekkert á þeim að halda.“
kolla@frettabladid.is
[ BÓK VIKUNNAR ]
Á þessum degi árið 1850 fæddist í Skotlandi Robert Louis Stevenson, höfundur
Gulleyjunnar og Jekylls læknis og herra Hydes. Stevenson ákvað að gerast rithöfundur í
óþökk foreldra sinna og fyrir vikið var ekkert samband þeirra á milli árum saman.
Eiginkona Stevensons var bandarísk en hjónin bjuggu í Skotlandi. Stevenson þjáðist af
berklum og fjölskyldan fluttist til Suðurhafseyja í þeirri von að að loftslagið myndi
lækna hann. Þar lést Stevenson árið 1894, einungis 44 ára gamall.
Hjartasár eru alltaf lengur að gróa
en önnur sár.
Fay Weldon
KRISTÍN MARJA BALDURSDÓTTIR „Það er alltaf verið að skrifa um karlmenn og afrek þeirra en of lítið er skrifað um konur. Konur eru þrautseigar en samt oft svo bráðfyndnar. Ég
kýs að skrifa um slíkar konur.“
Kýs að skrifa um konur
KARÍTAS ÁN TITILS ER NÝ SKÁLDSAGA KRISTÍNAR MARJU BALDURSDÓTTUR
Marklund verður sendiherra
Sænski rithöfundurinn Liza Marklund var nýlega
gerð að velgjörðarsendiherra barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna. Það var leikarinn Roger
Moore sem sæmdi hana titlunum í Stokkhólmi
en Moore hefur unnið ötullega fyrir barnahjálp-
ina síðustu árin. Marklund segist ætla að ein-
beita sér að því að beina augum manna að
jafnrétti barna til náms og nauðsyn þess að
vernda þau gegn ofbeldi. Marklund hefur sent
frá sér sjö bækur sem selst hafa í yfir 5 milljón-
um eintaka á 26 tungumálum.
BÓKASKÁPURINN
Á toppnum
Þrjár bækur sem seljast vel hér á landi eru á metsölulista
í Bretlandi. Da Vinci lykillinn trónir efst á kiljulistanum en
milljón eintök hafa selst af bókinni í Bretlandi. Englar og
djöflar eftir sama höfund er í sjötta sæti listans en um
400.000 eintök eru seld af þessari æsispennandi bók. Í
sjöunda sæti er svo hin yndislega Furðulegt háttalag
hunds um nótt með milljón eintaka sölu í kilju.