Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 13. nóvember 2004 49
www.toyota.is
* Tilboð miðast við einka- eða rekstrarleigu fyrir milligöngu Glitnis.
Tilboð RAV4 frá 46.300 kr. á mán.* RAV4 2.0 5 gíra 5 dyra 46.300 kr. á mán. m/aukahlutapakka.RAV4 fylgja aukahlutirað andvirði 130.000 kr.
Tilboð Ókeypis 33” breytingÖllum Land Cruiser 90 jeppum með bensínvél og fjögurra þrepa skiptingu fylgir ókeypis 33" breyting að verðmæti343.000 kr.
Tilboð
Corolla f
rá 29.900
kr. á má
n.*
Corolla h/
b 1.4 5dy
ra 29.900
kr. á mán.
Corolla s/d
1.4 4dyra
30.550 kr
. á mán.
Corolla w/
g 1.4 5dyr
a 31.400 k
r. á mán.
120.000
kr. afslát
tur af ka
upverði
Bestu kjör
á betri not
uðum bílum
Erum með h
eilmikið af To
yota betri no
tuðum
bílum. Þetta
eru allt frábæ
rir bílar sem
þú
getur eignas
t eða tekið á
einkaleigu fy
rir
milligöngu G
litnis
Allt í gangi alla helgina
Handboltafeðgin í fremstu röð
Kvennalið Hauka í handbolta hefur byrjað leiktíðina með tilþrifum og er liðið taplaust. Þann ár-
angur má að hluta þakka þjálfaranum og leikstjórnanda liðsins en þau eru náskyld.
HANDBOLTI Gengi kvennaliðs Hauka
í handbolta á þessari leiktíð hefur
verið með miklum ágætum og
hefur liðið unnið flesta leiki sína
hingað til með sannfærandi hætti.
Meðan erfitt er að draga ákveðna
leikmenn liðsins út fyrir sérstak-
lega góðan árangur er ljóst að
leikstjórnandi liðsins, Ragnhildur
Rósa Guðmundsdóttir, hefur átt
stóran hlut að máli. Ragnhildur er
dóttir þjálfara liðsins, Guðmund-
ar Karlssonar.
Hefur valdið hlutverkinu vel
„Hún er í hlutverki leikstjórn-
anda og hefur valdið því vel hing-
að til enda má kannski segja að
hún hafi betri tengingu við haus-
inn á mér en gengur og gerist,“
segir Guðmundur Karlsson, þjálf-
ari Hauka og faðir Ragnhildar.
Hann notar lýsingarorðin spar-
lega hvort sem er um dóttur sína
eða gengi liðsins enda veit hann
sem er að mótið er rétt nýhafið og
langur vegur eftir enn. „Hún er að
skila sínu hlutverki vel eins og allt
liðið hingað til. Það hefur gengið
vel það sem af er en reyndar kom
mér mjög á óvart að Haukum væri
spáð efsta sætinu fyrir mótið því
það eru fjölmörg önnur góð lið
sem hafa að upplagi sama mann-
skap nú og þau höfðu áður. Við
aftur á móti erum enn að mótast
sem lið og eigum eftir að verða
betri þegar fram líða stundir.“
Tvennt ólíkt faðir eða þjálfari
„Það er alveg tvennt ólíkt að
hafa hann sem þjálfara eða hafa
hann sem pabba,“ segir Ragnhild-
ur Rósa Guðmundsdóttir, leik-
stjórnandi kvennaliðs Hauka.
Ragnhildur hefur staðið sig fram-
ar vonum og er með-
al markahæstu leik-
manna. Hún segir
einu gilda hver
þjálfi liðið en viður-
kennir að hún viti
yfirleitt upp á hár
hvað karl faðir henn-
ar fer fram á í hverj-
um leik. „Það gerir
þetta ekkert erfið-
ara að hafa hann
sem þjálfara en
hann kemur fram
við mig eins og aðra
í liðinu og ég nýt
engra forréttinda.
Það kemur fyrir að
við rífumst en það er
eðlilegur hluti af
leik sem þessum.“
Ragnhildur er ný-
útskrifuð úr fram-
haldsskóla og segist
bera þá von í brjósti
að fara út í atvinnu-
mennsku sem fyrst.
„Ég er staðráðin í að
reyna fyrir mér er-
lendis ef möguleiki
gefst og að því leyti
er frábært að spila
með Haukum því lið-
ið er mjög gott og á
eftir að verða enn
betra eftir því sem
við lærum betur
hver á aðra. Svo spil-
ar liðið vonandi í
Evrópukeppninni
einhvern daginn og
það verður gott
tækifæri til að koma
sér á framfæri.“
-aöe
FEÐGIN Á FULLU Ragnheiður Rósa Guðmundsdóttir er í þeirri skrýtnu aðstöðu að hafa föður sinn,
Guðmund Karlsson, sem þjálfara. Hún lætur vel af því að spila undir karli föður sínum og segir hann ólíkan
sem þjálfara og pabba. Fréttablaðið/Palli
Ólafur Stefánsson:
Mætir á HM
í Túnis
HANDBOLTI Viggó Sigurðsson lands-
liðsþjálfari færði handknatt-
leiksunnendum þau góðu tíðindi í
gær að íþróttamaður ársins, Ólaf-
ur Stefánsson, muni spila með ís-
lenska landsliðinu á HM í Túnis
sem fram fer í janúar. Ólafur lýsti
því yfir á Ólympíuleikunum í
sumar að hann væri hættur í bili
að leika með landsliðinu og taldi
ekki líklegt að hann myndi spila í
Túnis. Ólafur verður ekki með í
Svíþjóð í næstu viku en hefur lof-
að Viggó að mæta til Afríku í jan-
úar.
„Það var komin ákveðin andleg
þreyta í Ólaf og fleiri í landsliðinu
og ég held að það hafi aftrað lið-
inu í Aþenu,“ sagði Viggó og bætti
við að það hefði ekki tekið langan
tíma að fá Ólaf til þess að koma til
Túnis. „Það tók eina mínútu. Hann
ætlar að mæta ferskur til leiks.“
- hbg
VELKOMINN AFTUR Ólafur Stefánsson
hefur ákveðið að leika með handbolta-
landsliðinu á HM í Túnis.