Fréttablaðið - 14.10.2004, Blaðsíða 10
10 14. október 2004 FIMMTUDAGUR
ÓDÝRUSTU TEGUNDIR
RAUÐVÍNS Í ÁTVR
750 ml flöskur
Brusa Lambrusco Dolce 7,5%
680 kr. Ítalía
René Barbier Cabernet Sauvignon 2001
790 kr. Spánn
Casa Milani Rosso Puglia 2002
790 kr. Ítalía
Riunite Lambrusco 8%
790 kr. Ítalía
Brusa Lambrusco Secco 10,5%
790 kr. Ítalía
Áhrif bensínverðhækkana:
Tekjur ríkisins aukast
RÍKISSJÓÐUR Tekjur ríkissjóðs hafa
hækkað í réttu samhengi við tíð-
ar bensínverðshækkanir á árinu.
Greiddur er virðisaukaskattur af
bensíni og dísilolíu og nemur
hann 24,5 prósentum. Verð á
bensínlítra hefur hækkað um 13
krónur frá áramótum og á
dísilolíu um 11 krónur. Væri
meðalársverð á eldsneyti það
sama og það er í dag væri tekju-
aukning ríkissjóðs 750 milljónir
króna miðað við verðið sem gilti
um áramót.
Um tvö hundruð milljónir
lítra af bensíni seljast ár hver og
um eitt hundrað milljónir lítra af
dísilolíu. Sé verð á bensínlítran-
um eitt hundrað krónur og á
dísillítranum 50 krónur nemur
samanlögð árssala um 25 millj-
örðum króna. Af þeirri fjárhæð
fær ríkissjóður fimm milljarða í
virðisaukaskatt.
Ríkið innheimtir einnig sér-
stakt gjald af bensíni, svokallað
bensíngjald, en það er föst
krónutala og aukast tekjur ríkis-
sjóðs því ekki samhliða verð-
hækkunum. Alls renna um 60%
af bensínverði í ríkissjóð. -bþs
Dælum sjálf en
drögum ekki úr akstri
Bensínverð hækkar og hækkar. Viðbrögð ökumanna eru að dæla sjálfir.
Munurinn á sjálfsafgreiðslu og þjónustu nemur tæpum tuttugu þúsund krónum á ári.
Fólk spyr um eyðslu þegar nýr bíll er keyptur.
BENSÍNVERÐ Verð á bensíni hefur
náð áður óþekktum hæðum og
þurfa bíleigendur að greiða frá
rúmum 103 krónum og upp í rúm-
ar 113 fyrir lítrann eftir því hvar
dropinn er keyptur og hvort
sjálfsafgreiðsla er valin eða þjón-
usta. Ástæður hækkananna að
undanförnu eru þær sömu og fyrr,
ástandinu á heimsmarkaði er um
að kenna en ekki óbilgirni ís-
lenskra bensínsala. Olíumarkað-
urinn í heiminum er órjúfanleg
keðja, litlar bensínbirgðir í
Bandaríkjunum, stríð í Írak, verk-
föll í Nígeríu og Noregi og óveður
í Mexíkó hækka verðið í Reykja-
vík og á Reyðarfirði.
Ökum jafn mikið
Íslenskir ökuþórar láta ekki hátt
bensínverð aftra sér við akstur-
inn. Fá merki eru um að umferð
minnki þó að lítrinn hækki, áfram
heldur fólk sinn veg. Umferðar-
mælingar og lauslegar athuganir
á akstri benda til að áhrifin séu
engin. Háværar umræður á
vinnustöðum um okurverð á bens-
íni ná ekki út fyrir kaffistofurnar,
þaðan ekur fólk til síns heima sem
fyrr, helst eitt í hverjum bíl.
Könnun á vef FÍB sýnir þó að tæp-
ur þriðjungur dragi úr notkun
einkabílsins en öngþveitið á göt-
unum bendir til hins gagnstæða.
Fólk virðist engu að síður með-
vitað um þetta háa verð og birtist
það einna helst í viðleitni þess til
að leita uppi lægsta verðið. Sú leit
er næsta auðveld, í það minnsta á
höfuðborgarsvæðinu, því sjálfsaf-
greiðslustöðvar eru nú orðnar
nokkuð á þriðja tuginn í Reykja-
vík og nágrenni. Finnast þær ein-
nig á nokkrum stöðum lands-
byggðarinnar. Ætla má að öku-
menn dæli sjálfir sjö af hverjum
tíu bensínlítrum á bíla sína, þ.e. 70
prósent dæla sjálfir.
Hverju eyðir'ann?
Sjálfsafgreiðslustöðvar litu fyrst
dagsins ljós fyrir tæpum áratug og
hefur fjölgað mikið síðan. Munur-
inn á verði í sjálfsafgreiðslu og á
þjónustustöðvum hefur aukist, í
fyrstu var hann tvær krónur en er
nú um tíkall. Olíufélögin hafa ým-
ist sett á fót nýjar sjálfsafgreiðslu-
stöðvar á síðustu misserum og
árum eða breytt gamalgrónum
hefðbundnum bensínstöðvum í
sjálfsafgreiðslu.
Meðvitund borgaranna um hátt
bensínverð birtist líka í vanga-
veltum um eyðslu bíla. Bílasölum
sem rætt var við ber saman um að
þegar verðið er hátt og umræðan
hávær hugi fólk að bensínnotkun
farkostanna. Hverju eyðir hann á
hundraðið? er algeng spuring þeg-
ar þannig árar.
Að sama skapi hefur almennur
áhugi á kostum og göllum dísilbif-
reiða vaknað, ekki síst þar sem
þungaskatturinn verður felldur
niður á nýju ári og álagning hins
opinbera færð inn í olíuverðið.
Fólk veltir fyrir sér hvort ódýrara
verði að aka dísilknúnum bílum
en sérfræðingar telja svo ekki
verða, í það minnsta ekki ef miðað
er við hefðbundinn innabæj-
arakstur. Fyrir reglulegan
langakstur geti dísilolían hins
vegar talist hagkvæmari.
Munar farseðli
Miklar breytingar hafa orðið á
bensínmarkaði að undanförnu. Sú
tíð að verðið sé það sama upp á
eyri hjá öllum olíufélögunum er
liðin. Einnig sú tíð að lækkanir og
hækkanir beri upp á sömu sek-
úndunni. Þó að félögin virðist oft
ganga í takt fer því fjarri að sama
verðskrá gildi alls staðar. Og oft
sitja einhverjir eftir þó að aðrir
hækki.
Aukin samkeppni og krafa
neytenda hefur ráðið þar mestu
um. Þjónustustig stöðvanna er
mishátt og hin nýja Atlantsolía
hefur haft sitt að segja. Athugun í
gær sýndi tíu mismunandi verð á
bensínlítranum og munaði tíkalli
á því hæsta og lægsta. Bilið kann
að virðast mjótt en er engu að síð-
ur til staðar, ólíkt því sem eitt sinn
var.
Bíleigandi sem á hefðbundinn
bíl og ekur hefðbundinn kíló-
metrafjölda þarf að greiða
192.950 krónur fyrir bensínið á
ári, sé miðað við verðið eins og
það er á þjónustustöðvum í dag.
Dæli hinn sami sjálfur kostar
eldsneytið 175.780 krónur. Munur-
inn er 17.170 krónur á ári. Fyrir
þann pening fást þrjár áfyllingar
á þessu sama verði á sjálfdælu-
stöð, farmiði til útlanda eða 21
bíómiði. Það munar um minna.
bjorn@frettabladid.is
Viðburðir í París:
Ómetanleg
landkynning
LANDKYNNING Kynning á landi og
þjóð á borð við þá sem nýverið fór
fram í Frakklandi þar sem ísjaki
úr Jökulsárlóni var fluttur til Par-
ísar styrkir ímynd landsins og er
ómetanleg fyrir markaðssetningu
ferðaþjónustunnar, segir í ályktun
Samtaka ferðaþjónustunnar. Sam-
tökin lýsa ánægju með átakið,
sem staðið hefur ytra undanfar-
inn hálfan mánuð og verið kynnt
með áberandi hætti. „Mikið hefur
verið fjallað um Ísland og ein-
staka listviðburði í blöðum, sjón-
varpi og útvarpi í Frakklandi,“
segja samtökin.
-óká
KONUR Í DARFUR
Konur flytja vörur á baki asna nærri kofa
sem brann í árás í Norður-Darfur.
Hjálparstarf í Darfur:
Geta ekki
dreift mat
SÚDAN, AP Aukin hætta á árásum í
Darfur hafa leitt til þess að Mat-
vælahjálp Sameinuðu þjóðanna
hefur neyðst til þess að fella niður
matvæladreifingu í nokkrum
hlutum Darfur-héraðs í Súdan.
Hjálparstarfi í norðurhluta
Darfur var hætt eftir að tveir
starfsmenn bresku hjálparsam-
takanna Save the Children létust í
sprengingu á sunnudag. Að auki
hafa borist fréttir af árásum
vopnaðra glæpamanna á bílalestir
sem flytja hjálpargögn um hérað-
ið.
Vonir standa til að Matvæla-
hjálp SÞ geti séð tveimur milljón-
um manna fyrir mat í mánuði
hverjum frá og með áramótum. ■
– hefur þú séð DV í dag?
Hálft ár síðan Rússarnir
sögðu kjarnorkuskipið
úti fyrir Þistilfirði
geta sprungið í loft upp
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
DÆLAN GENGUR
Tíu króna munur er á hæsta og lægsta bensínverði. Kjósi fólk að dæla sjálft sparar það
tæpar tuttugu þúsund krónur á ári.
GLÆSTAR STÖÐVAR
Margar bensínstöðvarnar hafa breyst úr
skúrum með smurolíu og rúðuvökva á
boðstólum í alhliða þjónustumiðstöðvar
fyrir fólk og farartæki.
FRÁ SKELJUNGSSTÖÐ
Ríkið fær um 60% af bensínverði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
HAITI, AP Fyrrverandi hermaður
uppreisnarmanna á Haítí skýrði
frá því að félagar hans væru vel á
veg komnir um að binda endi á of-
beldisverk í höfuðborginni sem
kostað hefðu að minnsta kosti 46
mannslíf. Hann hótaði því að til
átaka gæti komið milli uppreisnar-
manna og vopnaðra stuðnings-
manna hins brottræka forseta
Jean-Bertrand Aristide og friðar-
gæsluliða frá Sameinuðu þjóðun-
um.
Höfuðborgin Port-au-Prince
hefur logað í illdeilum, með afhöfð-
unum og skotbardögum, frá því 30.
september, er haldið var upp á það
að 13 ár höfðu liðið frá því að
Aristide var fyrst steypt af stóli. ■
13 ár frá því að forseta Haítí, Aristide, var fyrst steypt af stóli:
Hátíðarhöld með morðum
FRÁ HÖFUÐBORG HAÍTÍ
46 hafa látið lífið í kjölfar uppreisnar sem
gerð var 13 árum eftir að forseta landsins
var fyrst steypt af stóli.
10-11 13.10.2004 21:43 Page 2