Fréttablaðið - 14.10.2004, Blaðsíða 15
15FIMMTUDAGUR 14. október 2004
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Mótmælir því að kjarasamningar sjómanna séu að sliga landvinnslu:
Vandi landvinnslunnar liggur annars staðar
FISKVINNSLA Aðalsteinn Baldurs-
son, talsmaður fiskvinnslufólks
hjá Starfsgreinasambandinu, ger-
ir alvarlegar athugasemdir við
þann málflutning Sigurgeirs B.
Kristgeirssonar, framkvæmda-
stjóra Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum, að kjarasamningar
við sjómenn skýri að verulegu
leyti bága stöðu fiskvinnslu í
landi.
„Ég mótmæli því harðlega að
menn skuli stilla sjómönnum upp
gegn landverkafólkinu með þess-
um hætti. Það er einfaldlega ekki
rétt að kjarasamningar sjómanna
haldi niðri launum landverka-
fólks,“ segir Aðalsteinn. „Vandi
landvinnslunnar liggur annars
staðar,“ bætir hann við.
Hann segist hins vegar fagna
því að kominn sé fram aðili hjá
Samtökum fiskvinnslustöðva sem
telji að hækka beri laun fisk-
verkafólks. „Ég held að menn
ættu að slaka á þessum arð-
greiðslum út úr fyrirtækjunum og
hugsa meira um starfsfólkið,“
segir Aðalsteinn.
Sigurgeir flutti erindi á árs-
fundi Samtaka fiskvinnslustöðva
um síðustu helgi þar sem hann
spáði endalokum landvinnslu ef
samtök sjómanna léðu ekki máls á
breytingum á sínum kjarasamn-
ingum. - bþe
Efling um Brim:
Fordæmir
vinnubrögð
KJARADEILUR „Reynt er að brjóta
samstöðu sjómanna á bak aftur
með stuðningi yfirvalda og lög-
reglunni sigað á verkfallsmenn,
sem lýsir best útgerðarauðvaldi
sem svífst einskis í samskiptum
við launafólk,“ segir í yfirlýsingu
Eflingar-stéttarfélags um vinnu-
brögð Útgerðarfélagsins Brims
hf. í samskiptum við sjómenn.
Fjöldi stéttarfélaga hefur ályktað
um málið undanfarna daga og líkt
og Efling skorað á félagsfólk að
sinna ekki löndun eða aðri þjón-
ustu við Sólbak EA-7 meðan á
deilu Sjómannasambandsins og
útgerðarinnar stendur. - ókáFR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
AÐALSTEINN BALDURSSON
Mótmælir því að sjómönnum skuli
stillt upp gegn landverkafólki.
SATAÐINN AÐ VERKI Maður um
tvítugt var staðinn að verki og
handtekinn við innbrot í verslun-
armiðstöð í Breiðholti í fyrrinótt.
Innbrotsþjófurinn hafði ekki náð
neinu þýfi þegar lögreglan náði
honum. Hann gisti fangageymsl-
ur lögreglunnar og var yfirheyrð-
ur í gær.
FÉLL FRAM AF SVÖLUM Maður á
fertugsaldri var fluttur á slysa-
deild eftir að hafa fallið þrjá
metra fram af svölum í nýbygg-
ingu á Engjavöllum í Hafnarfirði.
Maðurinn var ekki talinn alvar-
lega slasaður.
EIRÍKUR JÓNSSON
Næsti samningafundur ekki boðaður fyrr
en eftir helgi.
Sáttasemjari:
Samninga-
fundur á
mánudag
KENNARAVERKFALL Samninganefnd-
ir sveitarfélaganna og kennara
hafa verið boðaðar til fundar hjá
Ríkissáttasemjara á mánudag.
Þetta var ákveðið eftir óformlega
fundi í gær. Eftir viðræður við
samninganefndirnar, sitt í hvoru
lagi, þótti sáttasemjara ekki
ástæða til að boða fund fyrr.
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands, sagði í
gær að sér þætti ljóst að sveitar-
stjórnarmönnum stæði á sama um
verkfallið því þeir kæmu ekkert
til móts við kröfur þeirra. ■
Kínverji í spilavíti:
Gekk ber-
serksgang
eftir tap
KÍNA AP Karlmaður gekk berserks-
gang eftir að hafa tapað hundruð
milljónum í spilavíti í Kína, stakk
eiginkonu sína til bana og kveikti
í íbúð sinni. Eldurinn breiddist út
til nærliggjandi íbúða en slökkvi-
liðsmönnum tókst að bjarga
þremur sem festust í brennandi
húsinu. Tveimur í viðbót tókst að
bjarga sér sjálfum út úr brenn-
andi íbúðum sínum.
Skýrt er frá því að tapið hafi
numið allt af hálfum milljarði ís-
lenskra króna og spilafíkillinn hafi
myrt konu sína í kjölfar rifrildis
þeirra hjóna um tapið mikla. ■
14-15 13.10.2004 19:26 Page 3