Fréttablaðið - 14.10.2004, Blaðsíða 26
Samkvæmt nýrri könnun í Bretlandi sem fréttastofa
BBC greinir frá er Diesel-fatamerkið það svalasta í
bransanum. Diesel-vörurnar fást í verslunum NTC á
Íslandi, eins og til dæmis Sautján og Deres.
Eddufelli 2,
s. 557 1730
Bæjarlind 6,
s. 554 7030
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. kl. 10-16T Í S K U V E R S L U N
Langerma bómullar
rúllukragabolir
Margir litir stærðir s-xxl 42/44-54/56
og ullarsjöl í úrvali.
Alpahúfur í
mörgum litum.
Flísfóðraðir vettlingar
Fatahönnuðurinn Valentino kom, sá og sigraði á tísku-
vikunni í París sem lauk síðastliðinn þriðjudag og
sýndi enn fremur af hverju hann er einn ástsælasti
hönnuður heims.
Konur um allan heim hylla Valentino þar sem hann
hannar fáguð föt fyrir konur sem hugsa um útlitið.
Næsta vor geta ástkonur Valentino klæðst fallegum
fötum sem eru afskaplega kvenleg og getur hvaða
Hollywood-stjarna sem er látið sjá sig í þeim.
Valentino kynnti fyrstu fatalínuna sína árið 1962
og hefur síðan reynt að hlúa að sambandi sínu við
kóngafólk, leikkonur og hvaða dömur sem eru mikið í
sviðljósinu. Og Valentino er líka rausnarlegur þar
sem hann býður þessum vinum sínum og kunningjum
stundum í frí á snekkju sinni þar sem fræga fólkið
fær frí frá aðgangshörðum ljósmyndurum. Þó að Val-
entino sé einn af þeim fremstu á sínu sviði vakti tísku-
sýningin Rive Gauche frá Yves Saint Laurent mesta
athygli. Þar var hönnuðurinn efnilegi Stefano Pilati að
stíga sín fyrstu skref.
Pilati var undirmaður Tom Ford hjá Yves Saint
Laurent en þegar Ford hætti hjá fyrirtækinu tók
Pilati við þó að margir frægir hönnuðir, eins og Alex-
ander McQueen, hafi haft augastað á starfinu. Pilati
er 38 ára og hefur nokkuð frjálsar hendur hjá Yves
Saint Laurent, en herra Saint Laurent er oft talinn
faðir nútímatísku.
Pilati sýndi afskaplega kvenlega og klassíska tísku
með ögrandi keim á tískuvikunni í París.
lilja@frettabladid.is
Valentino eftir sýninguna í París sem
heppnaðist afskaplega vel eins og alltaf.
Tískusýning Valentino vakti verðskuldaða lukku og skartaði mörgum af fallegustu
fyrirsætum heims.
Nýir og gamlir hönnuðir:
Fágun, kvenleiki og klassík
Sítt pífupils og ögrandi topp-
ur fyrir konurnar í lífi Val-
entino.
Hér leikur Valentino sér með
efni og snið og skapar fallegt
og kvenlegt útlit.
Töff en jafnframt rómantískt
pils með viðeigandi toppi frá
Valentino.
Ögrandi kona sem lætur ekk-
ert stöðva sig í hönnun frá
Valentino.
Skærbleikur og frískandi kjóll
í kokkteilboðið frá Pilati.
Húðlitaður kjóll sem Pilati
brýtur upp með töff belti.
Nútímakonan í nútímadragt
frá Pilati.
Flott, sexí og kvenlegt hjá
Pilati.
M
YN
D
IR
A
P
Prinsessan Diane von Furstenberg kom fram í
tískuheiminum upp úr 1970 og tveimur árum
seinna kynnti hún hinn heimsfræga „Wrap
dress“ eða „vafningskjól“ Kjóllinn seldist gríð-
arlega á næstu árum og kom prinsessunni á
forsíðu Newsweek árið 1976, fyrir að vera
mesta markaðsmanneskjan í tískubransanum
síðan Coco Chanel var og hét. Þá höfðu selst
yfir fimm milljónir kjóla.
Grunnsnið kjólsins er mjög einfalt, hann er
hnésíður, bundinn um mittið og ermarnar eru
ýmist stuttar, síðar eða hlíra. Kjóllinn er afar
klæðilegur og hentar öllum lík-
amsgerðum, hann er hvers-
dagslegur og glæsilegur í
senn. Vafningskjóllinn datt úr
tísku um skeið en rétt fyrir
síðustu aldamót varð
hann vinsæll á ný. Von
Furstenberg-vafningskjóll-
inn er orðinn klassík í tísku-
heiminum og margar eftirlík-
ingar hafa verið gerðar af honum.
Það ætti því ekki að vera erfitt að
finna sér eftirlíkingu í hinum ýmsu búðum
bæjarins eða finna sér einn
upprunalegan á netinu.
Von Furstenberg-vafningskjóllinn:
Klassískur og klæðilegur
Vafningskjóll úr Topshop
kr. 7.990 kr.
Upprunalegur vafningskjóll, von Furstenberg.
Til sölu á www.vintagepimp.com
26-27 (02-03) Tíska 13.10.2004 15:52 Page 2